Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. Spumingin Ertu byrjuð/aður að hamstra fyrir verkfall verslunarmannna? Ragnar Konráðsson: Nei, ég ætla aö sjá til með það. Ég er ekki alveg klár á hvort verkfallið skellur á ...en það getur allt skeð. Ásta Loftsdóttir: Nei, ég er ekki byrj- uð, en maður hamstrar örugglega eitthvað því ég geri ráð fyrir að verk- fall skelh á og standi í einhvern tíma. Ingibjörg Þórarinsdóttir: Nei, það er á móti mínum lífsstíl að hamstra og ég geri það aldrei. Síðan kemur það bara í ljós hvort það kemur sér illa. Guðrún Sveinsdóttir: Nei, ég þarf þess ekki þvi ég vinn í búð. Erla Magnúsdóttir: Nei, ég hef ekki haft tíma til þess og auk þess er ég á móti hamstri. Ingvar Þór Ólafsson: Nei, ég fylgist ekkert með þessu því þetta snertir mig svo lítið. Ég er á togara og verð líklegast úti á sjó meirihluta þess tíma sem fer í þetta verkfall. Lesendur Skákeinvígi Jóhanns og Karpovs: Akureyri ,,af öllum stöðum"! Guðl. Björnsson hringdi: .Skákeinvígi, sem átti að fara fram á þessu ári, er nú til umræðu í skákheiminum og jafnvel verið að ræða um að það fari ekki fram fyrr en á næsta ári, einkum vegna þess að Karpov telur sig ekki geta teflt í ágúst og september vegna annars meistaramóts. En það er annað sem ég vek at- hygli á og það er að ég tel ekki nokkra ástaeðu fyrir íslendinga að vera að gera tilboð um mótsstaö eða verðlaun, þvi þetta einvígi veröur aldrei haldið hér á landi og . dettur engum heilvita manni slíkt í hug. - Hvers vegna? Jú, einfald- lega vegna þess að það er svo eindæma leiðinlegt að vera héma. (bæði andrúmsloft og aðstæður ófullnægjandi) og flestir þeir út- lendingar sem til þekkja mundu „Frekar vlldi ég vera i Seattle," segir hér. - Frá borginni Seattle á vest- urströnd Bandarfkjanna. ekki sætta sig viö það. Þá á ég ekki við skákmennina sjálfa heldur fremur við allt það starfslið, blaða- menn og aðra, sem fylgir svona mótum. Og þótt Akureyri sé sögö vera enn „inni í myndinni", eins og ein- hvers staöar sagði, þá er bara Akureyri ekki staður til þess að halda alþjóðlegt mót á og heldur ekki Reykjavík ef út í það er farið. Ég segi bara eins og Guörún Á. Símonar heitin sagði einhvem tima um Kópavog - Akureyri, „af öllum stöðum"! Nei, frekar vildi ég vilja vera í Seattle í Bandaríkjunum, Metz í Frakklandi eða hvar sem er annars staðar, enda held ég að eng- inn, hvorki íslenskir aðstandendur né útlendir, mundi vilja vera hér meðan á skákeinvíginu stendur. Launahækkanir og vöruverð: Allt veldur verðhækkunum Skattahrammurinn upp á matborðið Lúðvig Eggertsson skrifar: Ég tel Alþýðuflokkinn vera að þurrkast út, svo mikil er andúð al- mennings á „kerfisbreytingum" leiðtoganna. Allar ríkisstjórnir, fyrr og síðar, hafa leitast við að halda niðri verði lifsnauðsynja. Jón Bald- vin setti 25% skatt á matvörur, einmitt þegar alþýðufólk barðist mjög í bökkum. Um leið tók hann að skattleggja lágtekjur með sömu skattprósentu og hátekjur. Jón Baldvin lofaði að afnema rán- .vexti - og víkja Jóhannesi Nordal. Þess í stað gerði hann handbendi hans að bankamálaráðherra og hefir sá látið vaxtaokur viðgangast, sem ekki em dæmi til um áöur. Kórónuna ber svo Jóhanna Sigurð- ardóttir, sem grætur (þurrum táram) yfir 8,5% raunvöxtum íbúðarbyggj- enda, en lætur sig engu varða 24% verðbótaþátt vaxta. Það er að hennar mati í lagi að heimta okurvexti, ef það er gert í nafni vísitölu, þótt Jón Baldvinsson, stofnandi