Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Page 52
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
ísafjörður:
Heilsugæslustöðin fær
peningagjöf frá Luxembuig
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafiröi:
Heilsugæslustöðinni á ísafirði
barst fyrir stuttu peningagjöf sem
kom skemmtilega á óvart, eins og
framkvæmdastjóri stöðvarinnar
orðaði það. Þar var um að ræða 2.700
dollara frá alþjóðlegum samtökum,
International Bazar (IT).
Það var Margrét Ingimarsdóttir frá
Hnífsdal sem afhenti gjöfma en hún
hefur veirð búsett í Luxemburg í
þrettán ár. IT hefur á að skipa félög-
um 23 þjóða sem halda fyrir hver jól
basar einn mikinn í Luxemburg.
Basar þessi er orðinn fastur liður í
jólahaldi Luxemborgara og stendur
hann í marga daga. islendingar bú-
settir í Luxemburg hafa verið með í
þessum basar frá stofnun eða í 21 ár.
Framlag íslendinganna á basarinn
er aðallega íslenskir lopavörur og
matur ýmiss konar.
Allt þaö fé sem kemur inn er sett
í sameiginlegan sjóð IT. Hann skipt-
ist síðan á milli þjóðanna 23 eftir að
stærsta hluta hans hefur verið varið
til hjálpar vanþróuðum ríkjum
Þriðja heimsins.
Guðmundur Marinósson, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á
ísafirði, tekur við gjöfinni úr hendi Margrétar Ingimarsdóttur.
Sá hluti fjárins sem kemur í hlut
íslendinga nú er u.þ.b. 300.000 krón-
ur. Skiptist það fé aö þessu sinni jafnt
á milli Heilsugæslustöðvarinrtar á
ísafirði, íþróttafélagsins Aspar og
Reykjalundar.
Guðmundur Marinósson, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar-
innar, þakkaði Margréti og hennar
samtökum fyrir þann hlýhug sem
þau hafa sýnt málefnum heilsugæslu
á ísafirði með þessari gjöf. Þá af-
henti Guðmundur Margréti sérstakt
þakkarbréf til samtakanna.
ísafjörður:
Hvarverðurnýja kirkjan reist?
- Ákvörðun tekin nk. fímmtudag
að hafa áhrif á „andlit bæjarins",
eins og Gunnlaugur Jónasson, for-
maður sóknarnefndar, orðaði það. Á
væntanlegum aðalfundi safnaðarins
verður, auk heföbundinna aðalfund-
arstarfa og ákvarðanatöku um
framtíðarstað kirkjunnar, rætt um
stærð og gerð nýrrar kirkju og bygg-
ingarforsögn þá sem sóknarnefnd
hefur gert um kirkju og safnaðar-
heimili.
Menning ______________________________________________________
Smátt og stórt
Bjöig Þorsteinsdöttir í Norræna húsinu
Á síðustu árum hefur átt sér stað
tvíþætt þróun í verkum Bjargar
Þorsteinsdóttur. Annars vegslr hef-
ur hún verið að íjarlægjast hlut-
lægan veruleika og byggja upp
margræðar, hálf-afstrakt, mynd-
heildir úr efniviði úr nánasta
umhverfi sínu.
Hins vegar hefur hún verið að
slaka á þeim stundum kaldhamr-
aða byggingarstíl, sem einkennt
hefur myndlist hennar, og fikra sig
í átt til litbrigðaríkari stemmumál-
verks.
Sýning Bjargar i Norræna húsinu
er mikilvægur áfangi á þeirri
braut.
Þar er að finna nokkur málverk
þar sem nákvæm uppbygging situr
í fyrirrúmi, en þau eru fleiri sem
ganga út á lithvörf og frjálslega
teikningu - sem þó fara aldrei úr
böndunum.
Ný viðhorf Bjargar pr helst að
finna í krítarmyndum hennar, en
eins og margir vita er krítin góður
skóli fyrir þá sem samræma vilja
línu og lit. í hvert sinn sem lista-
maður markar fyrir línú, þarf hann
að hugsa bæði um byggingarlegt
hlutverk hennar og áhrif hennar á
þá liti sem fyrir eru.
