Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. 7 dv Fréttir Óheppni bílakaupandinn: Þeirfara báðir með ósannindi „Þeir fara báðir með ósannindi. Ég get auðveldlega hrakið hluta af því sem Halldór Snorrason á Aðalbíla- sölunni og Kristinn Valtýsson hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum sögðu í DV í gær. Halldór Snorrason sagði að sölumaðurinn, sem skrifaði undir afsal fyrir hönd seljanda, hefði haft umboð. Við Halldór vitum báðir betur. Seljandinn hefur sagt mér að hann hafi aðeins gefið munnlegt umboð. Við vitum báðir að það er ekki löglegt. Kristinn Valtýsson hjá Bifreiðum og 'landbúnaðarvélum sagði að fyrirtækið hefði aflýst veði sínu af bílnuln strax eftir að þeir seldu hann. Þetta er ekki rétt. Þeir seldu bílinn 7. janúar á þessu ári. Veðinu var ekki aflýst fyrr en 4. júlí, eða tæplega hálfu ári eftir að þeir seldu bílinn. Og rúmum tveimur mánuðum eftir aö ég keypti hann,“ sagði Jón B. Sigurðsson. Eins og kom fram í DV í gær keypti Jón Lödu station árgerð 1986 hjá Aðalbílasölunni í apríl. Jón stað- greiddi bílinn og greiddi fyrir hann 145 þúsund krónur. Á afsali, sem Jón fékk, stóð að seljandi ábyrgðist að engin veðbönd væru á bílnum. Það reyndist ekki rétt. Bíllinn var veð- settur fyrir nærri 700 þúsund krón- ur. Mikil hreyfmg hefur verið á veð- bók bílsins. Nú hvíla á honum nærri 500 þúsund krónur. Jón hefur lítil afnot haft af bílnum frá þvi hann keypti hann. Að kröfu lögfræðings var bíllinn settur í geymslu hjá Vöku. Þá stóð til aö selja bílinn á uppboði. Af því varð ekki og Jón hefur bílinn til umráða í dag hvað sem síðar verður. -sme EINSTAKT TÆKIFÆRI allt að Opið á morgun, laugar- dag, kl. 10-14 AFSLÁTTUR "ft'pUírH' PA&4Z Æ FISHER HLJOMFLUTNINGSTÆKI MYNDBÖND-SJÓNVÖRP ÚTVÖRP 0G FLEIRA Sjónvarpsmiðstöðin hf. Laugavegi OA Sími 62-19-90 **** UTSALA UTSALA UTSAI.A Sendum í póstkröfu »hummel Ármúla 40 Reykjavík — sími 83555 AFSLATTUR Opið laugardaga 10-12.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.