Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. Spumingin Finnst þér mikið um lausa hunda í borginni? Karl Elvarsson: Nei, ég held ekki. Ingvar Karlsson: Nei, ekki svo ég hafi tekiö eftir. Sveinbjörn Grétarsson: Nei, mér finnst þaö ekki. Mér finnast hundar frábær dýr. Kristín Ragnarsdóttir: Nei, og ekki orðið vör viö neinn sóðaskap eftir þá. Þorsteinn Matthíasson: Mér finnst aUt of mikiö um þá. Mér finnst að banna eigi afit himdahald. Lesendur Mosfellsbæjarmótið reis ekki undir nafni - athugasemd vegna hestaíþróttamóts 1 Mosfellsbæ sem menn eru svo aö kalla íslands- mót. Ég spyr, hvaðan fá menn þessar fullyrðingar? Ég veit ekki betur en að Eyfirðingar hafi haldið mörg íþróttamót á þessu ári, t.d. í Svarfað- ardal, á Akureyri og á Melgerðismel- um í Eyjafirði. Einnig hafa Eyfirð- ingar teldð þátt í mótum með Þingey- ingum. Allt frá því íþróttaráð L.H. var stofnaö hefur verið unnið markvisst að því að íþróttadeildirnar fengju hestaíþróttir viðurkenndar af ISÍ. „Stóra skrefið var stigið á ársþingi íþróttaráðs þann 27. nóv. 1987 á Húsavík að láta til skarar skríða. Á fundinn mætti Sigurður A. Magnús- son, framkvæmdastjóri ÍSÍ, með umboð til þess að bjóða hestamenn velkomna í samtökin. Á þinginu var samþykkt að leggja íþróttaráð niður í þessari mynd um leiö og inngangan í ÍSÍ verður að veruleika". Nú spyr ég, getur það verið að stjórn íþrótta- ráðs hafi dregið stofnun sérsam- bands hestaíþróttamanna á langinn til að útiloka eyfirska knapa og hina rómuðu eyfirsku hesta frá hesta- íþróttamótum á árinu 1988? Getur þá þessi stjórn komið til með að fara með umboö allra hestaíþróttamanna á íslandi í nýju sérsambandi innan ÍSÍ? Góðir hestaíþróttamenn! Ég álít að þetta Mosfellsbæjarmót geti aldrei risið undir nafninu íslandsmót í hestaíþróttum 1988 þar sem sumum hestaíþróttamönnum er BÖNNUÐ ÞÁTTTAKA í MÓTINU. Knýjum á og stofnum sérsamband í hesta- íþróttum sem fyrst þar sem allir hestaíþróttamenn sameinast, eins og við samþykktum á Húsavík í nóv- ember 1987, og höldum svo íslands- mót í hestaíþróttum. Jónsteinn Aðalsteinsson formaður Í.D.L. skrifar: Ég undirritaður, og eflaust margir aðrir, vil mótmæla því að þetta mót verði kallað íslandsmót í hestaíþrótt- um og sigurvegarar hverrar greinar kallaðir Islandsmeistarar. Frá árinu 1978 hefur verið haldiö íslandsmót í hestaíþróttum og hafa allir hesta- menn landsins haft þar rétt til þátt- töku hafi þeir náð lágmarkspunkta- fjölda í einstaka greinum þegar þess hefur veriö krafist. Hingað til hafa þátttakendur þessara móta keppt undir sínu nafni á eigin ábyrgð eins og stendur í leikreglum. Ekki er kraf- ist sérstakrar félagsaðildar keppand- ans í leikreglum, enda oftast ekki getið í mótaskrá né heldur þegar greint er frá úrslitum í fjölmiðlum. Nú allt í einu hefur það gerst að eyfirskum hestamönnum hefur verið BANNAÐ AÐ TAKA ÞÁTT í þessu móti sem haldið var í Mosfellsbæ. Sér er nú hver íþróttaandinn. Allir hljóta að sjá að ekki er hægt að kalla þaö ÍSLANDSMÓT og sigurvegara í einstökum greinum ÍSLANDS- MEISTARA þegar t.d. fyrrverandi og núverandi íslandsmeisturum í ein- staka greinum er allt í einu BÖNNUÐ þátttaka í þessu móti. Einnig hefur komið fram í tímarit- inu Eiðfaxa, 7. tbl. 1988, sem fullyrð- ing að „knapar eyfirsku félaganna geti ekki tekið þátt í íþróttamótum“. Þessi sama skýring var gefin þeim knöpum úr Eyjafirði sem hugðust taka þátt í Mosfellsbæjarmótinu 1988 Jónsteinn var ekki ánægður með að eyfirskum hestamönnum skyldi