Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1988, Qupperneq 26
42 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988. Andlát Guðjón Hallsson, Lækjarvegi 2, Þórs- höfn, andaðist í Kristnesspítala mið- vikudaginn 17. ágúst. Jarðarfarir Albert J. Finnbogason, Hallkels- hólum, Grímsnesi, verður jarðsung- inn frá Selfosskirkju laugardaginn 20. ágúst kl. 13. Jarðsett verður í Sel- fosskirkjugarði. Guðmundur Kr. Símonarson, Holts- götu 12, Reykjavík, verður jarðsung- inn frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. ágúst kl. 13.30. Frímann Stefánsson, Blómsíurvöll- um, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju laugardaginn 20. ágúst kl. 14. Jaröarför Sigfúsar Sigurðarsonar frá Nautabúi, fyrrv. verkstjóra RARIK, Víðigrund 4, Sauðárkróki, er lést 14. ágúst sl., fer fram frá Sauðárkróks- kirkju laugardaginn 20. ágúst 1988 kl. 11 fyrir hádegi. Sverrir Guðnason lést 13. ágúst sl. Hann var fæddur 23. desember 1937 að Haukabergi á Barðaströnd. For- eldrar hans voru Ásgerður Einars- dóttir og Guðni Guðmundsson. Sverrir ólst upp að Neðri-Bæ í Ketil- dalahreppi hjá móður sinni og manni hennar, Elíasi Melsteð, er gekk hon- um í föðurstað. Sverrir stundaði sjó- mennsku á fiskibátum og togurum að loknu skyldunámi en settist síðan á skólabekk í Samvinnuskólanum og lauk þaðan prófi 1962. Að loknu námi fór Sverrir til starfa hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga á Höfn í Hom- arfirði þar sem hann var fyrst í stað verslunarstjóri en fékkst siðar við ýmis önnur störf, svo sem varðandi tryggingar og útgerö hjá kaupfélag- inu. Eftirlifandi eiginkona hans er Erla Ásgeirsdóttir. Þau eignuðust eina dóttur saman. Erla átti fyrir son sem Sverrir gekk í föðurstað. Útför Sverris verður gerð frá Hafnarkirkju í Hornarfirði laugardaginn 20. ágúst kl. 14. Ferðalög Ferðafélag íslands Helgarferðir 19.-21. ágúst 1. Þórsmörk - Rjúpnafell. Gist í tjöldum í Stóraenda. 2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. Gönguferðir um Mörk- ina. 3. Landmannalaugar - Eldgjá. Gist i sæluhúsi Feröafélagsins í Laugum. Upp- lýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsins, Öldugötu 3. Dagsferðir sunnudag 21. ágúst 1. Kl. 8 Þórsmörk. Dagsferð. Verð kr. 1.200. 2. Kl. 10 Höskuldarvellir - Selsvallafjall - Vigdísarvellir. Ekið að Höskuldarstöð- um og gengið þaðan á Selsvallafjall um Vesturháls að Vigdísarvöllum. Verð kr. 800. 3. Kl. 13 Krýsuvík - Vigdísarvellir. Verð kr. 800. Miðvikudaginn 24. ágúst - Þórsmörk - dagsferð. Brottfór frá Umferðarmiöstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bil. Frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 19.-24. ágúst (6 dagar) Landmannalaug- ar - Þórsmörk. 24.-28. ágúst (5 dagar): Landmanna- iaugar - Þórsmörk. 26.-31. ágúst (6 dagar) Landmannalaug- ar - Þórsmörk. Meiming_________________dv í leit að lostanum Viðar Eggertsson og Erla B. Skúladóttir: Hjúskapartryggð eða hjúskapar- brot? DV-mynd JAK Það væri synd að segja að starfsemi Alþýðuleikhússins félli í mjög fastar og reglulegar skorður eða rásir. Húsnæðishrak þess ætti að vera á allra vitorði, enda skjóta sýningar þess upp kollinum hér og þar í borginni, nú síðast í Ásmund- arsal, sem hingað til hefur meir verið orðaður við myndlist en leik- list, og byrjar jafnframt leikárið á nokkuð óvenjulegum tíma, á af- mæli Reykjavíkurborgar um miðj- an ágúst, líkt og það vilji þjófstarta í menningarkapphlaupi vetrarins. En þótt staður og stund séu með nokkuð óvenjulegu og nýstárlegu móti virðast hins vegar ekki famar nýjar brautir í verkefnavali því þetta er íjórða Pinterleikritið í röð á skömmum tíma og tvö hin fyrri raunar einnig á vegum Alþýðuleik- hússins. Aðstandendur segja að vísu aö verið sé aö bæta fyrir langa van- rækslu á þessum merka höfundi - en hvað skyldu þeir vera margir, merkishöfundarnir sem við íslend- ingar höfum ekki vanrækt? Þetta