Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Side 36
36
Lífsstfll
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988.
Mikið og ósérhlífið starf
unnið af söfnuðunum
- Iitið við í hinni nývígðu Breiðholtskirkju
Breiðholtskirkja var vigð 13. mars og við það tækifæri var þessi mynd tekin. DV-mynd BG
Kirkjan er óvanaleg bygging og hafa sumir viljað likja henni við indjánatjald. Hún er þó mjög vistleg og hlýleg
að innan og hljómburðurinn þar er afar góður.
Kirkjan biður mann um að koma aftur
- segir Sveinbjöm Bjamason, formaður sóknamefndar Breiðholtskirkju
„Við erum að sjálfsögðu himinlif-
andi yfir þessari kirkju. Við erum
búin að bíða hennar lengi, eða bráð-
um í tíu ár. Hún er sérstæð í útlití
en fólk tekur eftir henni. Að innan
er hún mjög hlýleg og hijómburður-
inn alveg frábær, svo góður að viö
höfum eiginlega ekkert með hljóð-
magnara að gera fyrir sjálft kirKju-
skipið. Annars er kirkjan þannig að
hún biður mann aö koma aftur, svo
vinaleg er hún,“ sagði Sveinbjörn
Bjamason, formaður sóknamefndar
Breiðholtssóknar.
Sveinbjöm er búinn að vera for-
maður nefndarinnar í rúmt ár og tók
við starfmu skömmu eftir að nýi
presturinn, séra Gísli Jónasson, tók
við embættí. En Sveinbjörn hafði
áður verið í safnaðamefnd frá árinu
1977.
„Ég er búinn að búa 1 hverfinu
samfellt frá árinu 1974 en áður hafði
ég búið hér í eitt og hálft ár, eða frá
árinu 1970. Ég er því einn af frum-
byggjunum hér.“
Misjafnlega trúuö
- Hvers vegna tekurðu þátt í safnað-
Sveinbjörn í kjallara Breiöholtskirkju. Hér verður safnaðarheimili Breið-
holtssóknar i framtíðinni. Eins og sjá má eru nokkur handtökin eftir ennþá.
arstarfi? Er það vegna þess hvað þú ef vera skyldi í skátastarfmu þegar
ert trúaður? ég var unglingur. Ég og flölskylda
„Ja, erum við ekki öll trúuö? mín mættum þó nokkuð reglulega í
Kannski misjafnlega mikið! Ég hef messur á sunnudögum. Einn kunn-
alltaf haft áhuga á kirkjumálum þótt ingi minn, sem var í safnaðarstjóm,
sá áhugi hafi lítið komið upp á yfir- tók eftir því og spurði mig hvort ég
borðið á mínum yngri ámm, nema væri ekki til í að taka þátt í safnaðar-
starfinu. Ég var til í það og síðan hef
ég verið á kafi í störfum safnaðar-
nefndar."
- Þér hefur aldrei komið til hugar
að gerast prestur?
„Eiginlega aldrei á meðan ég var
ungur. En eftir að ég fór að starfa
hér fyrir söfnuðinn hvarflaði þetta
að mér. En þá hafði ég orðið hvorki
tíma né aðstöðu til aðjara út í langt
skólanám.“
Messur gefa mér mjög mikið
- Sækir þú allar guösþjónustur í
þinni kirkju?
„Ég fer mjög reglulega í kirkju en
missi kannski af einni og einni. Þó
held ég að mér hafi tekist að mæta
við flestallar messur í kirkjunni okk-
ar.
Það gefur mér mjög mikið að mæta
í messu. Þetta er afskaplega afslapp-
andi eftir erflöa viku. Maður er
andlega þreyttur í vikulok því þaö
er ýmislegt sem veldur manni hugar-
angri. En í messunni öðlast ég frið
og afslöppun og kem sem nýr og betri
maður út úr kirkjunni.
Það sama má segja um starfið í
Sveinbjörn Bjarnason, formaður
sóknarnefndar Breiðholtssóknar.
Hann tekur stundum að sér hlutverk
meðhjálpara og hér sýnir hann eitt
af embættisverkum meðhjálparans:
Að kveikja á kertunum, að athuga
hvort allt sé til staðar á altarinu og
undirbúa messuna.
DV-myndir KAE
söfnuðinum. Það er oft í ýms hom
aö líta og safnaöamefndin þarft oft
að hyggja að mörgu en starfiö gefur