Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Side 24
40
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Tilsölu
I TÉT^TA Hamraborg 1. 200 Kópavogi lceland Box 317. * 641101 1
/ooo stk
VERÐ1980
Prentun. Þarft þú að láta prenta eitt-
hvað? Við prentum allar gerðir lím-
miða. Na&ispjöld. Bréfsefni. Umslög.
Blöðrur. Penna. Dagatöl. Dagbækur.
Lyklakippur. Eldspýtur o.fl. Einnig
útvegum við stimpla á 2 dögum Kann-
aðu verðið, það gæti borgað sig.
Textamerkingar, sími 91-641101.
■ Verslun
KAYS pöntunarlistinn. Vetrartískan frá
Roland Klein-Burberrys-Mary Qu-
ant-Kit-YSL-Belley o.fl. Búsáhöld,
leikföng, gjafavara. Kr. 190 án/bgj.
Pantið skólafötin tímanlega. B.
Magnússon, Hólshrauni 2, sími 52866.
Otto pöntunarlistinn er kominn. Nýjasta
tískan frá Evrópu o.fl. Allar stærðir.
Til afgreiðslu að Tunguvegi 18 og
Helgalandi 3. Símar 91-666375 og
33249.
■ Húsgöqn
Nýkomnir Bauhaus stólar, úr leðri og
krómi, verð frá kr. 3650, einnig gler
og krómborð. Nýborg, Skútuvogi 4,
s. 82470.
■ Bátar
Birgðir af nýjum og spennandi tölvu-
leikjum á góðu verði. G.Óskarsson &
Co, Laugavegi 18, 5. hæð, símar
91-17045 og 15945.
Simatölvur fyrlr 400 nöln og simanúm-
er. Ótal aðrir möguleikar. Henta vel
fyrir skrifstofur og skólafólk. G.
Óskarsson & Co., símar 91-17045 og
15945.
Vlð smiðum stigana. Stigamaðurinn,
Sandgerði, símar 92-37631 og 92-37779.
Utsala Gam á góðu verði í skólapeys-
umar, handav. og margt fleira. Opið
10-13 á laugard. Hannyrðaversl.
Strammi, Óðinsg, 1, s.13130.
Rafstöðvar fyrir: handfærabáta, spara
stóra og þunga geyma, sumarbústaði,
220, 12 og 24 volta hleðsla, iðnaðar-
menn, léttar og öflugar stöðvar. Verð
frá kr. 27.000. Vönduð vara.
BENCO hf„ Lágmúla 7, sími 91-84077.
■ Bflar til sölu
Chevy Van 20 ’85, verð 880 þ. (tilb.),
skipti koma til greina, einnig Blazer
Silverado ’81. V8 350 með öllu, verð
750 þ. (tilb.). Sími 91-651824 og 38612.
Yamaha FJ 1200 mótorhjól. Til sölu er
eitt af glæsilegri superhjólum lands-
ins, ’87, ekið 1400 km, gott verð, nýjar
töskur fylgja. Uppl. í síma 91-79196.
Ford Escort RX3I '85 til sölu, ekinn
50.000, sóllúga, litað gler, 5 gíra. Topp-
bíll. Verð 520 þús., skipti á ódýrari.
Uppl. í síma 673028 e.kl. 18.
Lltli-Sprækur tll sölu, Volvo B-20 vél,
ný dekk og felgur o.fl. sniðugt. Uppl.
í símum 52931 og 652242.
Til sölu M. Benz 2228 '82. Uppl. í símum
96-41510 frá kl. 9-17 og 9641311 eftir
kl. 19.
Opel GT’69 til sölu ef viðunandi tilboð
fæst. Skipti koma mjög vel til greina.
Uppl. í síma 74059.
■ Ýmislegt
GMC Van árg. ’78, með sætum fyrir 11,
til sölu. Uppl. í síma 91-73793 og 985-
20315.
FORÐUMST EYÐNI CCi
HÆTTULEC KYNNI i
Landsbyggðarfólk. Lítið inn á leið ykk-
ar til Rvíkur. Notið laugard. Yfir 100
mism. teg. hjálpartækja f/konur, auk
margs annars spennandi, mikið úrval
af geysivinsælum tækjum f/herra.
Verið ófeimin að koma á staðinn. Sjón
er sögu ríkari. Opið 10-18 mán-
föstud., 10-16 laugard. Erum í húsi
nr. 3 við Hallærisplan, 3. hæð, s. 14448.
Ung, djörf og sexi. Frábært úrval af
hátískunærfatnaði á dömur sem vilja
líta vel út og koma á óvart, kjörið til
gjafa. Frábært úrval af rómantískum
dressum undir brúðarkjóla, sem koma
á óvart á brúðkaupsnóttina,að
ógleymdum sexí herranærfatnaði.
Sjón er sögu ríkari. Rómeó og Júlía.
LJósmyndavlnna. Stækka og lita gaml-
ar myndir. Ljósmyndarinn, Mjóuhlíð
4, jarðhæð, sími 23081. Opið frá kl.
13-19. Sanngjamt verð.
Fréttir
Nýja flugstööin.
