Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 10
10 Útlönd DV Fundinum lokið Leiðtogar Ungverjalands og Rúmeníu luku fundi sínum í gær. Símamyrtd Reuter Léiðtogi Ungveijalands, Karoly Grosz, sneri heim á ný í gær eftir aö fundi hans með forseta Rúmeníu, Nicolae Ceausescu, lauk. Þetta er í fyrsta sinn sem leiötogarnir funda í ellefu ár. Viðræður leiðtoganna snerust helst um það hvaða afleiðingar hinar nýju landbúnaðaráætlanir Ceausescu forseta myndu hafa í för með sér. Forsetinn hyggst leggja í rúst átta þúsund þorp í Transylvaníu-héraði til að byggja upp landbúnaðinn í héraðinu. Flestir íbúar þorpanna eru af ungverskum ættum. Áætlanir Rúmeníuforseta hafa verið gagnrýndar mjög um allan heim og segja margir að menning og saga ungverska minnihlutans í Rúmeniu, sem er um tvær milljónir, myndi hverfa að eilífu. Niðurstöður viöræðnanna hafa ekki verið gerðar opinberar. Oiíusprenging í Mexíkó Ellefu manns létu lífið og flmmtíu slösuðust þegar sprenging varð í olíuleiðslu Pemex olíufélagsins í Veracruz í austurhluta Mexíkó í gær. Miklir eldar geisuðu í kjölfar sprengingarinnar og þurftu á milli átta og tíu þúsund manns að yfir- gefa heimíli sin í nágrannabænum San Juan de los Reyes. Eldsupptök eru ókunn en slökkvistarf gengur vel. Aðeins hafa verið borin kennsl á fimm þeirra sem létu lífið. Sjo áhafnarmeðlimir perúsks kafbáts létu lífið þegar hann lenti í árekstri Við japanskt fiskiskip. Slmamynd Reuler Forseti Perú, Alan Garcia, sakaöi í gær áhöfn japansks fiskiskips um slys sem varð þegar perúskur kafbátur og japanskt fiskiskip lentu í áreksfii. Sjö áhafharmeðlimir kafbátsins létust í árekstrinum en engan í áhöfii fiskiskipsins sakaði. Tuttugu og tveimur áhafnarmeðlimum kaíbátsins var bjargað strax eftir að slysiö átti sér stað en tuttugu og þrír voru innilokaöir í sólarhring. Slysið átti sér stað aðfaranótt laugardags um sex kílómetra fyrir utan Lima, höfuðborg Perú. Skipstjóri fiskiskipsins hélt aö kafbáturinn væri mun minni. Neitar eftirlitsmönnum ÁsakarJapani Utanríkisráðherra Burundi, Cyprien Mbonimpa, fundaði í gær með aðal- ritara SÞ, Peres de Cueliar. Símamynd Reuter Utanríkisráðherra Burundi, Cyprien Mbonimpa, sagöi í gær að erlend- um eftirlitsmönnum yrði ekki leyft að kanna aöstæður í noröurhluta landsins í kjölfar fjöldamorðanna sem áttu sér stað þar í síðustu viku. Samkvæmt opinberum tölum létust fimm þúsund manns í ættbálkadeil- um hutu og tutusi ættflokkanna en flóttamenn, sem flúið hafa yfir til nágrannaríkisins Rwandi, segja aö sú tala sé mun hærri. Utanríkisráðherrann átti í gær viðræður við Peres de Cuellar, aöalrit- ara Sameinuðu þjóðanna, og fór fram á neyðaraðstoð. Ráöherrann hefur einnig lagt fram beiðni um aðstoð til flóttamannaaöstoðar SÞ. Bush hefur betur Bush gerir um þessar mundir mikið úr búsetu sinni i Texas, enda eru úrslit í því fylki talin verða afgerandi í kosningunum. Simamynd Reuter Skoðanakannanir í Bandaríkjunum benda nú til þess að George Bush, forsetaframbjóðandi repúblikana, hafa lítillega meira fylgi meðal kjós- enda en Michael Dukakis, frambjóö- andi demókrata. Munurinn er þó ekki talinn nægi- lega mikill til að vera marktækur. Báðir frambjóðendur sóttu kosn- ingafundi um helgina. Varaforseta- efni þeirra voru einnig á ferðinni. Dan Quayle, varaforsetaefni repú- blikana, var í Kaliforníu þar sem hann sótti í fyrsta sinn framboðs- fundi einn síns liðs. Deilur um hann virðast nú vera að hjaðna aftur eftir aö