Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. Afmæli Margrét Jónína Karlsdóttir Margrét Jónina Karlsdóttir frá Bjargi í Miðfirði er níutíu og fimm ára í dag. Hún fæddist á Bjargi í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu, fyrsta barn þeirra hjóna Karls Á. Sigur- geirssonar og Ingibjargar Jóhann- esdóttur, er þá nýverið höfðu byrjað þar búskap sem þau síðan ráku í meira en hálfa öld með mikl- um myndarbrag. Þau Bjargshjón eignuðust auk Margrétar flmm önnur böm, en þau voru: Vigdís, f. 12.10.1895; Páll, f. 8.11.1896; Olöf, f. 22.5.1898; Sigur- geir, f. 29.3. 1908; og Jóhannes, f. 22.5. 1909. Eru þau nú öll látin. Föðurforeldrar Margrétar voru af þingeyskum ættum. Afi hennar var Sigurgeir Pálsson Jóakimsson- ar, er bjó í Svartárkoti í Bárðardal, en fluttist síðar til Ameríku, og er frá honum komin Bardalsættin í Winnipeg. Kona Sigurgeirs var Vigdís Halldórsdóttir af Hraun- kotsætt í Þingeyjarsýslu. Móðurætt Margrétar var úr Húnavatnssýslu. Amma hennar var Ólöf Jónsdóttir Jónssonar hreppstjóra í Hindisvík, en maður hennar var Jóhannes Guömunds- son guU- og silfursmiður á Auð- unnarstöðum í Víðidal, ættaður frá Hvammi í Vatnsdal. Margrét ólst að mestu upp í for- eldrahúsum til sautján ára aldurs, en fór þá til Ameríku, þar sem hún dvaldi næstu þrjú árin hjá foöur- frændum sínum í Winnipeg, einkum Halldóri bóksala og Arin- birni Bardal útfararstjóra, sem báðir reyndust henni einkar vel. Lagöi hún þar m.a. stund á tónlist- arnám og þá einkum píanóleik, en eftir heimkomuna lagði hún stund á tónlistarkennslu um skeið. Margrét stundaði nám í Hús- mæðraskóla Akureyrar 1916. Ári síðar giftist hún Axel VilhelmSsyni bókhaldara á Akureyri, en hann lést eftir tíu ára hjónaband. Margrét giftist svo seinni manni sínum, Arinbirni Árnasyni frá Neðri-Fitjum í Víðidal, sem um árabil var umsjónarmaður Mela- skólans í Reykjavík. Þau hjónin bjuggu um fjörutíu ára skeið á Birkimel 6 í Reykjavík, en dvelja nú á vistheimilinu Seljahlíð við Hjallasel 55 í Reykjavík. Margrét eignaðist sex börn. Þau eru: Anna, f. 24.8.1918, ekkja Sigur- Margrét Jónina Karlsdóttir. geirs Karlssonar, fv. b. á Bjargi, en þau eignuðust fjögur börn; Karl, f. 7.8.1920, en hann lést rúmlega tví- tugur; Páll strætisvagnastjóri, f. 29.6. 1922, kvæntur Sigríði Hall- dórsdóttur og eiga þau þrjú böm; Sigurgeir vélstjóri, f. 27.5. 1926, kvæntur Jónínu Guömundsdóttur og eiga þau tvö böm, en auk þess átti Sigurgeir tvö börn áður; Grett- ir harmónikkuleikari, f. 2.5. 1931, kvæntur Emu Geirsdóttur, en þau eiga fjögur böm; Ámi, fiðlu- og orgelleikari, f. 8.9. 1934, kvæntur Dóru Lydíu Haraldsdóttur og eiga þau þrjú börn. Jónína Sigríður Bjarnadóttir Frú Jónína Sigríður Bjarnadótt- ir, til heimilis að Birkimel 8, Reykjavík, er níræð í dag. Jónína fæddist að Sandhólaferju, en foreldrar hennar voru þau Sig- ríður Sigurðardóttir í Ásmúla, f. 18.7.1866, og Bjarni Fillippusson frá Sandhólaferju, f. 17.4. 1856. Jónína giftist Guðjóni Bárðarsyni símamanni, en hann fæddist að Króki í Holtum, 5.11. 