Þetta tekst Björgu alveg prýði-
lega, og fyrir vikið verða krítar-
myndir hennar, smáar og stórar,
sérstakt augnayndi.
Athyglisvert er hvernig hún not-
ar formfræði hinnar japönsku
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
pappírslistar, origami, til að stilla
af óstýrilæti línu og lita, eða beina
þeim inn á réttar brautir.
Ég er ekki eins sannfærður um
ágæti þeirra akrýlmálverka sem
hún sýnir að þessu sinni, ekki
vegna þess aö þau séu of fóst í
formi, heldur vegna þeirrar sund-
urgerðar sem stundum gerir vart
við sig í þeim.
Fyrir minn sníekk er einfaldlega
of mikið að gerast í þessum verk-
um, smá form og stór bítast um
athygli okkar - ekki ósvipað því
sem gerðist forðum í pappírsverk-
um listakonunnar.
Hins vegar bendir ýmislegt til
þess að listakonan leiti nú leiða til
að steypa saman aðföngum sínum
og gera úr þeim sterkar heildir, sjá
mynd eins og „Sólstafi" (nr. 9).
-ai
Björg Þorsteinsdóttir, ásamt einu málverka sinna.
Sigmjón J. Sigurðsson, DV, Isafirði:
Það er kunnara en frá þurfi að
segja aö Ísaíjaröarkirkja varð eldi að
bráð í júlí sl. Frá því það átti sér stað
hefur mikið verið rætt og ritað um
hvar ný kirkja skuli rísa. Aðallega
hafa þó tveir staðir verið nefndir,
annars vegar bæjarhóllinn norðan
Hafnarstrætis og hins vegar uppfyll-
ingin sunnan Hafnarstrætis.
Það er aðalsafnaðarfundur einn
sem hefur vald til þess að ákvarða
hvar ný kirkja rís og nú er komið
að því að taka þarf þessa stóru
ákvörðun. Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn fimmtudagskvöldið
28. apríl nk. kl. 20.30 í sal Mennta-
skólans á ísafiröi.
Á blaðamannafundi, sem sóknar-
nefnd boðaði til, kom fram aö
nefndin væntir þess að sóknarbörn
mæti á fundinn og taki þátt í að taka
þessa ákvörðun sem svo mjög á eftir
Afmæli
Guðrún Sumarrós
Vigfusdóttir
Guðrún Sumarrós Vigfúsdóttir,
Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ól-
afsfirði, er áttræð í dag.
Sumarrós fæddist á Másstöðum í
Skíðadal en ólst upp á Þverá í sömu
sveit. Hún giftist 1928 Gunnlaugi
Rögnvaldssyni, f. 12. aprfi 1902,
verkamanni á Ólafsfirði. Foreldrar
hans vorU Rögnvaldur Rögnvalds-
son, b. á Kvíabekk í Ólafsfirði, og
kona hans, Guðlaug Kristjánsdótt-
ir.
Sumarrós og Gunnlaugur eign-
uðust fjögur börn. Þau eru: Guð-
laug, f. 9. 3. 1929, gift Gunnlaugi
Magnússyni, húsasmið á Ólafsfirði;
Soífía, f. 14. desember 1930, gift
Rósant Skúlasyni, bifreiðarstjóra í
Keflavík, en hann lést í apríl 1987;
Ragnhildur, f. 9.janúar 1933, gift
Gunnari Skarphéðinssyni, raf-
eindavirkja í Garðabæ; og Vigfús
Skíðdal, f. 24. október 1937, húsa-
smíðameistari á Ólafsfirði, kvænt-
ur Hómfríði Jóhannsdóttur.
Systkini Sumarrósar: Ólöf, sem
var gift Jóhanni Jónssyni, skrif-
stofumanni á Dalvík, en þau eru
bæði látin; Björn, b. og smiður á
Dalvík, er einnig látinn; Jónína,
gift Sævaldi Sigurðssyni sjómanni,
eru á Dalbæ á Dalvík; Sveinn, fyrr-
verandi b. á Þverá í Skíðadal en
nú búsettur á Dalvík, kvæntur Þór-
dísi Rögnvaldsdóttur, og Ari,
búsettur á Dalvík.
