Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
57
DV
Afmæli
Guðríður Karísdóttir
Guðríöur Karlsdóttir kennari,
Mosabarði 8, Hafnarfiröi, er fimm-
tug á morgun. Guðríður er fædd í
Reykjavík og lauk verslunarskóla-
prófi sextán ára. Hún er stúdent frá
MH og lauk kennaraprófi frá KÍ
1969. Við lát foður síns hóf hún störf
á tollstjóraskrifstofunni í Arnar-
hvoli, einnig starfaði hún á Hótel
Selfossi. Guðríður .hefur verið
kennari við Flensborgarskólann í
Hafnarfirði frá 1970 og hefur sótt
norræn kennaraþing og farið í
námsferðir til Bandaríkjanna og
Þýskalands. Hún hefur verið í
stjórn Soroptimistasystra á íslandi
ogf sótt alþjóðaráðstefnur á þeirra
vegum og starfað að málefnum
kaþólska klaustursins í Hafnar-
firði. ■
Guðríður giftist 21. janúar 1960
Árna Rosenkjær, f. 28. febrúar 1932,
rafvirkjameistara hjá Hótel Loft-
leiðum. Foreldrar hans eru Carl
Rosenkjær, verslunarmaður í
Vestmannaeyjum, og Ágústína
Jónsdóttir frá Gamla-Hrauni á Eyr-
arbakka, systir Guðna prófessors
og ættfræðings. Fósturfaðir. Árna
er Skarphéðínn Helgason, skip-
stjóri og verðlagsfulltrúi. Börn
Guðríðar og Árna eru Karl Ingi
Rosenkjær, f. 5. október 1955,
tæknifræðingur og framkvæmda-
stjóri Blikksmiðsins hf„ kvæntur
Selmu Guðnadóttur og eiga þau
þrjú börn; Guðrún Hildur, f. 31.
mars 1962, ritari hjá Flugleiðum;
Ágústa Ýr, f. 9. júlí 1963, mat-
reiðslumeistari hjá Hótel Loftleið-
um, unnusti hennar er Jóhann
Viðarsson, verslunarmaður hjá
Hljómbæ; og Guðný Birna, f. 27.
maí 1969, nemi, unnusti hennar er
Siguijön Einarsson málari.
Bróðir Guðríðar er Guðlaugur
Tryggvi, f. 9. september 1943, hag-
fræðingur og fulltrúi hjá HÍ,
kvæntur Vigdísi Bjarnadóttur,
deildarstjóra skrifstofu forseta ís-
lands.
Foreldrar Guðríðar eru Karl I.
Jónasson, f. 15. júní 1900, d. 18. okt-
óber 1952, stöðvarstjóri á Bifreiða-
stöð Steindórs og stofnandi
Karlakórs Reykjavíkur, og kona
hans, Guðný Guðlaugsdóttir, f. 16.
apríl 1912, hótelstýra í Tryggva-
skála á Selfossi, síðar verslunar-
maður í Rvík. Guðlaugur
Bergmann, forstjóri Karnabæjar,
Egill Gr. Thorarensen, forstjóri
Síldarrétta í Kópavogi, og Guðlaug-
ur Ægir Magnússon, forstjóri MM
á Selfossi eru systrasynir Guðríð-
ar. Ingibjörg Jóhannesdóttir, ritari
í Seölabankanum, Hólmfríður
Árnadóttir, kennari og myndlistar-
maður, og Skjöldur Magnú'sson
slökkviliðsmaður eru bræðrabörn
við Guðríði og Pétur Júlíusson, for-
stjóri í Borgarnesi, systkinabarn.
Faðir Karls var Jónas, smiðs í
Borgarnesi, Jónassonar, b. á
Stóra-Kambi, Jónassonar, b. á
Álftavatni í Staðarsveit, Samsonar-
sonar, b. á Klömbrum í Vesturhópi,
Sigurðssonar, b. á Klömbrum,
Jónssonar, bróður Egils, langafa
Eyþórs, afa Ásgeirs Asgeirssonar
forseta.
Móðir Jónasar á Stóra-Kambivar
Sigríður Pálsdóttir, prests á Undir-
felli, Bjarnasonar. Móðir Páls var
Steinunn Pálsdóttir, systir Bjarna
landlæknis, afa Bjarna Thoraren-
sens skálds. Steinunn var dóttir
Páls prests á Upsum, Bjarnasonar,
prests í Vesturhópshólum, Þor-
steinssonar, afa Amórs í Vatns-
firði, forföður Hannibals
Valdimarssonar.
Móðir Sigríðar var Guðrún
Bjarnadóttir, prests á Mælifelli,
Jónssonar og konu hans, Sigríðar
Jóhannsdóttur, systur Einars, afa
Einars Stefánssonar, afa Einars
Benediktssonar skálds.
