Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. Fréttir Vantar heilt ráðuneyti yfír verðlagsákvarðanir - segir „Viö gerum okkur grein fyrir tvennu, fyrirtækin verða aö hafa rekstrargrundvöll og til þess að fyrir- tækin gangi þurfa þau aö hafa gott starfsfólk sem er vel launað,“ sagði Pétur Sigurösson, formaður Alþýðu- sambands Vestfjarða. „Það er alger óþarfi að þeir sem eru á beru taxtakaupi beri nokkuð af þunga efnahagsaðgerðanna. Það er fólk sem er með tvöfóld og allt upp Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða í sexfóld laun verkafólks. Það er þetta fólk sem á að skila einhverju til baka. Með niðurfærslu gerum við það í raun. Á sama hátt og sama pró- sentutalan hefur verið látin ganga upp allan launastigann þegar laun hafa vérið hækkuð þá mun sama prósentutalan ganga niður allan stig- ann þegar kaupið er lækkað." - Er ekki sama hvort farin verður gengisfellingar- eða niðurfærsluleið? Þeir sem hæstu launin hafa geta allt- af bjargað sér með launaskriði. „Það þarf ekkert að vera. Þessi leið er mun erfiðari en hefðbundin geng- isfelling. Það getur hvaða smákrakki sem er fellt gengið. En það þarf virki- lega sterka stjómendur til þess að fara niðurfærsluleiðina. Það yrði aö afnema ftjálsa álagningu algerlega. Það yrði sennilega verkeöii fyrir heilt ráðuneyti að fylgjast með því að það gengi eftir. Það má ekkert til spara ef þetta á að takast.“ - Ert þú ekki að tala um risastökk aftur á bak í tímann? „Menn stukku aftur á bak í tímann með því að leyfa þetta frelsi. Þegar við bjuggum við það að verðlag var ákveðið af hinu opinbera höfðum við úr miklu meira að spila til allrar uppbyggingar. Það getur vel verið að það standist hjá milljónaþjóðum að hafa frjálsa samkeppni. Hér era matvörur 50 prósent dýrari en ann- ars staðar á Norðurlöndunum þrátt fyrir að vöruverð hafi verið hér frjálst í langan tíma. Ég var alltaf á móti því að afnema verðlagsákvarð- anir. Það er versti ljóðurinn á Al- þýðusambandinu að þing þess skyldi mæla með þessu. Það var bara vit- leysa. Þetta gaf okkur ekki neitt,“ sagði Pétur Sigurðsson. -gse Kolbeinsey afrækt - getur komiö okkur í koll, segir Stefán Guðmundsson þingmaöur LítO eyja norður af landinu getur horfið í sjó og meö henni færa 10 þúsund ferkílómetrar af gjöfulum fiskimiðum úr landhelgi íslendinga. Kolbeinsey er kallaður útvörður Is- lands í norðurhöfum og út frá henni reikna íslendingar miðlínu fiskveiði- lögsögunnar milli íslands og Græn- lands. „Það mun koma okkur í koll ef við styrkjum ekki okkar rétt á eynni,“ segir Stefán Guðmundsson þingmað- ur en hann hefur beitt sér fyrir því að stjórnvöld sýni Kolbeinsey rækt- arsemi. Danir hafa fyrir hönd Grænlend- inga vefengt rétt íslendinga til að miða fiskveiðilögsöguna við þessa afskekktu eyju. Rökin era meðal annars þau að íslendingar hafi engar nytjar af eynni. Á Kolbeinsey er ekkert siglinga- merki né nokkuð annað sem stað- festir eignarhald íslands á eynni. Árið 1964 var sett upp siglingamerki en það stóðst ekki veður og vinda norðurhafa og fór í sjóinn fyrsta vet- urinn. Stefán segir það kosta sáralít- ið að setja upp sjómerki sem séu nægilega traust til að standast ágang sjávar. Hann telur einnig skynsam- legt að setja upp sjálvirka veðurat- hugunarstöð á eynni. Kolbeinsey er alltaf að minnka. Fyrir 350 áram var hún mæld 700 metrar á lengd. Núna er hún aðeins 40 metrar á lengd. Jarðfræðingurinn Kristján Sæmundsson hefur rann- sakað Kolbeinsey. Hann telur að fái náttúran að vinna sitt verk muni eyjan hverfa að mestu 1 sjó um miðja næstu öld. Hugmyndir hafa verið uppi um að steypa Kolbeinsey upp og verja hana þannig ágangi sjávar. Sigurður Sig- urðarson, verkfræðingur Hafna- málastofnunar, segir frekari rann- sóknir þurfa áður en hægt sé að gera sér grein fyrir þeim kostum sem standi til boða. í skýrslum Vitastofnunar íslands kemur fram að stofnunin hafi í tví- gang sótt um íjárveitingu upp á 3 milljónir króna til að setja upp sjó- merki og ljúka dýptarmælingum við Kolbeinsey. Beiðninni var hafnað í bæði skiptin og liggur núna í þriðja sinn fyrir fjárveitinganefnd. pv Kolbeinsey er kölluð útvörður Is lands i