Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988.
45 J
Sviðsljós
Staðráðin í að giftast
ekki lögreglumanni
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Ég var staöráðin í því að giftast
ekki lögreglumanni þegar ég var í
lögregluskólanum," sagði Elínborg
Aðils, lögreglumaður á Keflavíkur-
flugvelli, nýkomin úr brúðkaups-
ferð 'frá Ibiza, sólbrún og sæfleg,
ásamt eiginmanni sínum Þorgeiri
Ver Halldórssyni, sem hefur hvaða
starfsheití?
„Auðvitað stóð ég ekki við heitið,
eins og títt er með fólk þegar ástin
er annars vegar. Þorgeir Ver er
lögreglumaður. Starfar hjá sama
embætti og ég á Keflavíkurflug-
velli, nánar tiltekiö í flugstöðinni,
en ég í almennu lögreglunni."
En hvemig fer það saman hjá
ykkur fyrst um vaktavinnu er að
ræöa, lúttist þið ekki sjaldan? „Nei,
svo slæmt er það ekki. Við vinnum
sömu daga og eigum svo frí á sama
tíma og getum þá sinnt hvort
öðru.“
Þau hjónin hafa bæði lokið námi
í lögregluskólanum og kunna vel
við starfið þótt launin séu kannski
ekki ýkja há. „Ég á fjögurra ára
starfsferil að baki í lögreglunni,"
sagði Þorgeir, „og ég hyggst halda
þar áfram.“
Þorgeir hefur gefið sig talsvert
Elinborg gat ekki staðið við heitið og giftist lögreglumanni.
að félagsmálum lögreglunnar. Er
formaður lögreglufélags Suður-
nesja og í varastjórn Landssam-
bands lögreglumanna. „Félagsmál-
in taka sinn tíma, en ég er kominn
með veiðisýkilinn og hann er að
grafa um sig í mér, farinn að taka
nokkuð drjúgt af frístundunum."
En hvað segir konan, er hún
handjárnuð við eiginmanninn í
veiðiferðunum? „Ekki aldeilis. Ég
hef ærinn starfa við heimilið og að
ljúka við að koma nýju íbúðinni
okkar í sæmilegt stand, en við er-
um nýflutt inn að Heiðarbóli 8 í
Kelfavík þar sem ég kann vel við
mig. Ég er Reykvíkingur og starfaði
í tvö ár í höfuðborgarlögreglunni
áður en ég flutti hingað suður,“
sagði Elínborg
Lögregluhjónin kunna vel við
starfið. „Að vísu er það hjá okkur
á vellinum dálítið öðruvísi en í
Reykjavíkurlögreglunni," sagði El-
ínborg. „Hérna er mest hliðgæsla,
kannski ekki beint vinsælt, en
innfrá var starfið fjölbreyttara."
Þorgeir sagði starfið í Flugstöð-
inni sérstakt meðal íslensku lög-
reglunnar. „Við erum vopnaðir og
önnumst eftirlit með ferðum fólks
til og frá landinu. Þrátt fyrir byss-
urnar, sem við verðum að bera, er
starfið ágætt. Við erum innan um
fólkiö og andrúmsloftið í Flugstöö-
inni er alþjóðlegt sem gefur starf-
inu gildi.“
Þorgeir Ver Halldórsson og Elinborg Aðils, nýkomin úr brúðkaupsferð til Ibiza.
SKíMMTISTAÐ irnir
og
í Súlnasal
laugardagskvöld
Mímisbar
í kvöld
fyrir
fag
opinn
19-3.
ÞÓRSC/IFÉ
PÁV
LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 621625
Miðaverð 600 kr.
KVÖLD
Ósóttir miðar
seldir við
innganginn.
Opiö öll kvöld
Hans Blues
Boogie
sunnudag
mánudag
þriðjudag
kl. 22.00.
Ósóttir miðar
seldir við
innganginn.
Miðaverð500kr.
Gömlu og nýju dansamir
Hljómsveit JÓIIS Sig
ásamt söngkonunni
Hjördísi Geirs
leika frá 22-03
laugardagskvöld
UPPSELT Í MAT í KVÖLD.
ÁLFHEIMUM 74. SÍM168622(1
Diskótek
í kvöld
ívar stýrir
tónlistinni
Munið STRANDPARTllÐ á morgun
(■▼■éwál EDISCZ:CÍ>“T"EK |
j ^ f j!í. ?' iS' - %. r ? . t
Hljómsveitin
Gildran
í Zeppelin
Létt og skemmtileg
rokktónlist.
Nýr ferskur staður
rokkunnenda!
Opið ld. 22.00-3.00.
20 ára og eldri kr. 600,-
Hjón kx. 900,-