fjölmiðlar hafa gagnrýnt hann harðlega undanfarnar vikur. Lloyd Bentsen, varaforsetaefni demókrata, var um helgina spurður um álit sitt á Quayle. Sagði Bentsen að öldungadeildarþingmaðurinn gæti líklega tekið við forsetaembætti ef nauðir ræki til. Sagði hann Quayle ekki vera meðal þeirra samstarfs- manna sinna í öldungadeildinni sem hann bæri mesta virðingu fyrir en hins vegar vildi hann ekki fuilyrða að hann gæti ekki vaxið í starfi. Athygli hefur vakið undanfarna daga að Jesse Jackson, blökku- mannaleiðtoginn sem lengst keppti við Dukakis um tilnefningu sem for- setaefni demókrata, hefur neitað að lýsa eindregnum stuðningi við Duk- akis. Jackson kom fram með Dukak- is á fundi á laugardag þar sem þess var minnst að aldarfjórðungur er lið- inn frá því Martin Luther King hélt ræðu þá sem þekkt er sem „Ég á mér draum“. í ræðu þeirri sem Jackson hélt á laugardag nefndi hann aldrei Dukakis og hvatti ekki kjósendur til að greiða honum atkvæði. Aðspurður hefur Jackson sagt að stuðningur sinn við Dukakis sé óbeinn, mest fólginn í því að hvetja kjósendur til að skrá sig og taka þátt í forsetakosningunum. Utanríkisráðheir- amir ósammála Utanríkisráðherrar írans og íraks munu að öllum líkindum ekki ræða saman í dag eftir að snurða hljóp á viðræður þeirra í gær að sögn Peres de Cuellar, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Aðrir fulltrúar ríkjanna munu þó halda viðræðunum áfram í dag undir forsæti de Cuellars. Utanríkisráðherrarnir urðu ósam- mála um landamærasamning þann sem ríkin undirrituðu í Algeirsborg árið 1975 og staðsetur landamærin við miðlínu Shatt al-Arab vatnaleið- arinnar sem skilur þjóðirnar að við botn Persaflóa. Aðgangur áð vatnale- iðinni var eitt af tilefnum þessa striðs sem stóð yfir í átta ár og varð a.m.k. einni milljón manna að aldurtila. Saadoun Hammadi, fulltrúi íraks í utanríkismálum, sagði að samning- urinn væri ekki í gildi lengur og að þjóðirnar yrðu að koma sér saman um nýjan landamærasamning. For- seti íraks, Saddam Hussein, ógilti samninginn fyrir hönd þjóðar sinnar nokkrum dögum áður en írakar réð- ust inn í íran í september árið 1980. Utanríkisráðherra írans, Ali Ak- bar Velyati, brást þegar við ummæl- um Hammadi og sagði að annað ríkj- anna gæti ekki ógilt landamæra- sámninginn. Hann kvað samninginn gildandi og óumbreytanlegan. Hann sagði þó að viðræðurnar myndu halda áfram. Utanríkisráðherra íraks, Tareq Aziz, gekk út af fundi viðræðunefnd- anna í gær. Báðar þjóðir hafa sakað hvor aðra um að leggja stein í götu friðar og hindra viðræðurnar. Full- trúar íraks hafa einnig sakað írani um að brjóta a.m.k. fjórtán sinnum gegn vopnahléinu sem gekk í gildi aðfaranótt 20. ágúst sl. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði í gær að deilurnar um landa- mærin þýddu ekki að viðræðurnar hefðu siglt í strand. Hann viður- kenndi þó að þær gengju ekki eins vel og vonast hefði verið til. Helsta ágreiningsefni viðræðn- anna virðist vera hvenær fram- kvæmd skilmála ályktunar SÞ nr. 598, sem vopnahlé þjóðanna byggir á, skuli hefjast. Áluktunin kveður á um að báðar þjóðirnar skuli draga herlið sitt til baka, að skipst skuli á stríðsföngum og að sett skuli upp nefnd er kanni hver hafi átt upptökin að stríðinu. Reuter Peres de Cuellar, sem er í forsæti viðræðna deiluaðila í Persaflóastríðinu, telur ekki að viðræðurnar hafi siglt í strand þrátt fyrir ósætti ráðherra ríkj- anna í gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.