Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988. LífsstíU Leyst úr yanda- málum neytenda Anna Bjamason, DV, Denver Fyrir nokkru var haldin mikil neytendastefna í heljarmikilli „kringlu" hér í Denver. Það voru tveir aðilar sem boðuðu til ráðstefn- unn^r, Rocky Mountain News, annað af tveimur stórblöðum, sem gefin eru út í Dénver og ABC sjón- varpsstöðin „9-News“. Sú stöð lætur sig neytendamál miklu varða og oft meö nýög góðar „neytendafréttir". Hvorki meira né minna en 54 upp- lýsingabásar voru í verslunarmið- stöðinni og var þar að finna fulltrúa frá öllum hugsanlegum aðilum. Nefna má lögmannafélög bæði Den- ver og fleiri aðliggjandi borga, full- trúa frá starfsemi aldraðra, m.a. var hægt að fá greiriargóðar upplýsingar um húsnæði fyrir aldraða og annað sem þeim viökemur. Fulltrúar frá póstþjónustunni voru reiðubúnir til að svara fyrirspurnum, einnig full- trúar frá rafmagns- og vatnsveitum, svo og skattstjórum hinna ýmsu umdæma, heObrigðisyfirvöld voru einnig á staðnum. Félag bifreiðaeig- enda, sem er afar sterkur félagsskap- ur hér í Bandaríkjunum, var þama með sína fulltrúa. Þama vom einnig fulltniar frá ýmsum einkafyrirtækj- um eins ' og sambandi gólfteppa- hreinsara og fleiri slíkum. samtökum. Better Business Bureau var þarna, en það er afar merkilegt fyrirbæri, samtök ýmissa fyrirtækja og stofn- ana sem vilja eiga sem allra best Looking for a good meat deal ? You won't find it through an ad like this! Nothing i8 free. You’ll pay plenty for this bonus. Easy finandng? Expectto pay up to 20% interest. Read the fine print...you only get 160 lb. of beef. The rest is Uver and cheap hot dogs. The "more" will be bones and fat. Surprise! There'sa20« per pound processing charge. *Í®% N0 ^ Money Dowi 120dayí #am« a» casfv-No payirtetu lot —Wo Mentí o«fnance chanjes. tLOOK WHAT TOU’LL GET! Huny? They want you to buy before they leave town! Then how does the "guarantee" work? It doesn't! Confused by aU these daims? This kind of ad is meant to confuse you. SoÍTs r- S36,3^J 'Trim loss" will be more than you expect. You havc to make an appointment...they’ll check your credit to figure out how much to charge you. RED AN6US MEATS íhts consumer olert is sporoorefl tsy the thousonds of honest meot deoters across the U.S. and the ^mertcan Associatlon of Meat ’rocesots. This is BAIT & SWITCH style advertising The bait? Low prices. The switch? When you pay top $$$$ Don’t be fooled bv meat ads like this! (over) •Svona villandi auglýsingar eru tatdar ákaflega varhugaverðar og neytendur varaðir við þeim. AUGLYSENDUR! AKUREYRARBLAÐ fylgir DV miðvikudaginn 11. maí nk. (daginn fyrir uppstigningardag). Þetta verður í áttunda sinn sem sérstakt AKUR- EY.RARBLAÐ DV kemur út. Blaðinu verður dreift í hvert hús á AKUREYRI og næsta nágrenni og er því kjörinn auglýsingavett- vangur fyrir þá sem þurfa að koma skilaboðum til norðanmanna. AKUREYRARBLAÐIÐ er hluti af DV þennan dag og fer því að sjálfsögðu einnig um landið allt. Skilafrestur fyrir auglýsingar er til þriðjudags 3. maí og þætti okkur vænt um að heyra frá ykkur hið fyrsta ef áhugi er á að auglýsa í AKUREYRAR- BLAÐI. AUGLYSINGADEILD ÞVERHOLTI 11, SIMI 27022. samstarf við neytendur. BBB rekur símaþjónustu sem hægt er að hringja í og fá upplýsingar um nánast allt milli himins og