Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Page 4
4
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Fréttir__________________________
Skipulagsstjóm ríkisins og graftraríeyfi að ráðhúsi:
Kæran óviik
vegna frestunar?
Skipulagsstjórn ríkisins frestaði á
fundi sínum síðastliðinn miðvikudag
afgreiðslu umsagnar til félagsmála-
ráðherra um graftrarleyfi fyrir
ráðhúsið. Þetta getur þýtt að bygg-
ingarleyfi verði veitt áöur en kæra
vegna graftrarleyfisins verður af-
greidd og hafi hún því engin áhrif á
byggingu ráðhússins.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra óskaði eftir umsögn
Skipulagsstjórnar ríkisins og bygg-
inganefndar Reykjavíkurborgar,
eftir aö íbúar á Tjarnargötu 10 kærðu
veitingu graftrarleyfisins á þeirri
forsendu aö það væri ólöglegt.
Stefán Thors, skipulagsstjóri telur
graftrarleyfið ekki í samræmi viö
lög. Hins vegar kom sú tillaga fram
á fundi skipulagsstjórnar að óska
eftir lögfræðilegu áliti og var af-
greiðslu málsins því frestað um
hálfan mánuö. Skipulagsstjóri benti
á, i samtali við DV, að líklega veiti
bygginganefnd byggingarleyfi fyrir
ráðhúsinu í millitíðinni. Kæran fell-
ur þá um sjálfa sig og hefur engin
áhrif á byggingu hússins.
Fundur bygginganefndar Reykja-
víkurborgar verður næsta fimmtu-
dag og má búast við að þar verði
tekin til umfjöllunar fyrirspurn ráð-
herra auk umsóknar um byggingar-
leyfi fyrir ráðhúsi, sem líklega
verður samþykkt.
- Er með þessu verið að koma í veg
fyrir að kæra íbúanna hafi áhrif á
byggingu ráðhússins?
„Það er ekkert óeðlilegt við að leita
eftir lögfræðiáliti í ljósi þess að hér
er um að ræða mjög viðkvæmt mál.
En þetta snýst ekki bara um ráð-
húsið heldur vill svo illa til að kæran.
kemur upp vegna byggingar þess og
verður því heldur meira mál en ella.
Graftrarieyfi hafa áður verið veitt
án þess að nokkuð hafi verið sett út
á það. Máliö snýst því í grundvallar-
atriðum um hvort graftrarleyfi eigi
sér stoö í lögum og tel ég svo ekki
vera þó að slíkt leyfi geti átt rétt á
sér í vissum tilfellum,“ sagði Stefán
Thors.
-JBj
Nefnd um stjómun ferskfiskútflutnings:
Ekki samráð við gámaútflytjendur
„Ég veit ekkert um þessa nefndar-
skipun nema það sem ég hef lesið í
blööum. Þar var sagt aö ráðherra
hefði rætt við hagsmunaaðila. Þaö
voru hins vegar bara stóru sölusam-
tökin sem ég veit ekki til aö flytji út
neinn ferskan fisk. Þaö var ekkert
rætt við þá sem standa í þessum út-
ílutningi," sagði Ævar Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Seifs sem
flytur út mikiö magn af gámafiski.
„Það er hins vegar eðlilegt að ein-
hver stjórn sé á þessu. í Noregi er
rekin upplýsingamiöstöð þar sem
menn geta fylgst með markaðinum.
Ef þeir hins vegar láta sér ekki segj-
ast er gripið til banna.
Seifur flytur einnig út frystan fisk.
„Það er ekkert síöur þörf á einhverju
eftirliti varðandi þann útflutning.
Þaö kom vel í ljós þegar hvað mest
veiddist af grálúðu í vetur," sagði
Ævar.
-gse
Vinna í yerkföllum
Hverjum er heimilt aö vinna í verkfalli
og þá hvaða störf?
Eina lagaheimildin sem fjallar um hverjum er heimilt að vinna í verkfalli og hverjum
ekki er 18.gr. laga, nr. 80/1938, um stéítarfélög og vinnudeilurog hljóðar þannig:
"Þegar vínnustöövun hefur veriö Iðglega hafin, er þeim, sem hún aö
einhverjuleytibeinistgegn, óhelmiltaö stuöla aöþvlaöafstýra henni
meö aöstoö elnstakra meölima þeirra félaga eöa sambanda sem aö
vinnustöövuninni standa."
Vinnustöðvun nær eingöngu til félagsmanna þess félags sem stendur að
verkfallsboöuninni og starfa á vinnustööum og við störf sem verkfallsboðunin nær
til.
Þeim starfsmönnum sem ekki eru (verkfalli, er heimilt að vinna sín venjulegu störf,
en starfsskyldurþeirra þvorki aukast né minnka vegna verkfallsaögerðanna. Sem
dæmi mátaka bifvélavirkja eða kjötiðnaðarmenn, sem starfa við afgreiðslu í krafti
sérþekkingar sinnar. Verkfall raskar ekki stööu slíkra manna á neinh hátt.
