Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. Spuniingin Heldurðu að sumarið sé að byrja eða er það að verða búið? Beatrice Aðalsteinsson: Ég held það eigi eftir að standa lengur. Voriö kom svo snemma í ár. Þórður Þórarinsson: Það er rétt að byrja hjá mér. Lars Jonsson: Ætli það sé ekki að koma haust, mér finnst það einhvern veginn. Kristín Sigurðardóttir: Það er ábyggilega að verða búið. Reyndar kom þaö aldrei. Jóna Magnúsdóttir: Ég vona að þaö sé að byrja. Að minnsta kosti er enn sumar í mér. Guðrún Kristjánsdóttir: Þaö hefur ekki verið neitt sumar í ár. Lesendur Stöðuverðir orðnir plága Öskureiður lesandi hringdi: Nýlega gekk ég eftir austanverðri Freyjugötunni nálægt Landspítal- anum. Þar varð á vegi mínum uppábúinn embættismaður við störf sín. Mér fannst nokkuð an- kannalegt að sjá stöðumælavörð á þessum staö því engir voru stöðu- mælarnir. Yfirleitt sér maður fólk úr þessari stétt dreifa miðum úr fórum sínum í miðbænum. En lát- um það vera. Sá bláklæddi var að skrifa upp gráan bíl með M-númeri sem auð- sjáanlega var nýkominn úr sveit- inni - aurslettur voru á lakkinu. En hvers vegna, það var enginn stöðumælir þarna? Var þaö þá kannske vegna þess að bíllinn var svona óþrifalegur? Nei, ekki aldeil- is. Ökumaður „sveitabílsins" hafði slysast til aö leggja þannig að ann- að framhjóliö var uppi á gangstétt- arbrúninni. Bíllinn var sem sé of „skakkur" í stæðinu að áliti út- sendara Davíðs. Miðinn rauði var nú settur á bílinn. Mig skyldi ekki undra að Borg- firðingurinn hafi orðið hissa þegar hann kom út. Þetta er einum of langt gengið fannst mér. Ætli vesal- ings ökumaðurinn sé ekki að borga núna í ráðhússjóð Davíös. Það er alltaf hægt að græða á sveitamann- inum. Gaman væri að vita hvort Reykvíkingum finnst svona vel gert við sig þegar þeir heimsækja landsbyggðina. Að öðru leyti verður að segjast að stöðumælaverðir virðast margir hverjir vera einum of skrifglaðir - hvort heldur er um innan- eða ut- anbæjarbíla að ræða. Stundum verður að meta aðstæður - og vera mannlegur. Þeir voru miklu vinalegri hér áður fyrr. Vantar eftirlit með leiktækjum barna Dr. Benjamín og Seðlabankinn Luðvíg Eggertsson skrifar: Ég er hissa þegar dr. Benjamín Eiríksson vill þvo hendur sínar hreinar af tilurð Seðlabankans. Stjórnvöid fóru ekki dult með það á sinum tíma að hann hefði sett skilyrði fyrir ráöningu sinni hjá ríkisstjórninni. Það var að hann fengi fast embætti ef stjómin félii frá eða missti meirihluta í kosn- ingum. Þannig fékk hann vilyrði fyrir stofnun Seðiabanka og bankastjórastöðu. Dr. Benjamín lét sér lynda að víkja fyrir fyrrverandi ráðherra og Landsbankastjóra, Vilhjálmi Þór. Hann sætti sig ekki eins vel viö að vikja fyrir dr. Jóhannesi Nordai eins og síðar kom á dag- inn. Dr. Benjamin vissi ekki hversu mikils „synirnir hans pabba síns“ mega sin í embættis- veitingum hérlendis. Persónulega er ég þeirrar skoð- unar að dr. Benjamíni hefði fam- ast vel - og landinu sennilega líka - ef hann hefði orðið seðlabanka- stjóri en ekki framkvæmdastjóri. Ömurieg tónlist á „Gufunni" ’ Bílstjóri hringdi: Ég er einn þeirra sem nær ein- ungis rás 1 Ríkisútvarpsins í út- varpinu hjá mér. Reyndar á ég þá viö útvarpiö í bilnum mínum en það er gamalt og hef ég ekki freistast til aö fá mér nýtt tæki hingað til. En nú er þolinmæöin á þrotum. Eftir að nýju útvarpsstöðvarnar tóku til starfa viröist sem stjórn- endum „Gufunnar" sé alveg sama hvaða gaul þar er leikiö fyrir hlustendur. Meira aö segja