Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Síða 3
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988.
3
Fréttir
Ferskfisksala erlendis:
Sólukvótinn drepur okkur
- segir Magnús Axelsson útgerðarmaður
Þriggja mánaða takmörkun stjórn-
valda á ferskfiskútílutningi verður
mörgum útgerðarmanninum dýr-
keypt. Vikulega tapar Magnús Axels-
son, útgerðarmaður í Keflavík, einni
til tveimur milljónum króna. „Dæm-
ið gengur ekki upp'hjá mér|)egar ég
fæ ekki að flytja út fiskinn. Eg kemst
í vanskil við lánardrottna og útgerð-
in fer á hausinn,“ segir Magnús.
í tvö og hálft ár hefur Magnús gert
út bátinn Fönix KE 111. Fönix er 137
tonna stálbátur og er á þorskveiðum.
Afli bátsins er vanalega sendur í
gámum á fiskmarkaði í Hull og
Grimsby í Englandi. í fyrrasumar
seldi Magnús 150 tonn af þorski og
ýsu á Bretlandsmarkað. Án fyrirvara
settu stjórnvöld reglur í sumar um
það að enginn mætti flytja út meira
af ferskum þorski og ýsu en nemur
helmingi þess magns sem var flutt
út í fyrra. Þessar reglur gilda í þrjá
mánuði. Fyrir Magnús þýða reglum-
ar það að hann verður á miðju tíma-
bilinu að hætta að senda út fiskinn
sem Fönix aflar.
í stað þess að senda fiskinn út í
gámum verður Magnús að selja fisk-
inn á fiskmarkaði hér heima. Þegar
búið er að draga frá flutningskostnað
fæst um það bfi helmingi meira fyrir
þorsk og ýsu í Bretlandi en hér
heima.
í töflunni hér til hliðar er tekið
dæmi af einum gám af fiski sem
Magnús sendi út um miðjan síðasta
mánuð. Gámurinn tekur tæp 14 tonn
og meðalverðið sem fékkst fyrir kíló-
ið af þorski og ýsu var 105 krónur.
Hér heima hefði Magnús fengið um
það bil 40 krónur fyrir kílóið að jafn-
aði. Þegar flutningskostnaður er
dreginn frá fæst skilaverð. Mismun-
urinn á þessum eina gám er rúmar
600 þúsund krónur.
Við eðlilegar aðstæður flytur
Magnús vikulega út tvo til þrjá gáma.
í hverri viku í sex vikur nemur tapið
einni til tveim milljónum króna.
Það er ekki bara útgerðin sem tap-
ar. Hásetamir fara einnig mjög illa
út úr takmörkun stjórnvalda. Á Fön-
ix eru átta menn og þeir fá vikulega
helmingi minni laun vegna þess að
ekki fæst leyfi til aö flytja út fiskinn
og selja hann á mörkuðum í Bret-
landi.
Grænland og Fær-
eyjar í samstarf
um þorskveiðar
Grænlendingar og Færeyingar
hyggja á aukiö samstarf í fiskveiðum
og vinnslu. Líklegt er að gömul fær-
eysk verstöð á vesturströnd Græn-
lands verði endurbyggð og rekin af
sameiginlegu hlutafélagi landanna
tveggja. Höfðuðáherslan yrði lögð á
veiöar og vinnslu á þorsk.
í viðskiptablaði Berlingske Tid-
ende er sagt frá því að færeyska
landsstjórnin hafi til athugunar aö
gera upp skuldir verstöðvarinnar í
Færeyingahöfn, skammt frá Nuuk í
Grænlandi. Þegar verstöðin lagði
upp laupana fyrir sex árum skuldaði
hún um 250 milljónir króna. Þegar
skuldirnar hafa verið gerðar upp er
grænlenska heimastjórnin tilbúin til
viðræðna um að stofna hlutafélag
með Færeyingum þar sem meirihlut-
inn yrði í höndum Grænlendinga.
Grænlendingar veiöa meiri þorsk
en vinnslan í landi annar og þeir
hafa orðið að selja óunninn fisk í
útlend verksmiöjuskip. Áhugi þeirra
er að beinast að því að fá aukna af-
kastagetu í landi.
Með samstarfi við Grænlendinga
komast Færeyingar með sinn stóra
flota inn í grænlensku landhelgina
og líklega er það eftirsóknarverðast
í þeirra augum. pv
Á töflunni sést að hásetahluturinn
fyrir þennan eina gám var 36 þúsund
krónur. Ef fiskurinn hefði verið seld-
ur hér heima myndi hásetahluturinn
lækka niður í 15 þúsund krónur.
Allar áætlanir Magnúsar miöast
við að fiskurinn sé seldur á erlendum
markaði. Hann gerir ráð fyrir að 20
prósent af heildarsölu úr hverri
veiðiferð fari í að borga niður lán sem
hvíla á bátnum. Tuttugu prósent af
sölunni, sem dæmi er tekið af hér til
hliðar, eru tæpar 300 þúsund krónur
miðað við verðiö erlendis. En sama
hlutfaU af sölunni hér heima er rúm-
ar 100 þúsund krónur. Mismunurinn
er um 200 þúsund krónur.
„Þaö sér það hver maður að endar
ná ekki saman. Ég fæ með engu
móti staðið við mínar skuldbinding-
ar þegar ég get ekki selt fiskinn þar
sem best verð fæst fyrir hann,“ segir
Magnús og lítur dökkum augum á
framtíðina. Fari svo sem horfir verð-
ur hann gjaldþrota og átta skipverjar
á Fönix KE 111 munu ganga um at-
vinnulausir í Keflavík.
pv
Verður gjaldþrota ef (ram heldur
sem horfir. Magnús Axelsson, út-
gerðarmaður Fönix KE 111.
Samanburður á fisksölu heima og erlendis
Magnítonnum Meðalverð pr.kg. Heildarverð Skilaverð Hásetahlutur
Selt erlendis 13,9 105 kr. 1.460 þús.kr. 1.192 þús.kr. 36 þús.kr.
Seltheima 13,9 40 kr. 556 þús.kr. 556 þús. 15 þús.kr.
Miðað er við einn gám, sem tekur tæp 14 tonn. Meðalverðið er tekið af þorski og ýsu sem selt var i Bretlandi 18.
júlí. Skilaverð fæst meö þvi að draga flutningskostnað frá heildarverði.
TILKYNNING
frá BRIMBORG hf.
• •
• •
SOLUMIÐSTOÐISKEIFUNNI15
Söludeildir Daihatsu og Volvo hafa verið
sameinaðar í glæsilegum salarkynnum í
Skeifunni 15.
Við bjóðum úrval nýrra og notaðra
Daihatsu- og Volvobíla á besta verði markaðarins.
VOLVO OG DAIHATSU GÆÐAÞJÓNUSTA
TRYGGIR BESTU ENDURSÖLUNA.
HARADE
R.
340
Á KR.
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 1 5 - SIMI 691600
BEINN SÍMI VIÐ SÖLUDEILD 691610