Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Side 2
2
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Fréttir
Afpantanir streyma
til flestra hótela
- í sumum titfellum hafa 60 til 70 herbergi verið afpöntuð
„Þetta er alvarleg staöa sem upp
er komin því hér hjá okkur á Hótel
Esju hefur sennilega um helmingur
herbergjanna, sem eru í allt 134, ver-
iö afpantaöur .nú um helgina vegna
verkfalls verslunarmanna. Hér er
bæði um aö ræöa útlendinga, sem
ætluðu að koma til landsins en hafa
hætt við þaö, og einnig fólk utan af
landi sem hefur hætt við Reykjavik-
urferð af ótta viö aö brenna inni ef
innanlandsflugið stöövast," sagöi
Einar Olgeirsson, hótelstjóri á Hótel
Esju, í samtali viö DV í gær.
Sömu sögu er að segja af flestum
ef ekki öllum hótelum í borginni: alls
staðar streymdu inn afpantanir,
bæöi frá fólki utan af landi og frá
útlendingum sem hætt höfðu við aö
'koma til íslands vegna verkfaUsins.
í sumum tilfellum voru hótehn full-
bókuð en standa nú hálftóm eftir.
Einar Olgeirsson hótelstjóri sagöi
að það lægi alveg ljóst fyrir að starf-
semi hótelanna yrði sama og engin
strax eftir helgina.
-S.dór
Hörkudeilur um
minnispunkta
verkfallsvarða
- stjóm Lffeyrissjoðs verslunarmanna kölluð saman
í minnispunktum, sem allir verk-
fallsverðir Verslunarmannafélags
Reykjavíkur höfðu á sér í gær og
sýndu fólki sem var að vinna í verk-
fallinu, voru atriði sem ollu miklum
deilum. í minnispunktunum sagöi
meðal annars að skýra bæri fyrir
fólki að með því að brjóta samninga
Verslunarmannafélagsins ætti það á
hættu að vera vísaö úr félaginu og
þá um leiö svipt lífeyrissjóðsréttind-
um í Lífeyrissjóði verslunarmanna.
Víglundur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri, sem á sæti í stjórn
lífeyrissjóðsins, fór fram á að kallaö-
ur yrði saman fundur í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna vegna þessa
máls og verður hann haldinn í dag.
„Geðþóttaákvarðanir“
„Lífeyrissjóður verslunarmanna
er ekki lífeyrissjóður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur. Hann er
lífeyrissjóður starfsstéttar þar sem
launþegarnir kaupa sér sjálfir lífeyr-
istryggingar meö launum sínum og
atvinnurekandinn greiðir iðgjald því
til viðbótar. Við viljum að eytt sé
þeirri óvissu sem kemur fram á
þessu blaði verkfallsvarða Verslun-
armannafélagsins og að þeir geti
hótað verslunarfólki því að félag þess
geti svipt það lífeyrisréttindum. Við
viljum fá tafarlaust úr þessu skorið
í stjórn lífeyrissjóðsins aö hann
standi við skuldbindingar sínar við
verslunar- og skrifstofufólk og að
fólk eigi það ekki á hættu að geö-
þóttaákvarðanir stjórnar Verslunar-
mannafélagsins geti eyðilagt fyrir
því lífeyrisréttindi," sagði Víglundur
Þorsteinsson í samtali við DV í gær.
Sorgleg krafa
„Þessi krafa Víglundar er ekki einu
sinni hlægileg, hún er sorgleg: að
þetta skuh gert að einhverju stóru
atriði þegar verslunar- og skrifstofu-
fólk um allt land er komið í alls-
herjarverkfall. Hér er aðeins um
minnisatriði fyrir verfaUsverði að
ræða þar sem þeir skýra fyrir fólki
hvaða afleiðingar verkfallsbrot getur
haft. Þar er bent á að menn geti misst
réttinn tfl að vera í Verslunarmanna-
félaginu og það geti síðan leitt tfl
þess að það missi réttindin í lífeyris-
sjóðnum. í reglum sjóðsins, sem er
samningsatriði mUli Verslunar-
mannafélagsins og vinnuveitenda,
segir orðrétt: „Sjóðsfélagi er sá laun-
þegi sem er félagi í Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur og kjarasamning-
ar þess og vinnuveitenda taka tU.“
Það liggur því alveg ljóst fyrir að tU
þess að geta verið í lífeyrissjóðnum
þarf launþegi að vera í félaginu. Und-
antekning eru verslunarmenn úti á
landi sem eiga ekki aöild að þessari
reglugerð en samþykki stjórnar
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
þarf að koma til ef þeir eiga aö verða
félagar í sjóðnum,“ sagði Magnús L.