Móðir Karls var Ingibjörg Lofts-
dóttir, vinnumanns á Staðarhóli,
Jónssonar og Sigríðar Magnús-
dóttur. Móðir Sigríðar var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. í Snartartungu,
Jónssonar og konu hans, Sigríðar
Sveinsdóttur. Systkinabarn við
þau bæði var Sveinn Níelsson, for-
faðir Sveins Björnssonar forseta,
Haralds Níelssonar, Jónasar Har-
alz, Leífs Sveinssonar, Níelsar
Dungals og Sigurðar Helgasonar,
stjórnarformanns Flugleiða.
Faðir Guðnýjar var Guðlaugur,
b„ kennari og organisti og síðar
gestgjafi í Tryggvaskála og fyrsti
formaður Héraðssambandsins
Skarphéðins, Þórðarsonar, b. á
Hellum á Landi, Guðlaugssonar,
bróður Vilborgar, langömmu Þor-
gerðar Ingólfsdóttur söngstjóra.
Móðir Guðlaugs var Guðrún, systir
Sæmundar, afa Guðrúnar Erlends-
dóttur hæstaréttadómara. Bróðir
Guðrúnar var Guðbrandur, afi
Hauks Morthens og Kristins, fóður
Bubba Morthens. Guðrún var dótt-
ir Sæmundar, b. á Lækjarbotnum,
Guðbrandssonar, bróður Sigurðar,
langafa Guðmundar Daníelssonar
rithöfundar.
Móðir Guðnýjar var Guðríður
Eyjólfsdóttir, landshöfðingja í
Hvammi á Landi, Guðmundssonar,
afa Eyjólfs Ágústssonar í Hvammi
og aíkomanda Markúsar Bergsson-
ar, sýslumanns á Ögri, forfööur
Jóns Baldvins Hannibalssonar og
Jóhannesar Nordal. Móðir Eyjólfs
var Guðríður Jónsdóttir, b. í Gunn-
arsholti, Jónssonar. Móðir Jóns
var Guðríður Árnadóttir, prests í
Steinsholti, Högnasonar prestafóð-
ur, Sigurðssonar, forföður Vigdísar
Finnbogadóttur, Þorsteins Erlings-
sonar, Tómasar Sæmundssonar og
Jóhanns Hafsteins. Móðir Guðríð-
ar var Guðbjörg, systir Guðna, afa
Guðna Kristinssonar á Skarði.
Guðbjörg var dóttir Jóns, b. á
Skarði á Landi, Árnasonar, b. á
Galtafelli, Finnbogasonar, fóður-
bróður Jóhanns, langafa Ingólfs
Margeirssonar ritstjóra. Móðir
Guðbjargar var Guðrún Kolbeins-
dóttir, b. á Hlemmiskeiði á Skeiö-
um, Eiríkssonar, b. á Reykjum,
Vigfússonar, ættfóður Reykjaætt-
ar. Móðir Guðrúnar var Solveig
Vigfúsdóttir, af Fjallsætt.
Sigurborg Sumariína
Sigurborg Sumarlína Jónsdóttir
frá Súgandafirði er áttatíu og fimm
ára í dag.
Sumarlína er fædd á Gelti við
Súgandafjörð og ólst þar upp. Hún
giftist 28.11.1922 Bjarna Guðmundi
Friðrikssyni, sjómanni á Suður-
eyri, síðar vitaverði á Galtarvita,
f. 31.7. 1896, d. 5.11. 1975.
Sumarlína og Bjarni eignuðust
sextán börn. Þau eru: drengur, f.
1923, d. sama ár; Elísabet Frið-
rikka, f. 19.10.1924, d. 27.2.1958, en
hún var gift Vilhjálmi Óskarssyni
og eignuðust þau fimm börn; Berg-
þóra, f. 2.6. 1926, d. 6.8. 1932; Ása,
f. 10.8.1927, en hún á tvo syni; Eyj-
ólfur Sigurður, f. 3.1.1929, kvæntur
Guðfinnu Vigfúsdóttur, en þau eiga
þrjú börn; Friðrik Þórður, f. 29.8.
1930, d. 7.8.1983, kvæntur Guðrúnu
Bjarnadóttur, ,en þau eignuðust
einn son; Þórhallur, f. 6.8. 1932;
Andrés Helgi, f. 10.7.1934, kvæntur
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra
til að senda því myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa
að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Jónsdóttir
Hrafnhildi Guðmundsdóttur, en
þau eiga fjögur börn; Anna, f. 27.4.
1936, gift Magnúsi Hagalínssyni og
eiga þau þijár dætur; Páll, f. 22.9.
1937, kvæntur Sigríði Gissurardótt-
ur, en þau eiga íjögur börn; Karl,
f. 14.6. 1939, d. 6.12. 1939; Karl, f.
16.11. 1940, kvæntur Hildi Þor-
steinsdóttur og eignuðust þau
fjögur börn; Sigríður Borghildur,
f. 16.2. 1942, d. 3.6. 1946; Arnbjörg
Jóna, f. 4.10. 1943,. gift Eövarö
Sturlusyni, en þau eiga fimm börn;
Borghildur Fríða, f. 9.5. 1946, gift
Jóni Birni Jónssyni, en þau eiga
þrjá syni; Hermann Alfreös, f. 17.2.
