Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Page 9
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
9
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420
„Tel lagið harts Stormskers vera eitt af þremur sem koma til greina til
sigurs i Dyflinni,“ segir Björn Emilsson, framkvæmdastjóri keppninnar.
DV-myndir Brynjar Gauti
aftur, sem þykir sjaldgæft. Bjöm út-
skýrði það og sagði að hann hefði
ekki fengið þá fullnægju í starfi sem
hann sóttist eftir á Stöð 2. „Hrafn
Gunnlaugsson hafði á orði við mig
að koma aftur og það má ségja að ég
hafi ákveðið að fara „heim“. Þaö var
síðan Hrafn sem bað mig að sjá um
söngvakeppnina en undanfarin tvö
ár hefur sú vinna verið unnin af
Agli Eðvaldssyni og Bimi Björns-
syni. Ég gæti ímyndað mér að
kostnaðarlega sé þaö hagkvæmara
fyrir Sjónvarpið að láta innanhúss-
mann sjá um þá framkvæmd þótt ég
hafi ekki heyrt neinar tölur um
það,“ sagði Björn. „Það má segja að
við höfum verið undirmönnuð þar
sem ég vinn núna verk sem tveir
menn gerðu áður. Hins vegar hef ég
haft gott aðstoðarfólk eins og Eggert
Gunnarsson og Ágústu."
Björn hefur auk söngvakeppninn-
ar unnið að þáttum Hermanns
Gunnarssonar, A tali, þar sem hann
átti einnig hugmynd að sviðsmynd-
inni. „Hrafn hefur úthlutað mér
tiltölulega góðum verkefnum og ég
lít á það sem traust. Það getur verið
erfitt að halda úti þáttum í beinni
útsendingu. Við höfum þó uppskorið
árangur erfiðis okkar þar sem þátt-
unum hefur verið vel tekið. í upphafi
mætti ég nokkurri andstöðu gagn-
vart leikmyndinni frá tæknimönn-
um Sjónvarps og áhorfendum úti í
bæ og þó aðallega frá eldra fólki.
Yngra fólk lýsti hins vegar yfir áhuga
með skemmtilega tilraun í leik-
myndagerð, enda er svo komiö í dag
að flestum fellur leikmyndin í geð.
Gryfjan, sem Hemmi sat í og mörgum
fannst undarleg, eins og til dæmis
fjölmiðlagagnrýnanda Morgunblaðs-
ins, þjónaði til dæmis þeim tilgangi
að fela blaðarusl, upplýsingar fyrir
Hemma, neyðarsíma, liijóðnema og
leiðslur. Ég hækkaði sviðið upp'til
að geta komið undir það hljóðmónit-
orum fyrir listamennina sem annars
væru mjög áberandi ljótir í forgrunni
myndarinnar. Einnig var þar reyk-
vél og ljós. Sviðsmyndin var öll
hönnuö fyrir beinar útsendingar.
Hljómsveitin vár ofan í gryfju en það
var gert til að listamaðurinn, sem
fram kæmi hverju sinni, nyti sín
betur og hægt væri að taka myndir
af honum án þess að hljómsveitin eða
Hemmi sæjust ef svo bæri undir.
Leikmyndin var því ekki bara
stíllinn. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á formum og lýsingu og legg
mikla áherslu á útlit og umgjörð
þátta.“
Stóit verkefni framundan
Nú þegar Hemmi Gunn er farinn
í frí og söngvakeppnin afstaðin mega
þá sjónvarpsáhorfendur búast við
fleiru skemmtilegu frá þér? „Þegar
unnið er undir verkstjórn eins hug-
myndaríks manns og Hrafns Gunn-
laugssonar má búast við hverju sem
er og ég er ekki vafa um að áður en
sumarið er liðið gaukar hann ein-
hverju verkefni að mér.“
Björn Emilsson var ónáðaður af
því fólki sem nú er á leiö með honum
til írlands því komið var að fundar-
tíma og að mörgu að hyggja. Senni-
lega á það fólk eftir aö upplifa
skemmtilega daga í Dyflinni en er
eitthvaö sérstakt sem framkvæmda-
stjórinn á von á. „Nei, ég vona bara
að hryðjuverkamenn haldi sig í fjar-
lægð frá þessum stað. Það er ekki
hægt aö horfa fram hjá því að þarna
fer fram atburður sem kemur inn á
heimili manna um alla Evrópu og
sjálfsagt gæti það verið kjörið tæki-
færi fyrir hryðjuverkamenn að láta
að sér kveða. Ég vona svo sannarlega
að svo verði ekki. Ég efast heldur
ekkert um að öryggisgæslan verði
mjög öflug," sagði Bjöm Emilsson.
ELA
Ull PIQIT HE,MS,NS besta ryksuga
!■■ Stór orð, sem reynslan réttlæfir
/ranix
Kistur, 3 gerðir
Verð 7.900, 8.400 og 10.800.
Símaborð
kr. 4.700
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ
OG LÍTIÐ INN
Opið alla daga kl. 10-19
SNýja
^ólsturgGrðin
Garðshorni við Fossvogskirkjugarð, sími 16541
NILFIS
ára
LETT, LIPUR OG VANDVIRK HAGKVÆM OG HEILNÆM
Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
STERK OG TRAUST
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
10 lítra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk.
fljott og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Sófasett
Borðstofusett
Það er
OPIÐ
hjá okkur
Húsgögn á 800 fm sýningarsvæði