ber óneitanlega nokkum keim af því sem tíðkast í viðskiptalífi voru, aö gangi eitthvað vel (og fyrri Pint- ersýningar vom afar vel heppnað- ar) þá þurfa allir aö gera slíkt og hið sama uns markaöurinn er mettaður. Og ekki verður heldur séð að leik- hús, sem kennir sig við alþýðu, ætti einmitt að bera Pinter fyrir brjósti, því þessi breski efrimilli- stéttarhöfundur er fremur lítt vió alþýðuskap og verk hans laus viö þá þjóðfélagslegu skírskotun og hugsjónir sem alþýðusinnar vilja eigna sér. En hvað sem því líður vakti sýn- ing Alþýðuleikhússins á Elskhug- anum þá spumingu hjá undirrituð- um hvers vegna einmitt þetta leik- rit, sem skrifað er 1962, heföi ekki verið flutt fyrir löngu hér á landi því það hentar mjög aðstæðum þeirra leikhúsa okkar sem eiga við aðstöðuleysi og fjárskort að glíma en hafa á að skipa fæmm leikurum pg eiga vísa þakkláta áhorfendur. í þessu samþjappaða leikriti nýtur sín einkar vel hugkvæmni Pinters og kunnátta í að byggja upp spenn- andi efnisþráð sem afhjúpar sálar- líf persónanna lið fyrir lið og koma áhorfendum stöðugt á óvart og vekja hjá þeim spurningar. Viö sjáum hér hjónafólk hneppt í hversdagsskorður og vanabundið samlif, sem leitar sér uppbótar á óvenjulegri hátt en margt annað fólk í þess sporum. í stað þess að stunda framhjáhald út um allan bæ, hvort öðru til hneisu og skap- raunar, taka þau það ráð að tví- skipta sér á þann hátt að hin snyrti- lega og settlega viðskiptablók breytist í kynóðan melludólg og vitjar sjálfur konu sinnar á síðdeg- isstundum sem viðhald „meðan maðurinn er í vinnunni" - og það ekki sem htlausrar húsmóður held- ur í gervi æsilegrar væhdiskonu. Með þessu hleðst hið útkulnaða samband þeirra spennu og losta og draumamir fá útrás. Eiginmaðurinn getur þannig not- ið þess að vera í senn eljari og kokkáll sjálfs sfn og velt sér upp úr afbrýðisemi í eigin garð og tor- tryggni í garð konunnar sem verð- ur hálfu girnilegri fyrir bragðið og nýtur þess sjálf aö fá uppveðrað viöhald í heimsókn fremur en leið- inlegan eiginmann. Það er býsna fróðlegt að fylgjast meö framvindu mála í verkinu, ekki endilega til að öðlast hagnýta fræðslu til eftirbreytni í eigin lífi heldur af því að Pinter birtir okkur ýmsa almen'na þætti mannlífsins. Eins og að ofan segir hefur Al- þýðuleikhúsið að þessu sinni hasl- að sér völl í Ásmundarsal, sem verður þó vonandi ekki nein enda- stöð þess í langvarandi húsnæðis- hraki. Þótt þessi salur kunni að hæfa einhverjum leikritum er hann ekki að öllu leyti heppileg umgjörð utan um leikrit af þessu Leiklist Kristján Árnason tagi, þar sem skapast þarf mjög spennuþrungið andrúmsloft og leikpersónurnar þurfa að vera í miklu návígi og aðþrengdar. Hið opna svæði, sem áhorfendasætum er raðað kringum, þar sem taka þarf tillit til margra sjónarhorna, gerir Ingunni Ásdísardóttur leik- stjóra erfitt um vik við staðsetning- ar og áhorfandi, sem hefði áhuga á að gaumgæfa svipbrigði leikar- anna, verður oft að láta sér lynda að þeir snúi við honum baki og spanderi svipbrigðunum á áhorf- endur sem sifja beint andspænis honum þannig að hann verður að lesa téð svipbrigði af andlitum þeirra. Hreyfmg persónanna fram og aftur um sviðið gerir þær vissu- lega lifandi en tvístrar þeim nokk- uð og undirstrikar fremur tengsla- leysi þeirra en það sem bindur þær saman, þrátt fyrir aUt, í þrúgandi sambúð. Sviðsmynd Gerlu, sem samanstendur af bleikmáluðu rúmi og borði, þjónar í einfaldleika sínum vel sínum tilgangi og eink- um er borðið notað til hluta sem öllum hefur kannski ekki dottið í hug að nota borð til. En eins og endranær eru það leik- persónumar sem ljósinu er beint að og afhjúpun þeirra það sem allt snýst um og myndar spennu. Sú spenna nærist ekki síst á mismun- inum milli þess sem þær sýna og þess sem býr undir, milli skorða hversdagslífsins og drauma þeirra. En oft er engu líkara en hið síðar- nefnda sé lítið annað