DV-mynd Jóhann
Nýflugstöð á
Vopnafírði
Jóharm Ámason, DV, Vopnafirði:
Það er nokkuð um liðið síðan hin
nýja flugstöð okkar Vopnfirðinga var
tekin í notkun þótt hún hafi verið
vígð formlega nú nýverið. Fyrsti far-
þeginn, sem fór í gegn í nýju stöð-
inni, fékk ókeypis flugfar til Reykja-
víkur í boði Flugfélags Norðurlands
og Flugleiða. Nú hefur gamla flug-
stöðin verið rifin upp með rótum og
plantað niður á nýjum stað, við
íþróttavöllinn.
Það var Matthías Á. Mathiesen
samgönguráðherra sem fram-
kvæmdi vígsluna. Auk hans voru
viðstaddir Guðmundur Matthíasson
varaflugmálastjóri, Ingólfur Arnar-
son, umdæmisstjóri Flugmálastjóm-
ar á Austurlandi, Jóhann H. Jónsson,
framkvæmdastjóri flugvalladeildar
Flugmálastjómar, þingmenn Aust-
urlands, sveitarstjómarmenn hér á
Vopnaflrði, iðnaöarmenn og aðrir
sem við bygginguna unnu og svo að
sjálfsögðu flugvallarstjórinn Bragi
Dýrfjörð.
Ingólfur Amarson bauð gesti vel-
komna og séra Sigfús J. Ámason
blessaði bygginguna. Jóhann H.
Jónsson rakti síðan sögu hússins í
stórum dráttum. Byijað var á undir-
stöðum og botnplata steypt árið 1986.
Trésmiðir Flugmálasljómar klámðu
húsið síðan að utan 1987. Það vora
svo iðnaðarmenn Kaupfélags Vopn-
firðinga sem fullgerðu húsið aö inn-
an. Arkitekt hússins er Benjamín
Magnússon.
Næstur tók til máls samgönguráð-
herra, Matthías Á. Mathiesen. Lét
hann þess getið að þessi flugstöð
væri sú fyrsta sem risi eftir nýrri
flugmálaáætlun sem samþykkt var á
síðasta þingi. Kom hann einnig inn
á mikilvægi stöðvarinnar í sam-
göngumálum byggðarinnar. Lýsti
hann síðan yfir opnun stöðvarinnar
og óskaöi Vopnfirðingum til ham-
ingju.
Guðmundur Matthíasson bar sam-
an aðstöðuna eins og hún var þegar
hann kom með flugi á Vopnafjörð
fyrir 18 árum. Þá sljómaði Bragi
Dýrfjörð flugumferðinni úr jeppabif-
reið sem stóð hjá flugbrautinni. Síð-
an hefur runnið mikið vatn til sjávar
og nú er risin glæsileg aðstaða fyrir
starfsmenn jafnt sem farþega. En
flugumferðin gengur ekki síður fyrir
góðu starfsfólki en góðri aðstöðu og
þakkaði Guðmundur Braga Dýrfjörð
fyrir vel unnin störf á undanfómum
árum og sagðist vona að starfskrafta
hans nyti lengi enn.
Alþingismennimir Jón Kristjáns-
son, Hjörleifur Guttormsson og Egill
Jónsson tóku einnig til máls og ósk-
uðu Vopnfirðingum og aðstandend-
irni stöðvarinnar til hamingju með
áfangann. Sveinn Guðmundsson,
sveitarstjóri Vopnfirðinga, sté einnig
í pontu og lagði áherslu á mikilvægi
flugsamgangnanna fyrir sveitarfé-
lagið sökum lélegra samgangna á
landi.
Það er almennt mál manna að flug-
stöðin sé hin glæsilegasta og verði til
stórbóta fyrir flugsamgöngur á
Vopnafirði. Það eina sem nú háir
verulega almennri notkun flugsins
er hið himinháa verð á fargjöldum.
Það kostar Vopnfirðinga t.d. um
12.000 kr. að skjótast í höfuðstaðinn.
Þegar búið verður að ráða bót á þess-
um agnúa á flugmálunum í landinu
er ekki að efa að flugið myndi verða
mun ríkari þáttur í samgöngum en
það jafnvel er nú.
Þeir voru ánægðir með nýju flugstööina. Frá vinstri Finnur Þór Dýrfjörð,
starfsmaður við Vopnafjarðarflugvöll, Matthias Mathiesen ráðherra, Bragi
Dýrfjörð flugvallarstjórl og Guðmundur Matthiasson varaflugmálastjóri.
í frétt DV í fyrradag var frá því
sagt að í rannsóknarbeiðni ríkissak-
sóknara varðandi Helgarpóstinn
kæmu fram alvarlegar ásakanir á
hendur ritsfjóra HP. Af þessu tilefni
skal tekið fram að ásakanir þessar
beinast ekki að Halldóri Halldórs-
syni, Ólafi Hannibalssyni né Helga
Má Arthurssyni, fyrram ritsljórum
HP.
Helgar-
pósturinn
DV-mynd: Jóhann.
Bókstafurinn ó getur breytt
miklu. í frétt í DV í gaer var haft
eftir Þórði Hilmarssyni, forstjóra
Steinullarverksmiðjunnar á
Sauðórkróki, aö hann teldi líklegt
að hagnaður yrði á rekstri verk-
smiðjunnar í ár. Þama féll niður
ó og breytti allri fréttinni. Þórður
sagði að hann teldi ÓLÍKLEGT
að hagnaður yrði í ár. Þetta leið-
réttist hér með. -Fréttasfj.