Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 45
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. 57 PV____________________________________________Sviðsljós Andfúlir geta nú glaðst því væntanlegur er á markaðinn andfýlumælir. Ertu andfúll? Fátt er leiðinlegra en að vera and- fúll, nema ef vera skyldi að heyra það frá einhveijum öðrum. En þeir sem hafa átt við andfýlu að stríða í gegnum árin geta nú tekið gleði sína á ný. Fyrirtækið Winners í Japan mun senn setja á markaðinn andfýlumæli sem smella mun í hvem vasa. Mæhr- inn hefur hlotið nafnið „Dr. Etiqu- ette“ sem á íslensku mætti kallast Herra Háttvís. Mælirinn virkar þannig að hann skynjar methyl mercaptan sem er aðalástæða and- fýlu. Maöur heldur honum upp að munninum og andar frá sér. Eitt þriggja ljósa sem blikkar mun segja þér ef þú ert samkvæmishæfur, á mörkunum eða hvort þú þarft aö skola á þér munninn sem fyrst. Herra Háttvís mun koma á mark- aðinn í Bandaríkjunum núna í haust og er hætta á að mörgum þyki þá nóg um verðið, en það mun verða um 5.750 krónur. En framleiðandinn í Tokyo er handviss um að andfýlu- mælirinn renni út eins og heitar lummur, því fólk hafl svo miklar áhyggjur af því að það sé andfúlt að liggi við móðursýki. ur brottrækur Gizur Hálgason, DV, Reersnæs: í síðustu viku var*taiandi páfa- gaukur gerður brottrækur frá dönsku eyjunni Bomholm. Páfa- gaukurinn gapti af undrun er hon- um bárust tíðindin og hann var fluttur um borð í ferjuna „Povl Auker“ sem síðar flutti hann yfir til Ystad í Svíþjóð. Sænski leikhússtjórinn Raymond Johansson hafði fyrir hönd páfa- gauksins þverneitaö kröfu tollyfir- valda um læknisrannsókn vegna páfagaukssýki. Heimildir sem þekkja vel tU páfa- gauksins segja hann frábæran U- stafugl og lýsa honum þannig að hann kunni vel að koma fyrir sig orði og sé auk þess reiðubúinn að framkvæma ýmis konar beUibrögð hvenær sem þess sé óskað. Páfagaukurinn var keyrður um eyjuna í bamavagni af eiganda sín- um eftir að hafa sýnt listir sínar fyrir fullu húsi (Engin furða þótt hann væri þreyttur.). Sýningar hans þóttu takast það frábærlega vel að flest dagblöð á Bomholm skrifuðu ítarlega um þær og gagnrýnin var nyög lofsam- leg. un gamanið tók aö grána þegar tollyfirvöld lásu um gauksa} blöð- unum. Þar furðuðu menn sig á því hvemig hann hefði sloppið í gegn- um toUskoðunina á klettaeyjunni án þess að geta framvísað læknis- vottorði. Páfagauksveiki getur verið ban- væn raannskepnunni og sam- kvæmt ákvörðun heilbrigðisráöu- neytisins má ekki flytja inn páfa- gauka til Danmerkur án þess að þeir hafi verið rannsakaöir og fundnir saklausir af veikinni. ToUverðimir á Bornholm kröfð- ust þess að dýralæknisembættið fengi að rannsaka gauksa en hann ákvað, eftir að hafa ráðfært sig við eiganda sinn, að hann vUdi ekkert með slíka rannsókn hafa. Þá féU dómurinn aUsnarlega, útiegð um- svifalaust. Listamannsparið eyddi síðustu nótt sinni viö ferjuhöfnina á Bomholm og ræddi þar and- streymi og óréttlæti lifsins. Gömul Presley- föt seld dýruverði Þau eru svona í dýrara lagi þessi fót sem pilturinn klæðist enda þykja þau í sérflokki. Hér er um að ræða fatnað sem sjálfur rokkkóngurinn Elvis Presley átti og klæddist. Flík- um þessum var hann í þegar hann hélt tónleika í New York Madison Square Garden árið 1972, hvorki meira né minna. Og nú var verið að selja dressið, og ekki fyrir neina smáaura. Það fauk fyrir eina miUjón og sjö hundruð þúsund. Veitinga- staðurinn Hard Rock Café í Los Angeles lét sig ekki muna um þá summu til að geta prýtt veggi staðar- ins með slíkum gersemum. Við fækkum um eina sætaröð í öllum innanlandsvélunum og aukum bilið til þess að betur fari um þig.* Fljúgðu innanlands og finndu muninn *Breytingunum verður lokið á öllum Fokkerflugvélunum 1. september. FLUGLEIÐIR AUK/SlA k110d20-172

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.