jarðar. Þá er viðkom- andi settur í samband við segul- bandsupptöku sem gefur allar upplýsingar hvort sem það varðar einhver fyrirtæki, heilbrigðismál, lagamál eða hvað annað sem neyt- endur þurfa að fá upplýsingar um. BBB gefur einnig út skrá yfir fyrir- tæki sem eru þátttakendur í sam- starfinu og þeir geta mælt með. Landbúnaðurinn ekki niðurgreiddur Fulltrúar frá landbúnaðarráðu- neytinu voru einnig á staðnum. Við ræddum lengi við einn og spuröum m.a. hvort landbúnaðarvörur í Col- orado væru niðurgreiddar af ríkinu. Hann fullvissaöi okkur um að svo væri ekki. Það væri eingörigu fram- boð og eftirspum sem réði ferðinni þegar landþúnaðarvörur væm verð- lagðar. Þó sagði hann að sykur væri niðurgreiddur. Ráðuneytið sér um útgáfu á alls kyns fræðslu- og upplýsingaefni fyrir almenna neytendur. Við sáum m.a. upplýsingabæklinga um egg þar sem voru nákvæmar lýsingar á því hvemig góð egg eiga að vera. Hvern- ig á að geyma egg og hve langt geymsluþol þeirra er og hvemig egg er hagkvæmast fyrir neytandann að kaupa, um næringargildi eggja og fleira í þeim dúr. Þar mátti m.a. lesa að egg innihalda öli bætiefni nema C vítamín og einn- ig mörg nauösynleg steinefni. Egg má geyma í eggjabakka í 4-5 vikur í kæliskáp. Fulltrúinn upplýsti okkur um að salmonellubakteríur væru al- gengar í kjúklingaframleiðslunni en engin hætta væri á ferðum ef neyt- endur viðhefðu ákveðið hreiniæti og varúð við matreiðslu á kjúklingum. Einnig sagði fulltrúinn að engin hætta væri á að fá salmonellusmit úr eggjum ef skurnin væri heil. Óhætt er að neyta rétta úr eggjum með brotinni skum ef það er gert strax að lokinni matreiðslu. Þá var neytendum boðið upp á alls kyns skemmtilegar uppskriftir að eggjaréttum sem eggjasamlag Bandaríkjanna hefur staðiö straum af. í landbúnaðardeildinni var einnig hægt að fá allar hugsanlegar upplýs- ingar um kjöt og hvemig beri áö umgangast það. Eitt af því sem neyt- endur vom varaðir við voru auglýs- ingar um „kostakaup á ódým kjöti“ sem oft væm villandi og neytendur- enduðu með því að kaupa „köttinn í sekknum". Auðveldara er fyrir alls kyns svikahrappa hér aö pretta neyt- endur þar sem stærð landsins er svo mikil og auðvelt að komast undan aUri ábyrgð með því að flytjast burt úr fylkinu! Þó er ekki laust við að mann reki minni til svika og pretta heima á íslandi varðandi kjöt og ald- ur þess og gæði þótt þar sé óhægt um vik með undankomu. Á boðstólum voru upplýsingar um næringargildi kjöts og matreiðsluað- ferðir sem almennt eru notaðar. Sýnishorn vom af því hvernig kjöt er skorið fyrir almennan neytenda- markaö og hvaö hvert stykki heitir og hvaðan af skepnunni það er. Þá var einnig boðið upp á pésa með ýmsum uppskriftum og m.a. upplýs- ingum um hvernig hentugast sé að matreiða kjöt í örbylgjuofnum. Og ekki vantaði upplýsingar um pylsur COLORADO DEPARTMENT OF AGRICULTURE Dlvjsion of Animal Industry Poultry and Egg Section 1525 Sherman Street Denver, Colorado 80203 C0L0RAD0 CONSUMER EGG GRADES AND SPECIFICATIONS GRADE AA GRADE A GRADE B Minimum Requiremonta Minimum Requirements Minimum Requirements Strangar reglur gilda um flokkun eggja en hér eru egg seld í þrem flokk- um, AA, A og B, allt eftir gæðum. Egg eru mjög ódýr, oft er hægt að fá 24 egg fyrir dollar eða 40 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.