1883, en lést 19.2. 1963. Systkini Jónínu voru átta og er hún ein eftirlifandi. Þau voru: Margrét, f.30.8. 1888; Fillippus, f. 23.11. 1890; Gunnar, f. 3.8. 1893; Gunnar, f. 13.6. 1895; Guðrún, f. 21.10. 1896; Ágústa, f. 11.3. 1900; og Guðjón, f. 10.11. 1904. Jónína á þrjú börn: Guðrún Ing- veldur, húsmóðir og starfsmaður hjá Pósti og síma í Reykjavík; Margrét, húsmóðir í Reykjavik; og Leifur, símamaöur í Reykjavík. Barnabörn Jónínu eru níu talsins. Fram til þessa hefur Jónína verið heilsugóð og gegnt öllum sínum störfum, en nú sem stendur liggur hún á Landakotsspítala. Börn, tengdabörn, barnaböm og langömmubörn senda kærri móð- ur, tengdamóður, ömmu og langömmu hugheilar afmælis- kveðjur með aðdáun og virðingu. Jónína Sigríður Bjarnadóttir. Jón Jónsson Jón Jónsson, Bakkagerði 7, Minna-Núpi, Brynjólfssonar, b. á Reykjavik, er attræður í dag. Jón , er fæddur í Þjórsárholti og ólst þar upp. Hann var lengi ferjumaður á Þjórsá en fluttist þá til Reykjavíkur og var leigubílstjóri á Hreyfli 1944-1987. Jón hefur verið afkasta- mikill áhugaljósmyndari. Kona Jóns er Bergþóra Jónsdóttir, f. 4. nóvember 1905, í Tröllakoti í Suð- ur-Þingeyjarsýslu. Jón eignaðist sjö systkini, þau eru: Gísli, f. 7. maí 1909, b. í Þjórsárholti; Ingibjörg, f. 19. júni 1910, saumakona í Rvík; Halldóra, f. 15. júni 1911, gift Hauki Kristóferssyni leirmunasmið í Rvík; Þóra, f. 25. apríl 1914, d. 1968, bústýra Gísla bróður síns; Mar- grét, f. 9. október 1916, d. 24. júlí 1943; Elísabet, f. 4. júlí 1921, gift Guðmundi Árnasyni, verslunar- manni í Rvík. Bróðir Jóns sam- feðra var Halldór, f. 3. janúar 1912, d. 25. október 1929. Foreldrar Jóns voru Jón Jóns- son, b. í Þjórsárholti í Gnúpverja- hreppi, og kona hans, Helga Stefánsdóttir. Jón var sonur Jón, b. á Minna-Núpi, bróðir Brynjólfs, fræðimanns og skálds frá Minna- Núpi. Jón var sonur Jóns, b. á Minna-Núpi, Jónssonar Thorla- cius, klausturhaldara og b. á Stóra-Núpi, Brynjólfssonar Thorlacius, sýslumanns á Hlíðar- enda í Fljótshhð, Þórðarsonar, biskups í Skálholti, Þorlákssonar, biskups á Hólum, Skúlasonar. Móðir Þorláks var Steinunn Guð- brandsdóttir, biskups á Hólum, Þorlákssonar. Móðir Brynjólfs á Minna-Núpi var Þórunn Halldórs- dóttir, biskups á Hólum, Brynjólfs- sonar. Móðir Jóns Brynjólfssonar var Þóra Erlingsdóttir frá Syðra- Langholti, Ólafssonar og Helgu Jónsdóttur. Móðir Jóns Jónssonar á Minna- Núpi var Margrét Jónsdóttir, b. og hreppstjóra á Baugsstöðum í Stokkseyrarhreppi, Einarssonar og seinni konu hans, Sesselju Ámundadóttir, smiðs og málara í Syöra-Langholti, Jónssonar. Móðir Jóns Jónssonar í Þjórsárholti var Margrét Jónsdóttir, b. í Minni- Mástungu, Guðmundssonar og konu hans, Amþrúðar Einarsdótt- ur, b. í Laxárdal í Eystrihreppi, Jónssonar, ættfoður Laxárdalsætt- arinnar. Jón Jónsson. Helga var dóttir Stefáns, b. á Leirubakka á Landi, Eiríkssonar, b. á Litlalandi í Ölfusi, og kom niðjatal Eiríks út 1958. EiríKur var sonur Ólafs, Sæmundssonar, b. á Galtafelli í