norðurhöfum. Hverfi hún í sjóinn gætu gjöful fiskimið tapast. Rækjuverksmiöja O.N. Olsen á ísafiröi: Kröfuhafi óskar gjaldþrotaskipta Oddi h/f á Akureyri hefur óskaö Pétur Hafstein, bæjarfógeti á gjaldþrotaskipta er hætta á aö þess að Rækjuverksmiðjan O.N. Qls- ísafirði, sagði að skiptastefha hefði mörgfyrirtækiáísafirði,semþjón- en á ísafirði veröi tekin til gjald- veriö send fyrirtækinu og skipta- usta sjávarútveginn, tapi umtals- þrotaskipta. Rækjuverksmiðjan fundur veriö ákveðinn 26. ágúst veröufé.O.N.Olsenernæststærsta skuldar Odda tæplega tvær milljónir Fram til þess tima hefur Rækju- rækjuverksmiðja á Vestfjörð- króna auk vaxta og kostnaöar. Áður verksmiðjan möguleika á að greiða um. hafði verið reynt fjáraám í eignum eða semja við Odda um skuldina. -sme fyrirtækisins en án árangurs. Ef O.N. Olsen verður tekið til Hafiiaði aö vera „maður vikunnar^: „Tek ekki þátt í þessum leík“ „Þegar ég sá þáttinn „Maður vik- unnar“ á síðasta laugardegi gekk svo fram af mér að ég ákvað að taka ekki þátt í þessum leik með Sjónvarp- inu,“ sagði Þórhildur Þorleifsdóttir alþingiskona en hún hafnaði beiðni dagskrárgerðarmanns ríkissjón- varpsins um að koma fram í þættin- um. í samtali við DV sagði Þórhildur að þessi þáttur væri dæmi um það viðhorf sem tröllriði öllum fjölmiðl- um og gengi út á það eitt að hampa frægu fólki og skilgreina hver er að gera eitthvað merkilegt. „Þá hef ég nú einhvern veginn á tilfinningunni að eitthvað hafi fariö úrskeiðis á laugardaginn því það var hringt í mig snemma á mánudags- morgun og ég beðin að koma í þátt- inn. Það er eins og menn vilji nota mig til að finna eitthvað jafnvægi svo þeir geti sagt: Við erum ekki bara með Birgi, Davið og Hannes Hólm- stein heldur einnig Þórhildi. Þannig ætla þeir að breiða yfir tilgang þátt- anna.“ Þórhildur sagði að hún hefði verið ánægð með þættina í upphafi þegar Sigrún Stefánsdóttir fór af stað með þá en horft hefði til verri vegar síðan. Baldur Hermannsson hjá Sjón- varpinu sagði að Þórhildur væri ekki sú fyrsta sem neitaði að vera með í þættinum. Sagði hann að meðal ann- arra hefðu Jóhanna Sigurðardóttir, Páll Pétursson, Lúðvík Jósepsson, Guðjón B. Ólafsson og Valur Am- þórsson hafnað þátttöku. Dæmið með Þórhildi væri því ekki einstakt. -SMJ I iil Enn virðast deilur innan Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík harðna. Nú hefur verið skipt um skrár i safnaðarheimilinu Betaníu. Áður hafði verið skipt um skrár í kirkjunni. DV-mynd BG Getraunlr: Handboltatippseðill Sú hugmynd hefur komið fram hjá Getraunum að farið verði af stað meö sérstakan handboltatippseðil fyrir ólympíuleikana. Slíkum seðli var dreift í febrúar 1986 fyrir heims- meistaramótið í Sviss og kom vel út. Stjóm íslenskra getrauna á eftir að ákveða hvort þessum seðli verður komið í umferð, þá í samvinnu við Handknattleikssamband íslands. Ólympíuseðillinn yrði síðasti get- raunaseðillinn með gamla laginu og formið eins. Tólf leikir, verð tíu krón- ur og skipting sú sama og fyrr: 70% í fyrsta vinning og 30% í annan vinn- ing. Leikimir verða leiknir á tímabil- inu frá 26. september til 28. septemb- er og ættu úrslit að liggja ljós fyrir klukkan 11 rnn morguninn. Þegar hefur komið fram hugmynd um leik- ina á seðlinum og lítur sú hugmynd þannig út: Ísland-Júgóslavía, Spánn-Ungverjaland, Bandaríkin- Svíþjóð, Tékkóslóvakía-Vestur- Þýskaland, Alsír-Sovétríkin, Jap- an-Suður-Kórea, Bandaríkin-Alsír, Tékkóslóvakía-Japan, Ísland-Sovét- ríkin, Spánn-Suðm--Kórea, Júgó- slavía-Svíþjóð og Ungveijaland- Austur-Þýskaland. Um þessar mundir er verið að hanna beinlínu hugbúnaðarkerfi fyrir íslenskar getraunir. Stökk- breyting verður á dreifingarkerfi ís- lenskra getrauna og verður get- raunaseðlmn framtíðarinnar stungið í lottókassana, sem þegar eru á flest- um þéttbýlisstöðum á landinu. Landsmenn munu þá standa jafnt að vigi hvað varðar getraunir. Hug- búnaður þessi verður ekki tilbúinn fyrr en um miðjan október og verða tipparar að bíða þolinmóðir á meðan, því ekki verður farið af stað með gamla dreifingarkerfiö í ágúst eins og hefur tíðkast hingað til. E.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.