Sveinsson, formaður Verslunar-
mannafélagsins, um þetta deUumál.
-S.dór
t gær kom til deilu milli verkfallsvarða Verslunarmannafélags Reykjavíkur
og þeirra er standa að versluninni Vorleik i Kringlunni. Verslunin hafði
ráðið sér fólk til starfa og sagði lögfræðingur verslunarinnar, sem er lengst
til hægri á myndinni, að um verktaka væri að ræða. Fríður flokkur verk-
fallsvarða kom á vettvang og þá var kallað á lögregluna. Málið leystist
síðan friðsamlega og urðu verktakarnir að víkja.
DV-mynd Brynjar Gauti
Beathoven-flokkurinn á æfingu í gær. Sverrir Stormsker situr viö píanóið
en með honum eru f.v.: Björn Emilsson, leiðbeinandi hópsins fyrir sjón-
varpsútsendinguna, Kristján Viðar Haraldsson, Greifunum, Guðmundur
Jónsson, Sálinni hans Jóns míns, Edda Borg, Módeli, Þorsteinn Gunnars-
son, Hunangstunglinu, og Stefán Hilmarsson, Sniglabandinu.
DV-mynd GVA
Jón Páll fer með
Sverri til Dublin
Jón PáU Sigmarsson er í fóruneyti
Beathovensbræðranna, Sverris
Stormskers og Stefáns Hilmarsson-
ar, í Eurovisionkeppninni.
En fulltrúar íslands lögöu af staö
til Dyflinnar eldsnemma í morgun.
„Ég myndi kalla Jón Pál lífvörð
Sverris í ferðinni,“ sagði Björn Em-
ilsson í samtaU við DV. Björn sagði
það liggja í augum uppi að Jón Páll
færi m.a. í ferðina til að vekja at-
hygli á íslandi og íslensku keppend-.
unum. „Ég hef oft sagt áður að það
er ákveðin landkynning í þessari
keppni og Jón Páll tengist henni aö
sjálfsögðu auk þess sem nafn hans
kemur fyrir í texta lagsins. Hann
verður viðstaddur á blaðamanna-
fundum í Dublin en hann mun ekki
verða á sviðinu með tónUstarfólkinu
í sjálfri keppninni," sagði Björn.
Eyjólfur ekki með
Breyting hefur oröið á Uösskipan
íslensku tónUstarmannanna í keppn-
inni. Eyjólfur Kristjánsson fór ekki
með í morgun tíl Dyflinnar en í hans
stað kom Kristján Viðar Haraldsson
úr Greifunum. Eyjólfur sagöi í sam-
tali við DV að hann hafl ekki séð sér
fært aö fara til Dyflinnar þar sem
hann komst ekki frá vinnu. En Eyj-
óUúr spilar um þessar mundir á
Hótel Sögu.