Hrunamannahreppi, Tómassonar, b. á Tjörvastöðum á Landi, Bjarnasonar, prests í- Fellsmúla, Helgasonar. Móðir Ei- ríks var Sigríður Einarsdóttir, b. og lögréttumanns á Galtafelli, Ól- afssonar. Móðir Stefáns var Helga Jónsdóttir, b. á Vindási á Landi, Bjarnasonar. Móðir Helgu var Ingi- björg Jónsdóttir, b. á Fellsmúla á Landi, Þórðarsonar. Kristín Þorgeirsdóttir Kristín Þorgeirsdóttir, Keilufelli 20, Reykjavík, verður níræð á morgun, sumardaginn fyrsta. Kristín fæddist að Stöðlakoti í Fljótshlíð, dóttir Þorgeirs Guðna- sonar frá Torfastöðum í Fljótshlíð, b. að Stöðlakoti, og Höllu Björns- dóttur. Kristín ólst upp í Stöðlakoti en lærði ung fatasaum hjá Andrési klæðskera í ReyKjavík. Þá vann hún á Breiðabólstað áður en hún giftist. Fyrri maður Kristínar var Ágúst frá Steinmóðarbæ, sonur Bjarna Sigurðssonar og Jónínu Sigurðar- dóttur. Kristín og Ágúst eignuðust einn son, Guðna Þorgeir, rafeinda- virkja í Reykjavík. Þau hjónin bjuggu í Miðeyjarhólmi í Austur- Landeyjum en Kristín missti mann sinn eftir skamma sambúð. Seinni maður Kristínar var Magnús, b. að Dufþaksholti í Hvol- hreppi, sonur Ólafs Þorsteinssonar og Höllu Þorsteinsdóttur. Sonur Kristínar og Magnúsar er Ágúst Kristinn, forstöðumaður Tré- smíðaverkstæðis Kaupfélags Ámesinga, en Magnús er látinn fyrir allmörgum ámm. Barnaböm Kristínar eru nú orð- in tíu og bamabamabörnin eru fjögur. Krlstín Þorgeirsdóttir. Haraldur Sigmundsson Haraldur Sigmundsson bókari, Kleppsvegi 34, verður sextugur á morgun, sumardaginn fyrsta. Haraldur fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð og ólst þar upp en hélt tuttugu og eins árs til Reykjavíkur í atvinnuleit eftir að hafa lokið prófi frá VÍ sama ár. Haraldur hafði starfaö við fyrir- tæki föður síns fyrir vestan en faðir hans rak verslun og sá um sam- göngur bæði á sjó og landi. í Reykjavík var Haraldur bókari og fulltrúi hjá Olíuverslun íslands hf. frá 1949-77 en þá gerðist hann fipr- stöðumaður Sjúkrastöðvar SÁÁ í Reykjadal í Mosfellssveit þar sem hann starfaði tæp tvö ár. Hann starfaði síðan tvö og hálft ár hjá Álafossi í Mosfellssveit, tæpt ár hjá Kexverksmiðjunni Frón og rúmt ár hjá Flugleiðum hf. Haraldur hefur svo unnið heima við en hann hefur ekki verið heilsuhraustur og hætti útivinnu vegna veikinda. Kona Haraldar er Halldóra frá Bakkafirði, f. 7.7. 1934, dóttir Þór- halls Jónassonar, kennara og útvegsb. sem lést 7.5.1964, og Dýr- leifar Þorsteinsdóttur húsmóður sem lést 211.1960. Börn Haraldar og Halldóru era: Erna húsmóðir, f. 25.9. 1955, gift Þorvaldi Bjömssyni, fulltrúa veiði- stjóra, en þau eiga tvö börn, Halldóru og Val Örn; Haukur Þór húsasmiöur, f. 16.10.1959, kvæntur Guðríði Guðjónsdóttur íþrótta- Til hamingju 90 ára Ingibjörg Sigurðardóttir, Skjól- vangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi, er níræð í dag. Sumarlína Eiríksdóttir, Holtsgötu 17, Reykjavík, er níræð í dag. 80 ára Sara Magnúsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnaríirði, er áttræð í dag. 75 ára Katrín