Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 27
MÁNUM'GWt 00. íÁeÚST'i«88» r, Fréttir Hús flutt í heilu lagi sjó- leiðis til Vestmannaeyja Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum; Þaö er ekki óalgengt að menn taki sig upp með fjölskyldu og búslóð og flytji milli staða en að taka einbýlis- húsið með sér, það er ekki daglegt brauð. Þdgar m/s Askja, skip Ríkis- skips, kom til hafnar í Eyjum ekki alls fyrir löngu var á dekki skipsins heilt einbýlishús og tilheyrandi bíl- skúr, samtals um 160 fermetrar. Forsaga þessa máls er að Hjálmar Sveinsson og fjölskylda hans byggði húsið uppi í Hvalflrði 1980 þar sem þau stunduðu búskap á Kalastaða- koti. Þegar saman dró í landbúnaði ákváðu þau að selja en þá vildi eng: inn kaupa fyrir sanngjarnt verð. Þá var þessi kostur valinn eftir að ákvörðun var tekin að flytjast búferl- um til Vestmannaeyja. Aðspurður sagist Hjálmar hafa byggt húsið með það fyrir augum að Hjálmar Sveinsson við komuna tii Eyja. DV-mynd Ómar. Eigandi Lödunnar: Fékk tilboð sem hann hafhaði „Ég fékk tilboð frá Bifreiöum og landbúnaöarvélum. Þeir buð- ust til aö borga mér 150 þúsund krónur fyrir bílinn. Ég hafnaöi þessu tilboði strax. Égborgaði 145 þúsund fyrir bílinn í apríl. Síðan hefur gengið verið fellt. Einnig hef ég kostað töluverðu til bíls- ins. Tryggingar eru þar á raeðal. Bíllinn hefur verið mestan tím- ann í Vökuportinu og ég lítil af- not haft af honura,“ sagði Jón B. Sigurðsson. Eins og komið hefur t'ram í DV keypti Jón Lödu í apríl. Þrátt fyr- ir að á afsali stæði að engar veð- skuldir hvíldu á bílnum var hann veðsettur fyrir hundruð þús- unda. Jón sagði að Halldór Snorrason á Aðalbílasölunni hefði þrýst á Bifreiðar og landbúnaðarvélar til að leysa bílinn til sín. Aðalbíla- salan seldi Jóni bílinn án þess að kanna veðbönd. Halldór Snorra- son hefur sagt að ekki hafi þótt ástæða til þar sem bíllínn kom frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum. Jón sagðist ekki vita um við- brögð Bifreiða og landbúnaðar- véla við svari sínu þar sem sá sem séð hefur um samskiptin er ekki á landinu. -sme geta flutt það. Allar innréttingar, mifliveggir og klæðningar voru rifn- ar innan úr húsinu áöur en því var lyft af grunni. Þá var stífum komið fyrir innan í húsinu og það sett á bita sem húkkað var í. Það híft á bíl og flutt aö skipshlið á Grundartanga. Vel gekk að hífa húsið um borð og ferðin til Eyja tókst hið besta enda gott veður. Húsið var 13 tonn, bíl- skúrinn fjögur en innréttingin var í gámi. Vel tókst til þegar húsinu var kom- ið í land í Eyjum og nú er unnið að því að koma því á nýja grunninn í Búhamrinum. Ekki vissi Hjálmar hvað þetta kemur til með að kosta. „En það borgar sig,“ sagði hann. Hjálmar hefur notið aðstoðar vinnufélaga sinna við þetta verk og hafa þeir unnið kauplaust. Fannst spennandi að vinna slíkt verk. Einbýlishúsið um borð í Öskju ásamt bílskúrnum við bryggju í Vestmannaeyjum. DV-mynd Ómar. HÖFUM OPNAÐ NÝJA GLÆSILEGA VERSLUN GALLERÍ-PLAKÖT • ÍSLENSK GRAFÍK • ÁLRAMMAR • SMELLURAMMAR STÓRKOSTLEGT ÚRVAL • NÆG BlLASTÆÐI • ENGIR STÖÐUMÆLAR RAMMA MIÐSTOÐIN SIGTÚN 10-SÍMI 25054 OPIÐ TIL __________ KL. 18 Á LAUGARDÚGUM SÉRVERSLUN MEÐ INNRÖMMUNARVÖRUR Stálhurðir: þykkt 50 mm. Einangrun: Polyurethane Ú gildi 0,32 W/m2, 7 litir. Með og án mótordrifs. Sendum menn til uppsetningar um land allt. ASTRA AUSTURSTRÖND 8, SÍMI 612244

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.