1948, kvæntur Pricillu Joan Stock-
dale, en þau eiga tvö börn.
Sumarlína dvelur nú á dvalar-
heimilinu Hrafnistu í Reykjavík,
en hún tekur á móti gestum í fé-
lagsheimili Múrarafélags Reykja-
víkur, Síðumúla 25, í dag á milli
klukkan 15 og 18.
Ættfræðirit óskast
Ættfræðideild DV vill gjarnan kaupa eftirtalin ættfræðirit
Kjósarmenn
eftir Harald Pétursson
Útg.: Átthagafélag Kjósverja
Borgfirskar æviskrár
I., III., og V. bindi
eftir Ara Gíslason
Útg.: Sögufélag Borgarfjarðar
Dalamenn 1703-1961,
æviskrár
eftir Jón Guðnason
Útg.: höf.
Vestfirskar ættir
l.-IV. bindi
eftir Ara Gíslason
og V.B. Valdimarsson
Útg.: V.B. Valdimarsson
Sléttuhreppur
1702-1952
eftir Kristin Kristmundsson
gg Þórleif Bjarnason
Útg.: Átthagafélag Sléttuhrepps
Strandamenn
eftir Jón Guðnason
Útg.: höf.
Þóra Valgerður
Jónsdóttir
Þóra Valgerður Jónsdóttir hús-
móðir, Brávallagötu 46, Reykjavík,
verður níræö á morgun.
Þóra fæddist að Fögrueyri við
Fáskrúðsijörð en flutti fimm ára
með foreldrum sínum til Reykja-
víkur.
Maður hennar var Einar, bif •
vélavirki í Reykjavík, f. 2.10. 1898,
d. 7.10. 1946, sonur Guðmundar
Þórðarsonar, b. á Fellsenda í Þing-
vallasveit, og Halldóru Einarsdótt-
ur.
Þóra og Einar eignuðust íjögur
börn. Þau eru: Guðjóna, f. 19.12.
1921, ekkja eftir Jón Jónsson, b. í
Stóradal í Austur-Húnavatnssýslu,
en þau eignuðust flmm dætur:
Guðmundur, f. 21.8. 1925, bíla-
sprautunarmaður í Kópavogi,
kvæntur Helgu Nikulásdóttur og
eiga þau fjögur börn; Jón, f. 31.1.
1927, sjómaður í Reykjavík, kvænt-
ur Jónu Sigurðardóttur; Valgerð-
ur, f. 4.11. 1930, gift Magnúsi
Jónssyni húsgagnasmið í Reykja-
vík.
Foreldrar Þóru voru Jón Bjarna-
son, sjómaður á Fagranesi við
Fáskrúðsfjörð, og Þórunn Bjarna-
dóttir.
Ami Heiðar Oskarsson
Árni Heiðar Óskarsson vörubíl-
stjóri, Kleppsvegi 56, Reykjavík, er
flmmtugur í dag.
Arni fæddist í Eagradal á Skarðs-
strönd en ólst upp í Bjarneyjum,
Bíldsey og Rauðseyjum á Breiða-
firöi hjá móðurforeldrum sínum,
þeim Árna Jónssyni verkamanni
og Ragnheiði Sigurðardóttur. Árni
flutti svo með afa sínum og ömmu
til Reykjavíkur þegar hann var ell-
efu ára.
Árni fór ungur til sjós og var þá
á ýmsum bátum frá Keflavík. Síðar
hóf hann vörubílaakstur og hefur
nú ekið 'vörubílum í tuttugu ár,
fyrst hjá Keflavík hf„ en síðustu tiu
árin hjá Þrótti.
Sambýliskona Árna Heiðars er
Soffia Óskarsdóttir.
Árni Heiðar eignaðist fimm börn
með fyrri konu sinni og eru fjögur
þeirra á lífi.
Börn hans eru: Árni 'Heiðar,
vörubílstjóri og viðgerðarmaður í
Keflavík, f. 11.7. 1959; Kristín Vil-
borg, f. 22.2. 1961, en hún er látin;
Pétur Ragnar, sjómaður í Njarð-
víkum, f. 20.1. 1963; Gréta Lind,
húsmóðir í Keflavík, f. 15.1. 1964;
og Steinunn Björk, húsmóðir í
Keflavík, f. 15.2. 1965.
Árni Heiðar á þrjú hálfsystkini,
sammæðra, sem öll eru á lifi. Þau
eru: Hulda Björk Kolbeinsdóttir,
húsmóðir á Norðfirði; Steingrímur
Kolbeinsson, sjómaður á Noröfirði;
og Sigurborg Kolbeinsdóttir, hús-
móðir í Reykjavík.
Árni Heiðar verður heima á af-
mælisdaginn.