Foreldrar Sumarrósar voru Vig-
fús Björnsson, b. á Þverá í Skíðad-
al, og kona hans, Soffía Jónsdóttir.
Til hammgiu 60 ára
með daginn 80 ára Brandís Guðmundsdóttir frá Bæ verður sextug nk. fimmtudag, 28.04. Hún tekur á móti gestum eft- ir kl. 15 á morgun, 24.04., að heimili sínu Erluhrauni 3, Hafnarfirði.
Þorsteinn Matthíasson, Hátúni 10B, Reykjavík, er áttræður í dag. 50 ára
Jóna Jónsdóttir, Spítalastíg 4, Reykjavík, er áttræð i dag. Sigríður Sigfinnsdóttir, Hólalandi 22, Stöðvarhreppi, er áttræð í dag. Eysteinn Arason, Álfhólsvegi 58, Kópavogi, er fimmtugur í dag. ísleifur Vilhjálmsson, Hraunbæ 44, Reykjavík, er fimmtugur í dag. .
75 ára 40 ára
Sigurbjörg Gísladóttir, Selvogsgötu 19, Hafnarfirði, er sjötíu og fimm ára í dag. Heiðrún Rútsdóttir, Sjávarflöt 7, Stykkishólmi, er fertug í dag. Haukur S. Valdemarsson, Skeið, Svarfaðardalshreppi, er fertugur í dag. Kristófer Valgeir Stéfánsson, Álf- hólsvegi 46D, Kópavogi, er fertugur í dag.
70 ára
Sigurbjörn Stefánsson, Túngötu 13, Keflavík, er sjötugur í dag.
Til hamingju
með morgundaginn
90 ára Emil Wilhelmsson, Löngufit 38, Garöabæ, verður fimmtugur á morgun. Dóra Egilson, Laugarásvegi 50, Reykjavík, verður fimmtug á morgun. Guðríður Karlsdóttir, Mosabarði 8, Hafnarfirði, verður fimmtug á morgun.
Gunnþórunn Sigurðardóttir, Fífu- sundi 1, Hvammstanga, verður níræð á morgun. Karen Louise Jónsson, Kapla- skjólsvegi 63, Reykjavík, verður níræð á morgun.
85 ára 40 ára
Magnús Guðmundsson, Eyrarvegi 8, Flateyri, verður áttatíu og fimm ára á morgun. Auðbjörg Guðjónsdótir, Meistara- völlum 7, Reykjavík, verður fertug á morgun.
80 ára Steinar Karlsson, Víkurbakka 22, Reykjavík.verður fertugur á morg-
Guðrún Halldórsdóttir, Spítalastíg 6, Reykjavík, verður áttræð á morgun. Hanna Kristín Guðmundsdóttir, Kringlunni 65, Reykjavík, verður fertug á morgun. Hildur Leifsdóttir, Kjarrhólma 18, Kópavogi, verður fertug á morgun.
75 ára
Kristján Sævaldsson, Grænuhlíð 7, Akureyri, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Hann verður ekki heima á afmællisdaginn. Ásta Björnsdóttir, Sundstræti 35A, ísafirði, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Ása Norðflörð, Tunguvegi 8, Reykjavík, verður fertug á morgun. Sigriður B. Blöndal, Unufelli 1, Reykjavík, verður fertugá morgun. Reynir Adamsson, Ásbúð 53, Garðabæ, verður fertugur á morg- un. Hafsteinn Guðmundsson, Þing- hólsbraut 12, Kópavogi, veröur fertugur á morgun Guðmundur J. Jónsson, Hraunbæ 178, Reykjavík, verður fertugur á morgun. Aðalheiður Ingvarsdóttir, Hóla- baki, Sveinsstaðahreppi, verður fertug á morgun. Óli Viðar Thorstensen, Kleifarseli 45, Reykjavík, verður fertugur á morgun.
70 ára
Þórunn Gísladóttir, Norðurgötu 21, Miöneshreppi, verður sjötug á morgun.
50 ára
Ingibjörg Vestergaard, Haukanesi 4, Garðabæ, veröur fimmtug á morgun.