Aðrir íslenskir hljóðfæraleikarar í
söngvakeppninni eru: Edda Borg,
Þorsteinn Gunnarsson í Hunangs-
tunglinu og Guðmundur Jónsson í
Sálinni hans Jóns míns. -JBj
Minnispunktarnir
sem deilunni ollu
Minnisblað verkfallsvarða
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur er langt og ítarlegt en í 3. Uö
þess eru atriðin sem deilunni ollu
í gær en þessi 3. Uður hljóðar svo:
„Skrá sérstaklega niöur nafn,
heimilisfang og vinnustað fólks
sem neitar að leggja niöur vinnu
og skýra því frá aö það sé að bijóta
samninga VR, sem gæti leitt tíl:
a Svipting réttinda til lágmarks-
launa
b Svipting réttar tU uppsagnará-
kvæða
c Svipting réttar til að vinna ann-
ars staðar
d Missir tíl lífeyrissjóðsréttinda
e Svipting réttar til atvinnuleysis-
trygginga
f Svipting réttar til sjúkrabóta úr
Sjúkrasjóði VR
g Fjöldi annarra réttinda í hættu,
sem stéttarfélögin tryggja."
-S.dór
MilliSandaflugið:
Aukaferðir til
að koma far-
þegum heim
Flugleiðir hf. hafa ákveðið að
vera með eina aukaferö á morg-
un, sunnudag, og fer vélin til
Kaupmannahafnar og Ósló. Árni
Sigurðsson þjá Flugleiðum hf.
sagöi í samtali við DV í gær að
sennUega myndi þessi eina auka-
ferð duga til að koma þeim heim
sem vilja flýta heimferð vegna
verkfalls Verslunarmannafélags
Suðurnesja sem hefst-á mánudag
og lokar mUlilandafluginu.
Ámi sagði aö vegna verkfalls-
ins hefðu fjölmargir, sem ætluöu
til útlanda í þessari viku, hætt
við ferðina og þvi væri nóg af
sætum laust fyrir þá sem vUja
flýta heimfór um helgina.
Ein vél fer á morgun tU Kaup-
mannahafnar og London og
kemur hún tíl baka á mánudag-
inn. Síðasta flug frá Lúxemborg
til íslands fyrir verkfall verður á
morgun, sunnudag.
Flugleiðir hf. munu síðan halda '
uppi flugi frá Evrópu til Ameriku
án viðkomu á íslandi meðan á
verkfalli verslunarmanna stend-
ur.
-S.dór
Innaitlandsflugið:
Amarflug
heldur áfram
- Flugieiðir stöðvast
Arnarflug hf. mun halda uppi
innanlandsflugiþrátt fyrir versl-
unarmannaverkfalliö. Stöövar-
stjórinn á afgreiðslu félagsins í
Reykjavík afgreiðir flugmiöa og
svarar i símann. Úti á landi munu
svo umboðsmenn Arnarflugs hf.
halda uppi fullri afgreiðsiu.
Innanlandsflug Flugleiða hf.
mun aftur á móti stöðvast með
öllu vegna verkfallsins. Leigu-
flugfélögin starfa öll í verkfallinu,
hvort sem þau eru í Reykjavik
eða úti á landi.
Mjög miklar annir voru í innan-
landsfluginu hjá Arnarflugi hf. í
gær og á mörkunum aö einn
maður gæti annað afgreiðslunni
í Reykjavík.
-S.dór
Akureyri:
Rólegt hjá
verkfalls-
vörðunum
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Hér er allt rólegt og ekkert
stórmál hefur komið upp,“ sagði
verkfallsvöröur á skrifstofu
verslunar- og skrifstofufólks á
Akureyri við DV í gær.
Á milli 40 og 50 manns eru við
verkfallsvörslu á Akureyri og
áttu þeir rólegan dag í gær. Ein-
ungis nokkur smámál komu upp
og var um athugunarleysi að
ráeða í þeim tilfellum og málin
voru leyst.
Stór hluti verslana á Akureyri
var opinn í gær, og eigendur þar
við afgreiðslu. Allar matvöru-
verslanir Kaupfélags Eyfiröinga
eru lokaðar og einnig verslun
Hagkaups. Hins vegar var opið í
Matvörumarkaönum í Kaupangi
og í fjórum minni verslunum.
Það sem kemur til með aö valda
mestum erfiðleikum á Akureyri
er að allar bensínafgreiðslur bæj-
arins eru lokaðar. Einú undan-
þágumar, sem veittar hafa verið
varðandi bensín, eru til slökkvi-
liös, lögreglu og lækna.