en það sem þær búa til sjálfar og að höfuðein- kenni þeirra sé ástríðuleysi þannig að lostalíf þeirra verður varla nema sem sjálfsfróun með lifandi brúðum. í þessu leikriti em aðal- persónurnar tvær því sú þriðja birtist einungis í skötulíki. Þetta fámenni háir auðvitaö ekki aðal- leikaranum, Viðari Eggertssyni, sem hefur ekki látið sig muna um að halda uppi heilum sýningum með eintah. I þessu leikriti reynir einkum á tvískinnungshátt í fari eiginmannsins og einhverra hluta vegna nýtur hann sín betur sem hinn bældi hversdagsmaður held- ur en þar sem hann sleppir fram af sér beislinu. Viðar er leikari sem dregur athyglina að sér og samspil við hann kann því að reynast er- fitt. Erlu Skúladóttur tekst þó að fá sinn skerf enda hefur hún útlitið og sköpulagið með sér og því er óspart teflt fram í sýningunni. Erla virðist kannski nokkuð dauf í byrj- un, en sækir í sig veðrið og túlkun hennar getur jafnvel orðið býsna mögnuð á köflum. Orðræður Pinters eru hnitmiðað- ar og lúmskar og oft meinfyndnar undir sínu flatneskjulega yfirborði og orðfærið yfirleitt eðlilegt í munni persónanna í þýðingu leik- stjórans og Martins Regal sem einnig ritar fróðlegan pistil um höfundinn í leikskrá. Tónlist Lár- usar Grímssonar myndar notalegt mótvægi við fábreytileika húsrým- isins og að því sama miðar lýsing Egils Ámasonar. Hér er sem sagt vel af stað farið hjá Ingunni Ásdísardóttur og hennar liði og sýningin minnir okkur enn á þörf þess aö því áhuga- sama hæfileikafólki, sem stendur aö Alþýðuleikhúsinu, sé veittur fullur stuðningur. Menn bíða spenntir næstu sýningar þess, hvar svo sem hún verður og hvort sem þar verður á ferðinni verk eftir Pinter eða einhvern annan. Kvikmyndir Stjömubíó: Von og vegsemd Lelkstjóri, framleióandi og höfundur handrits: John Boorman Kvlkmyndataka: Philippe Rousselot Aðalhlutverk: Sarah Miles, David Hay- man, Derrick O’Connor, Susan Wo- olridge, Sammi Davis, lan Bannen Það virðist í tísku meðal kvik- myndaleikstjóra að gera myndir um síðari heimsstyrjöldina séða með augum bama. Skemmst er að minnast myndar Lous Mallé, Au Revoir les Enfants, og myndar Spi- elbergs, Veldi sólarinnar. Um þess- ar mundir er enn ein slík í Stjömu- bíói, mynd Johns Boorman, Von og vegsemd. Þessar myndir eiga tvennt sam- eiginlegt. Þær lýsa stríðinu meö augum smástráka og þær eru snilldarverk. Lengra nær saman- burðurinn ekki, hver mynd um sig er mörkuð persónuleika leikstjóra síns. Von og vegsemd lýsir stríðinu eins og þaö er í augum níu ára drengs í London. Karlmennirnir rjúka á vígvöllinn, eftir em gamlir menn, konur og böm. Þetta fólk þarf að þola stöðugar loftárásir og Afi reynir að kenna strák að róa. skort á helstu nauðsynjum. En rjúkandi rústir borgarinnar verða börnunum ævintýraheimur. Mynd þessi var útnefnd til fimm óskarsverðlauna. Það segir sitt um þessi verðlaun að hún skyldi ekki hljóta þau. Myndin er einstaklega vel gerð í alla staði og ekki hnökra að sjá. Leggst þar allt á eitt. Handrit Boormans er persónu- legt og fufit af hlýju skopskyni. Honum tekst ótrúlega vel að túlka ótrúlega rökvísi barna. Aðstæður í stríði eru hálffáránlegar og gerir Boorman sér mikinn mat úr því. Kvikmyndataka var útnefnd til óskarsverðlauna og hefði hún átt þau skilið. Þegar saman kemur þvílík taka og jafnstórkostleg sviðs- mynd og í þessari mynd skapast sá ævintýraheimur sem bömin heill- uðust af. Rjúkandi rústirnar eru tækar sem sviðsmynd í hvaða leik- verk Becketts sem vera skal. Leikur er einnig stórgóður. Börn- in eru einstaklega sannfærandi og afinn, sem er gamall nöldurseggur, er svo góður í hlutverki sínu að salurinn veltist um af hlátri viö það eitt að sjá andlitiö. Og glaöleg jitter- bugtónlistin gerir sitt til að auka á fáránleikann. Boorman hefur tekist að skapa yndislegt listaverk og ætti enginn að láta myndina fram hjá sér fara. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.