Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Blaðsíða 60
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháö dagbíað
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Samningafundurinn í verslunarmannadeilunni:
Það er enn
hafsjór á
milli í deilunni
- nærri 150 kærur um verkfallsbrot
Þaö var allt annað en létt hljóö í
mönnum í Karphúsinu um kvöld-
matarleytið í gær. Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, orðaði
það svo í samtali við DV að það væri
jgg^nn „hafsjór á milli deiiuaðila."
Hann sagði að Vinnuveitendasam-
bandið væri búið aö gera kjarasamn-
inga við verkalýðsfélög með um 45
þúsund félaga og það kæmi ekki til
mála að svíkja það fólk með^því að
semja um eitthvað allt annað og
meira viö verslunarmenn.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavikur,
sagði að nákvæmlega ekkert hefði
miðað í deilunni síðan fyrri sátta-
fundurinn hjá ríkissáttasemjara
hófst. Á fundinum í gær, sem hófst
klukkan 14.00, heföi nákvæmlega
ekkert gerst og það væri enn ekki
farið aö nefna launaliðina sem eru
þó aöalkrafa versiunarmanna.
í gær var mikiö að gera hjá verk-
fallsvörðum Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. Nær 150 kærur bárust
til félagsins um verkfallsbrot og að
sögn Grétars Hannessonar hjá verk-
fallsvörslurini þurftu verkfallsverðir
að taka á um 60 málum. Mest var
deilt um hverjir úr fjölskyldum eig-
enda mættu vinna í verkfallinu.
Allar deilur leystust samt friösam-
lega.
I gær var á þriöja hundrað manns
við verkfallsvörslu hjá Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur.
-S.dór
- sjá einnig bls. 2
Miðstjómarfundur Framsóknarfíokkslns í dag:
Stolaskipti til að
fylgja eftir efna-
hagsaðgerðum?
Stjórnarsamstarfið verður tekið
til rækilegrar endurskoðunar hjá
framsóknarmönnum nú um helg-
ina þegar miðstjórn Framsóknar-
tlokksins kemur saman til fundar
á Holiday Inn. Á fundinum verður
samþykkt ályktun sem verður
dreift til fjölmiðla en einnig má
búast við aö ráöherrar flokksins
fari með alvarleg skilaboð til ríkis-
stjómarinnar.
Framsóknarmenn segjast vifja
aðgerðir, það sé aðgerðaleysi ríkis-
stjómarinnar sem sé allt að drepa.
Þaö er því ætlun þeirra nú að setja
fram hugmyndir um ýmsar- efha-
hagsaðgerðir og er líklega gengis-
felling þar efst á blaði. En einnig
hefur heyrst aö hugsanleg stóla-
skipti geti fylgt í kjölfarið enda
hafa framsóknarmenn talið sig af-
skipta þegar kemur að efnahags-
málum í þessari ríkisstjórn.
Stólaskiptin gætu einnig gefið
stjórninni hressilegra yfirbragð og
þvi má ekki gleyma að fordæmið
var gefið í síðustu ríkisstjórn, þá
reyndar til að leysa innanflokks-
vandamál. Því mun ekki vera að
heilsa núna - um stöðu ráðherra
Framsóknarflokksins er ekki deilt.
-SMJ
- sjá fréttaljós, bls. 5
Langflestar
matvöruversl-
anir opnar
Langflestar matvöruverslanir á
höfuðborgarsvæðinu eru opnar þrátt
fyrir verkfall verslunarmanna.
DV kannaði í gær hvaða matvöru-
verslanir væru opnar í verkfallinu.
í blaðinu í dag er birt kort með upp-
lýsingum um 69 matvöruverslanir á
höfuðborgarsvæðinu sem verða opn-
ar áfram.
- sjá bls. 6
Ók á Ölfusárbrú
Ölvaður ökumaður ók á brúar-
handriðið á Ölfusárbrú. Ökumann-
inn, sem heilsaði sumri með þessum
hætti, sakaði ekki en bíll hans var
óökufær á eftir. Brúarhandriðið varð
ökumanninum til bjargar. -sme
Bílstjórarnir
aðstoða
senDiBíLnsTöÐin
Eftir litlar stimpingar en hvöss orðaskipti milli Hrafns Bachmanns, eiganda Kjötmiðstöðvarinnar í
Garðabæ og verkfallsvarða Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Hafnarfjarðar snemma í gær náð-
ist samkomulag milli deiluaðila. Sæst var á að Hrafn sjálfur og annar eigandi fyrirtækisins mættu vinna
í versluninni, sem og eiginkonur þeirra. Allir aðrir, sem voru að störfum, gengu út. Þessi mynd var
tekin þegar atgangur var hvað harðastur í Kjötmiðstöðinni í Garðabæ í gær og viðskiptavinir áttu
erfitt með að komast fram hjá verkfallsvörðum inn í verslunina. DV-mynd GVA
Akureyri:
Verkfalls-
vörður
sleginn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Til handalögmála kom við Shell-
nestið viö Hörgárbraut á Akureyri í
gær og var verkfallsvörður sleginn í
andlitið.
Eigandi verslunar þar var að störf-
um í versluninni ásamt systur sinni
og sinnti ekki tilmælum verkfalls:
varða símleiðis um að systirin hætti
störfum. Verkfallsverðir fóru því á
staðinn og lögðu bifreiðum sínum
þannig að viðskiptavinir kæmust
ekki að versluninni.
Eigandinn var ekki sáttur við þetta
og færði eina bifreiðina frá sjálfur.
Þá urðu verkfallsverðir ósáttir og
kom til handalögmála og urðu lyktir
þær að verslunarmaöurinn sló einn
verkfallsvarðanna í andlitið. Verk-
fallsvörðurinn mun ekki hafa meiðst
mikið.
LOKI
Varla fer Steingrímur að
sleppa Arafat-ráðuneytinu?
Veðrið á sunnudag
og manudag:
Hæg suð-
vestlæg átt
um allt land
Á sunnudag og mánudag verö-
ur fremur hæg suðvestlæg átt
með skúrum við suðvestur- og
vesturströndina en bjart veður
noröan- og austanlánds. Hiti
verður á bilinu 4-6 stig að degin-
um en nálægt frostmarki á
nóttunni.
Verðlag í borgum:
Reykjavík
langdýrust
Þaö er dýrara að dvelja í Reykjavík
en í öðrum evrópskum borgum.
Þetta kemur fram þegar dvalar-
kostnaður í Reykjavík er borinn
saman viö dvalarkostnað í borgum
innan Efnahagsbandalags Evrópu.
Samkvæmt þessari könnun, sem
er birt í DV í dag, er dvalarkostnaöur
í Aþenu 6.300 krónur, í Róm 13.534
krónur en í Reykjavík 17.040 kr. Það
kostar því 10.740 krónum meira fyrir
tvo ferðamenn að dveljast tvo daga í
Reykjavík en í Aþenu. -EG.
- sjá bls. 4647