Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
5
Fréttir
Uppsögn Ingva Hrafns:
Röð atvika á
löngu tímabili
segir útvarpsstjóri
Ingva Hrafni Jónssyni, fréttastjóra
Sjónvarps, var sagt upp störfum í
gær „eftir röö atvika á löngu tíma-
bili,“ að sögn útvarpsstjóra. í upp-
sagnarbréfmu, sem Ingva Hrafni var
afhent í gær, var þess óskað að hann
léti af störfum nú þegar og hefur
hann gert það. Settur fréttastjóri nú
er Helgi H. Jónsson, varafréttastjóri
innlendra frétta.
„Uppsögnin var mín ákvörðun sem
útvarpsstjóra, tekin að vandlega at-
huguðu máli, eftir röð atvika á löngu
tímabili. Með hagsmuni Ríkisút-
varpsins og fréttastofu Sjónvarps í
huga var óhjákvæmilegt annað en
Ingvi Hrafn léti af störfum. Var þess
óskað í uppsagnarbréfinu að hann
léti af störfum nú þegar og hefur
hann gert það,“ sagði Markús Öm
Antonsson í samtali við DV.
-JBj
Starfsmannafundur á fréttastofu í dag:
GARÐURINN ÞINN VERÐUR
„GÖTUPRÝÐI"
EF ÞÚ KLIPPIR LIMGERÐIÐ
MEP
M-l'í-WT
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16, s. 691600.
Markús útskýrir
brottvikninguna
Stjóm Félags fréttamanna, sem
hefur innanborðs fréttamenn starf-
andi hjá fréttastofum Sjónvarps og
Útvarps, ákvað í gær að fresta um-
ræðu um brottvikningu Ingva
Hrafns Jónssonar, fréttastjóra Sjón-
varps, þar til Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóri hefði skýrt ástæður
brottvikningarinnar fyrir starfs-
mönnum fréttastofu Sjónvarps á
hádegisfuhdi með þeim í dag.
Árni Snævarr, varaformaður Fé-
lags fréttamanna, sagði í samtali við
DV að félagið hefði ekki fengið skýr-
ingar á brottrekstrinum, hvorki frá
Ingva Hrafni né útvarpsstjóra. Hins
vegar myndi félagið væntanlega láta
í sér heyra strax og þær lægju fyrir.
Ami Snævarr sagöi aö strax eftir
brottvikningu Ingva Hrafns hefði
verið óskað eftir því við Markús Öm
Antonsson að hann hitti starfsmenn
fréttastofunnar að máli og skýrði
brottvikningu fréttastjórans. Út-
varpsstjóri tilkynnti að hann myndi
ekki koma á Sjónvarpið þar sem
ástæður brottvikningarinnar væra
augljósar. Síðdegis í gær varð Mark-
ús Öm við ítrekuðum beiðnum
varafréttastjóra innlendra frétta,
Helga H. Jónssonar, og stjómar-
manna Félags fréttamanna um að
koma á fund í hádeginu í dag með
fréttamönnum og öðram starfs-
mönnum fréttastofunnar.
-JBj
Hlýtur að vekja furðu
segir varaformaður félags fréttamanna
„Það hlýtur að vera alvarlegt ef
fréttamanni eða fréttastjóra er vikið
úr starfi vegna skoðana sem hann
lætur í ljós opinberlega," sagði Árni
Snævarr. varaformaður Félags
fréttamanna í samtali við DV í gær.
„Ef þetta er ástæðan fyrir brott-
vikningu Ingva Hrafns hlýtur það að
vekja furðu og spumingar um for-
dæmisgildi. Strax og skýringar hafa
fengist mun Félag fréttamanna
væntanlega láta frá sér heyra og
starfsmenn fréttastofu munu að
sjálfsögðu ráða ráðum sínum. -JBj
Þýski fiskmarkaðurinn:
Mistókst að koma
á öðra ormafári
„Tvö blöð hér um slóðir reyndu
að vekja umræðuna um orma í fiski
upp aftur rétt fyrir páskana en það
mistókst algerlega og málið lognaðist
út af,“ sagði Samúel Sveinsson fisk-
umboðsmaður í Þýskalandi í samtali
við DV. Hann sagði aö nákvæmlega
engin viðbrögð hefðu orðið við þess-
um skrifum.
Eins og fólk rekur ef til vill minni
til hrundi sala og þá um leið verð á
fiski á þýska markaðnum í fyrra þeg-
ar sjónvarpsstöð þar í landi sendi út
þátt um orma í fiski og sögur af fólki
sem hefði veikst af því að borða
danska síld með ormum í. Þetta hafði
þær afleiðingar að sala á fiski var í
lágmarki í marga mánuði og fisk-
verðið eftir því.
Samúel sagði að fiskverð eftir ára-
mótin og alveg fram yfir páska-hefði
sýnt að ormafárið svonefnda væri
gengið yfir og bæði fisksalan og verð-
ið væri komið í eðlilegt horf á ný.
-S.dór
Kona kærði nauðgun
Kona kærði mann fyrir nauðgun
um helgina. Hún segir hann hafa
nauðgað sér í herbergi í vesturbæn-
um í Reykjavík. Lögreglan handtók
manninn skömmu eftir að kæran
barst. Hann neitar alfarið að hafa
nauðgað konunni.
Manninum var sleppt eftir yfir-
heyrslur og er málið nú til rannsókn-
ar hjá Rannsóknarlögreglu ríksins.
-sme
FRABÆR AMERISKUR JEPPI
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Frá kr. 1186.000
Útborgun 25%, eftirstöðvar
á allt að 30 mánuðum.
Opið:
Laugardaga frá 10 - 17
Sunnudaga frá 13 - 16
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
Ford í Framtíð við Skeifuna
Sími 685100
Vél 2, 9L V-6 m/tölvustýrðri innspýtingu og kveikju.
Aflhemlar, diskar að framan,
skálar að aftan m/ABS læsivörn.
5 hraða skipting m/yfirgír.
Vökvastýri.
Krómaðir stuðarar.
Toppgrind.
Hjólbarðar P205/75R x 15
Varahjólsfesting ásamt læsingu og hlíf.
Felgu krómhringir.
Skrautrönd á hlið.
Stórir útispeglar.
Vönduð innrétting m/tauáklæði á sætum, teppi á gólfi.
Spegill í hægra sólskyggni.
Framdrifslokur.
Útvarp AM/FM stereo m/kassettuspilara, 4 hátölurum
og sjálfleitun.
Skyggðar rúður.
Öryggisbelti í fram og aftursætum. ’
Skipt aftursætisbak.
Þurrka, sprauta og afþíðing f. afturrúðu.