Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1988. Lífestfll Ólöf Ananiasdóttir telur það bæði hafa haft kosti og ókosti i för með sér að fá svo mikla athygli sem raun bar vitni í hennar lifi. „Millamir" í lottóinu: Oft er talaö um að peningamir fari alltaf þangaö sem þeir voru fyrir hendi. Ekki er ætlunin að hafa um þaö mörg orð heldur kanna lítillega hvar vinningar hjá íslenskri getspá hafa hafiiað síðan lottóiö fór af stað fyrir um einu og hálfu ári. Fjölmargir hafa tekið þátt í þessum einfalda leik og beðið spenntir eftir að dráttur fari fram í sjónvarpinu á laugardagskvöldum éftir fréttir. Flest- ir hafa sinn draum um aö detta nú ærlega í lukkupottinn. Sjálfsagt hafa alhr sína drauma, hvort heldur þeir spila með eða ekki. Skyldi gangur lífsins breytast eitthvaö verulega þegar vinningurinn kemur? Hér á síð- unni fara viðtöl við nokkra vinningshafa „þess stóra“. Einn vinningshafmn sagði það vera aöalatriöið aö vera með og styrkja gott málefni. Þannig vinna aHir saman og enginn tapar. -ÓTT Fékk 3,2 milljónir: „Bæði kostir og ókostir" Á annarri viku lottósins haustiö 1986 kom stór fjárhæð í hendur ný- orðinnar ekkju, þriggja barna móður á Akureyri. Yngsta bamið var ný- fætt þegar faðirinn lést í slysi. Tveimur og hálfum mánuði seinna kom stóri vinningurinn í hlut Ólafar Ananiasdóttur sem var í fæðingaror- lofi og sá aðeins fram á basl og erfiðleika eftir lát eiginmannsins. „Það má segja að ég hafi verið dof- in tilfinningalega þegar ég gekk í gegnum þetta. Gerði mér ekki grein fyrir þessu öllu fyrr en löngu seinna. Þetta var að vissu leyti annað sjokk, þó vissulega hafi það verið jákvætt. Það vora þegar þarna var mikil um- brot í lífi mínu. Nýfætt barn, missir eiginmanns og síðan þetta með allri þeirri athygli sem þessu fylgdi. - Virkaði vinningurinn sem aukaá- lag á þig? „Já, tvímælanlaust þvi ég var svo tætt eftir lát eiginmannsins. Ég fór suður ásamt mágkonu minni i tilefni af þessum vinningi. Þar voru blaða- menn og aðrir sem gjama vildu gera þessu skil. Mér finnst ennþá aö ég hafi upplifað þetta eins og draum. Þannig virkaði ferðin einnig á mág- konu mína. Henni fannst ég í raun- inni ekki á staðnum. Var bara í öðrum hugarheimi. Mér finnst þetta . ennþá þegar litið er til baka.“ Bæði kostir og ókostir - Nú er orðið nokkuð langt um lið- ið síðan þú fékkst þennan vinning. Þegar þú lítur til baka, hvernig finnst þér þetta þá hafa komið út? „Vinningurinn var yndislegur út af fyrir sig en þetta hefur bæði kosti 'og ókosti. í bæ eins og Akureyri, þar sem flestir kannast hver við annan, beinist athygli að manni eins og t.d. á böllum. Þá era alltaf einhveijir sem veitast að mér og vilja forvitnast um hvernig peningunum var ráðstafað og leggja eitthvað til málanna.“ - Hugsar þú um hvemig líf þitt væri nú ef þú hefðir ekki dottið í lukku- pottinn? „Jesús minn! Þá væri þetta búið að vera óttalegt basl. Þessi vinningur hefur gert mér það kleift að vera heima hjá börnunum í allan þennan tíma. Núna tíl dæmis er ég að fara að vinna úti og það er eingöngu vegna þess að mig langar til þess. Ef þessir peningar hefðu ekki komið tíl hefði ég orðið að fara strax og vinna tíl þess að sjá fyrir okkur. Þetta hefur, gengið alveg prýðilega. Hins végar er í mínu tílfelli ekki hægt að segja að eitt komi í annars stað.“ -ÓTT Raðir sem þessi eru algengar um land allt rétt áður en dregið er i lottói í Sjónvarpinu á laugardagskvöldum. Háir lottóvinningar tvisvar í sömu götuna í Vestmannaeyjum Svo einkennilega vill tíl að af öllum götum á landinu auk allra húsa í dreifbýli hafa tveir háir lottóvinning- ar hafnað í sömu götunni í Vest- mannaeyjum. Ekki vitum við hvprt fasteignaverð hefur hækkað í Ás- hömrum í Vestmannaeyjum vegna þessa, en víst er að aldrei era tilvilj- anir langt undan. Þorbjörg Theo- dórsdóttir, annar þessara heppnu Eyjabúa, fékk tæpar þijár milljónir í sinn hlut þegar dregið var í lottóinu. Tvær mínútur í lokun Þorbjörg sagði að hún hefði gert sér grein fyrir að' sölustaðir lottómiða væra í þann mund að loka. „ Ég sendi strákinn minn, 10 ára, út og sagði honum að kaupa tvo miða eins og við eram vön að gera. Ef hann næði ekki að fylla þá út átti hann að láta vélina velja tölurnar. Það varð síðan úr að vélin valdi tölurnar. Við lottuðum bara af og tíl svo þaö var engin regla á þessu, enda kom þessi vinningur svo á óvart sem unnt er. En hann kemur sér auðvitað vel, því ég er ein með tvö börn. Það hafa engar meiriháttar breyt- ingar orðið á lífi okkar. Ég vinn enn á sama stað í Kaupfélaginu. Það tek- ur einhvem tíma að sjá tíl hvað gert verður við peningana. Ég ávaxta þá á meðan. -ÓTT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.