og for- vígismaður Alþýðuflokksins. verkamenn fái enga vísitölu á sitt kaup. Það er hlálegt að sá sem er að eyði- leggja Alþýðuflokkinn skuli bera nafn stofnanda og forvígismanns hans, Jóns Baldvinssonar. - Sýnið þó manndóm, kratar, leysið flokkinn upp áður en fólkið gerir það fyrir ykkur. auglýsingakostnaður legðist á vöruverðið. Auðvitaö - og nema hvað! Það sem almenningur getur látið þessa gauka, sem alltaf eru á.móti versl- un og viðskiptum, plata sig og innprenta hjá sér. Jú, auðvitað er auglýsingakostnaður tekinn með í dæmið þegar verðútreikningar eru gerðir. Én svo er líka með allt ann- að, þar með talin vinnulaun versl- unar- og skrifstofufólks og þar verða launakröfur þær, sem versl- unarfólk gerir nú, ekki undan- skildar. Hins vegar má líka segja að aug- lýsingar geti lækkað vöruverð sem launakostnaður gerir aldrei. Ef vara er vel auglýst og hún selst eins og heitar lummur kemur að því að verðið lækkar smám saman eða hækkar ekki eins mikið og önnur vörutegund sem auglýsing- ar hafa lítil áhrif haft á. - Auglýs- ingar geta því haft tvenns konar áhrif, til hækkunar - eins og allur annar kostnaður við vöruna hefur - og líka til lækkunar. Menn skyldu muna að launakröf- ur VR-fólks nú, um að lágmarks- laun veröi kr. 42 þúsund á mánuði, eiga eftir að koma heldur betur við pyngju almennings í landinu. Þetta verður eitt stærsta stökk og launa- skrið sem gerst hefur um langa hríð og á eftir að hafa áhrif á flesta þætti í þjóðarbúinu ef af verður. frá Kátumaskínu Ragnars Grímssonar í grein Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Alþýðubandalagsins, sem birtist I DV 14. apríl, er að flnna svo dæmalausar rangfærslur og ósann- indi að ekki verður viö unað. í þessari grein segir Ólafur Ragnar: „Rlkissjóður er látinn borga kostn- aðinn af því að gylla ráðherrana í augum almennings. Auglýsingastofan, sem annaðist áróður Alþýðuflokksins í síðustukosningum, hannar dýrð- ina og fær að launum vænar fúlgur úr ríkiskassanum... Pjármálaráöherra, sem spyr í heilsíöuauglýsingum „Hvar er bruðlað í ríkisrekstrinum?“ hefur komiö sér upp sérstakri maskinu - auglýsinga- stofunni Kátumaskinunni - til að geta látið ríkið borga flokkspólitískan áróöur Alþýðuflokksins... Auglýsingastofan hefur gert „góðan deal" við ríkið Hún fær í sínar hendur dágóðan hagnað. Alþýöuflokkurinn hefur líka náð í „góöan de- al“ við auglýsingastofuna. Innistæður vegna næstu kosningabaráttu hækka í krafti viðskiptalegrar góðvildar flokksins hjá Kátumaskínunni. Og ríkið borgar." Kátamaskínan mótmælir þessum dylgjum Ólafs Ragnars, þar sem hann gefur í skyn að verið sé að hygla og gefa eftir auglýsingakostnað Al- þýöuflokksins frá síðustu kosningum á kostnað skattborgaranna. Reikn- ingar Kátumaskínu til Alþýðuflokksins voru að mestu greiddir fyrir kosningar og eftirstöðvamar fyrir júnflok 1987. Þetta er í annað sinn á örfáum dögum sem þurft hefur að leiðrétta form- annmn. Virðingarfyllst, f.h. Kátumaskínunnar, Þorvaldur Ó. Guðlaugsson E. Björnsson skrifar: Nýlega var umræðuþáttur, einn af mörgum, í einni af" útvarpsstöðv- unum. Þar var verið að óskapast mikið yfir því að auglýsingar væru eitt af því sem helst orsakaði hækk- að vöruverð, eða a.m.k. væri mjög ríkjandi, og þetta þyrftu vesalings neytendumir aö greiða því allur Launakröfur verslunarfólks eiga eftir að koma við pyngju aimennings, segir í bréfinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.