vera meinuð þátttaka á íslandsmótinu i Mosfellsbæ. Orra finnst timakaupið hjá sumum hárskerum vera óheyrilega hátt. Gott tímakaup Orri hringdi: Hver maöur þarf á klippingu að halda svona endrum og eins og ég hef farið svona mánaðarlq^ í klipp- ingu. En maður er farinn að finna fyrir kostnaðinum vegna þessa því það kostar nú orðið alveg óheyrilega mikið að fara til hárskera. Þar sem ég hef látið klippa mig kostar það 1100 krónur og aðgerðin er hespuð af á 20 mínútum. Það er nokkuö hressilegt tíma- kaup, 3300 krónur á tímann. Þá á aö vísu eftir að draga frá fjármagns- kostnað, en kaupið hlýtur eigi að síð- ur aö vera hátt. Ég get ekki trúað öðru en fjármagnskostnaður hjá til dæmis smið sé meiri og ekki er út- seldur klukkutími hjá honum 3300 krónur á tímann. Annað hefur komið mér á óvart að klippingin virðist vera misdýr þvi kunningi minn, sem lætur klippa sig hjá rakarastofunni „Hár í höndum", borgar ekki nema tæpar 900 krónur fyrir sína klippingu en þar fer afitaf hálftími í verkiö, og þar ekki kastað til höndunum. Er ekki einhver reglu- gerð um kostnað á einfoldustu klipp- ingu, eða er þetta frjálsa samkeppnin sem gerir khppinguna svona „ódýra“? „Poncho“ týndist Sigga hringdi: hver krakki hafi tekið flíkina í mis- A sunnudaginn um verslunar- gripiun og haldið að þetta væru mannahelgina fór ég í tívólíiö í dúkkuíöt. Ég ætla aö vona að ein- Hveragerði. Á bílastæöinu fyrir hvergetigefiömérupplýsingarum utan tivólíið týndist „poncho" eða þessa slá, ef hann veit hvar hún er grænblá slá með hettu sem ptjónuö niðurkomin, og hringi þá vinsam- var á ungbam. Verið getur að ein- legast í síma 671559. Best að búa á íslandi Sigrún skrifar: Eg las í DV frá miðvikudeginum 17. ágúst að þrír íslendingar eiga 100 ára afmæh í vikunni. Auk þess kem- ur fram í greininni að þegar þessi þrjú eru búin að eiga afmæh muni þeir vera 17, íslendingamir sem náð hafa 100 ára aldri og eru lifandi nú. Níræðir og eldri eru sennilega ná- lægt þúsundinu hér og em örugglega fáar þjóðir sem státað geta af tæpu hálfu prósenti þjóöarinnar á þessum aldri. Þessar tölur ættu að færa okk- ur heim sanninn um það að ísland er þrátt fyrir allt, verðbólgu, vísitölu og veðurfar, besta lánd í heimi að búa í. Auk þess vil ég vara fólk við sögn- um um 140 eða 150 ára gamalt fólk sem á aö búa í Sovétríkjunum. Það nær engin mannskepna svona háum aldri, það ættu allir að vita, enda hafa þessar sagnir aldrei verið staö- festar af visindamönnum. Engin mannskepna hefur samkvæmt heimsmetabók Guinness náð 120 ára aldri svo sannað sé. Þessi Japani var 115 ára gamall þegar myndin var tekin af honum og þá elsti skráói maður í heiminum. Líf og hel Ingvar Agnarsson skrifar: Líf og hel táknar ekki aðeins líf og dauða. Líf er ekki það eitt að geta dregið fram lífið einhvern veginn og dauði er ekki þaö eitt að geta losnað undan harmkvælum lífsins. Líf skyldi ávaht stefna fram á leið, th vaxandi fegurðar og þroska, og dauði líkamans skyldi ávaht leiöa th far- sæls framlífs meðal lífstefnumanna á öðrum hnetti, en aldrei th framlífs meðal samvaldra hlmenna í vítum annars hnattar. Stefnur verðandinnar eru tvær, líf- stefna og helstefna. Oröin líf og hel tákna því einnig í raun þessa tvenns konar óhku framlífsdvalarstaði og framlífsmöguleika. Th þess að rata hinn rétta veg er því nauðsynlegt að vita um leiðimar tvær og hvert þær hggja, og leitast við að feta lífsins braut í samræmi við þá vitneskju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.