Eigendum fyrirtækja er heimitt að vinna viö fyrirtæki sín, hvort sem þeir hafa unnið
þar að staöaldri eða ekki. Á það einnig við um maka, börn og nánustu ættingja.
Hluthöfum er óheimilt að vinna í verkfalli nema að hlutafjáreignin sé grundvöllur
lífsafkomu þeirra og starfiö jafnframt grundvallað á hlutafjáreigninni.
Verkfall nær ekki til stjórnenda fyrirtækja, svo sem framkvæmdastjóra,
fjármálastjóra, starfsmannastjóra, skrifstofustjóra, verslunarstjóra og annarra
sambærilegrayfirmannameðstjórnunarábyrgð. Slíkumyfirmönnumberaðsinna
stjórnunarstörufm sínum og er tvímælalaust heimilt að ganga inn í störf
aðstoöarmanna sinna, svo sem fulltrúa," ritara, símavarða og umsjónarmanna
húsakynna.
Vinnuveitendasamband íslands
Farþegar ganga um borð i Twin Otter vél Flugfélags Norðurlands i fyrsta
leiguflugið í verkfallinu á Akureyrarflugvelli í gærmorgun.
DV-mynd gk, Akureyri
Flugfélag Norðuriands á Akureyri:
„Loftbrú“ milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyxi:
Þótt innanlandsflug Flugleiða hafi
lagst niður er verkfall verslunar- og
skrifstofufólks hófst, liggur ekki allt
flug niðri.
Flugfélag Norðurlands á Akureyri,
sem varð að leggja niöur allt áætlun-
arflug sitt, stundar leiguflug af kappi
í verkfallinu og strax kl. 9 í gærmorg-
un fór fyrsta vél félagsins til Reykja-
víkur með farþega sem voru á leið
til fundarhalda þar.
Sigurður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands, tjáði DV aö þeir myndu reyna
að sinna leiguflugi til þeirra staða
sem slíks væri.óskað. Hins vegar átti
hann von á því að þeir hefðu nóg að
gera eingöngu á flugleiðinni Akur-
eyri-Reykjavík-Akureyri, enda er
þetta sú flugleið innanlands sem
langflestir farþegar fljúga á. Nú er
Flugfélag Norðurlands með tvær
Twin Otter vélar sem taka 18 far-
þega, tvær vélar sem taka 9 farþega,
og eina vél sem tekur 5 farþega.
Akureyri:
Bensínafgreiðslu-
menn í verkfalli
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Bensínafgreiðslumenn á Akur-
eyri eru í félaginu hjá okkur og því
eru þeir í verkfalli,“ sagði Jóna
Steinbergsdóttir, formaður Félags
verslunar og skrifstofufólks á Akur-
eyri, en verkfall þeirra hófst á
föstudaginn.
Yfirleitt eru bensínafgreiðslumenn
ekki í félögum verslunarmanna, en
þar sem svo háttar til á Akureyri eru
bensínstöðvar lokaðar. Þaö er því
hætt við að Akureyringar þurfi að
bregða sér bæjarleiö eftir bensíni,
jafnvel til Dalvíkur eða staða í ná-
grenninu.
- En eru verslunarmenn á Akur-
eyri undir það búnir aö fara í langt
verkfall?
„Við höfum verkfallssjóð en hann
er lítill. Við höfum ekki bolmagn til
þess að hjálpa félögum okkar ef úr
verkfallinu tognar, nema einstaka
fólki sem verður mjög illa statt,“
sagði Jóna.
Knattspyrna:
Guðmundur í marki
íslands í Búdapest
Guðmundur Baldursson, mark-
vöröur íslandsmeistara Vals í knatt-
spyrnu, hefur verið valinn í
landsliðið eftir sex ára íjarveru.
Hann mun verja mark íslands gegn
Ungverjum í Búdapest miðvikudag-
inn 4. maí.
Guðmundur tekur stöðu Bjama
Sigurðssonar, sem leikur með Brann
í Noregi, en hann verður að sleppa
Ungveijalandsfórinni vegna fjölg-
unar í íjölskyldunni. -VS
Bílaþrenna með 42%
vinningshlutfalli
Styrktarfélagið Vogur er nú að
ráðast í stóra fláröflum sem er bíla-
þrenna. Er hér um að ræða smámiða-
happdrætti sem er af svokallaðri
skafmiðagerð. Hvert spjald mun
kosta 100 kr. og verður vinningshlut-
fallið 42%.
í þessu skafmiðahappdrætti verður
lítið um litla vinninga en vinningar
eru 50 bifreiðir af Lancia gerð, svo-
kallaðar skutlur, hver að verðmæti
yfir 300 þús. kr. Einnig verða 250
geislaspilarar og 500 ljósmyndávélar
í vinning.
Þetta er annað stórátak Styrktarfé-
lagsins Vogs til að styrkja starfsem-
ina aö Vogi en í byrjun árs 1988 námu
skuldir vegna byggingar sjúkrahúss-
ins að Vogi tugum milljóna. Nú þegar
hefur Styrktarfélagið aflað sér um
10 milljóna kr. til greiðslu á bygging-
arskuldum. - SMJ.