Jónsdóttir, Firði 7, Seyðis- firði, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára_______________________ Jóna S. Kristófersdóttir, Klepps- vegi 120, Reykjavík, er sjötug í dag. Aðalbjörg Þorgrímsdóttir, Holti I, Torfalækjarhreppi, er sjötug í dag. 60 ára____________________ Svava Pálsdóttir, Hrafnkelsstöðum III, Hrunamannahreppi, er sextug í dag. Haraldur Sigmundsson. kennara en þau eiga einn son, Guðjón; Kristín Rut, hjúkranar- fræðingur og ljósmóðir, gift Einari Ingvarssyni símvirkja en þau eiga einn son, Viktor; Dýrleif Fríða, skrifstofustúlka hjá JL-húsinu, f. 24.12. 1967, en hún býr í foreldra- húsum; og Elísabet Lilja, f. 24.1. 1976, í foreldrahúsum. Foreldrar Haraldar vora Sig- mundur Jónsson kaupmaður, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 12.12. 1974, og Fríða Jóhannesdóttir hús- móðir, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 2.1.1978. Sigmundur var sonur Jóns Jóns- sonar, b. í Villingadal á Ingjalds- sandi, en Fríða var dóttir Jóhannesar Ólafssonar, b. og al- þingismanns í Haukadal, af Amardalsættinni. með daginn Óskar Halldórsson, Syðri-Olfsstöð- um, Austur-Landeyjum, er sextug- ur í dag. Birna Friðgeirsdóttir, Gunnólfs- götu 18, Ólafsfirði, er sextug í dag. Ingibjörg Gísladóttir, Unufelh 4, Reykjavík, er sextug í dag. 50 ára ________________________ Gissur Þór Sigurðsson, Langholts- vegi 174, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Hólmfríður Snorradóttir, Holts- götu 1, Njarðvíkum, er fimmtug í dag. Karl Magnús Gunnarsson, Hamra- gerði 30, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Sigurður Ingólfsson, Bleikjukvísl 16, Reykjavík, er fimmtugur í dag. 40 ára Steingrímur O. Ellingsen, Nesbala 126, Seltjarnarnesi, er fertugur í dag. Jón Ragnarsson, Viðarholti, Ár- skógshreppi, er fertugur í dag. Halla Bergsdóttir, Brekkuhvammi 7, Hafnarfirði, er fertug í dag. Til hamingju með morgundaginn 85 ára Helga Jónsdóttir, Goðheimum 23, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára á morgtm. 75 ára_____________________. Þorsteinn Sigurðsson, Birkivöllum 18, Selfossi, er sjötíu og fimm ára á morgun. 60 ára____________________ Gunnar Þ. Haraldsson, Dverg- hamri 30, Vestmannaeyjum, er sextugur á morgun. 50 ára______________________ Páll G. Sigurþórsson, Birkivöllum 29, Selfossi, er fimmtugur á morg- un. ■ Herdis Haraldsdótir, Skjólbraut 4, Kópavogi, er ílmmtug á morgun. Halldór Gislason, Heiðarbæ 15, Reykjavík, er fimmtugur á morg- un. Ragnhildur Björnsdóttir, Mávanesi 9, Garðabæ, er fimmtug á morgun. 40 ára Sigþór L. Sigurðsson, Dalbraut 28, Suðurfjarðarhreppi, er fertugur á morgun. Óskar Gíslason, Hombrekkuvegi 7, Ólafsfirði, er fertugur á morgun. Stefán Friðfínnsson, Laugarásvegi 37, Reykjavík, er fertugur á morg- un. Baldur Sigurður Pálsson, Engimýri 7, Akureyri, er fertugur á morgun. Kristín Sæmundsdóttir, Melseh 9, Reykjavík, er fertug á morgun. örn Guðmundsson, Funafold 101, Reykjavík, er fertugur á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.