morgunþátturinn, sem oft var ágætur, samanstendur nú nær eingöngu af þungri tónlist, heilu tónleikar sinfóníuhljómsveit- anna leiknir hvaö eftir annaö. Nú eru enn margir sem ná ein- ungis „Gufunni". Eins og til dærais sjómenn á hafi úti og sums staöar á landinu næst bara rás 1. Þótt hér sé ekki um stóran hóp fólks aö ræða, sem eingöngu get- ur hlustað á „Gufuna", má nú samt hugsa um þann hóp og leika léttari tónlist inni á milh. Þessi tónlist er alveg ömurleg og niöurdrepandi. Hafdís hringdi: Öryggismálum barna á opinberum stööum er víða mjög ábótavant. Til dæmis á sundstöðum og leikvöllum. Þetta á ekki síst við á ýmsum stöðum úti á landi. Fyrir skömmu fórum við fjölskyld- an í ferðalag út á land og komum við í sundlauginni á Varmalandi. Þar er vatnsrennibraut fyrir krakka sem þeir vildu auðvitað ólmir fara í, sem og þeir fengu að gera. Eftir nokkrar feröir flaug ungur sonur minn á fullri ferð út úr renni- brautinni og skall illa á jörðinni. Hann slasaðist nokkuð og varð að flytja hann í sjúkrabíl til Akraness. Ég talaði við fólkið á Varmalandi og var það mjög vingjarnlegt. En auðvit- að ættu á stöðum sem þessum að vera aðvaranir sem segðu hve gamlir krakkarnir þurfa að vera til að leika ser í svona löguðu. Stuttu eftir þetta frétti ég að annað slys hefði átt sér stað þarna á þessum sama stað og lokuðu umsjónarmenn sundlaugarinnar þá rennibrautinni. Eftir slysið, sem sonur minn lenti í, gaf ég lögregluskýrslu um málið og komst ég þá að því að ekkert eftir- lit er haft með þessum hlutum. Vinnueftirlit ríkisins er auðvitað starfrækt en það fylgist bara með vinnustöðunum en það vantar alveg að eftirht sé haft með „leiktækjum" sem sett eru upp hér og þar. Það er aldrei fjallað um slys sem verða af þessum sökum. Ég veit um stelpu sem er þó 12 ára gömul sem rann út úr svipaðri rennibraut og braut þannig í sér framtennur. Það verður að tryggja öryggiseftir- lit með þessum hlutum. Óheyrilegt verð á ómerki- legum hlutum Guðrún Hjartardóttir hringdi: I leit að afmælisgjöf handa kær- astanum á dögunum brá ég mér inn í Gjafahúsið viö Skólavöröu- stig. Þar rakst ég á hluti sem mér franst vægast sagt óheyriiegt verö á, að minnsta kosti miðað við gæði. Ég stunda nám í Kanada og finnst athyglisvert að bera verð þar saman við verð á hlutum hér á landi. Þarna í Gjafahúsinu rakst ég á hengirúm sem er mjög ómerki- legt að allri gerð. Það er búíð til úr venjulegu neti, tveimur spýt- um með götum og köðlum. Það kostaði 3.500 krónur. Nákvæm- lega eins hengirúm keypti ég úti í Kanada síðastliðið vor á 10 doll- ara sem er um tíu sinnum minna verð. Þá sá ég einnig svokallaðar tuskumottur sem eru ofnar úr bómullartuskum og litaðar ýms- um litum, Motta, sem ég skoðaði í Gjafahúsinu, kostaði lika 3.500 krónur en alveg eins mottu fékk ég úti á 9 dollara. Mér finnst verðið hér náttúr- lega aUtof hátt á jafnómerkileg- um hlutum og hér um ræðir. En munurinn á verðinu á þessum sömu hlutum í Kanada og hér er ekki síður athyghsverður. Ég á bágt með að trúa því að kaupmaðurinn kaupi þessar vör- ur dýru verði að utan. Illa hirt grassvæði Örn Guðmundsson hringdi: Mér fnmst til skammar hversu grassvæðin víða hér í Reykjavík eru iUa hirt. Þau eru annaöhvort illa slegin eða aUs ekki. Þetta er orðið mjög áberandi og er full ástæða til að gera eitthvað í mál- unum. Ég hef heyrt fólk tala um að það hafi tekið eftir þessu og þyki mið- ur. Þaö er nú lágmark aö sinna þessum hlutum yfir hásumarið. Trassaskapurinn er oröinn til mikils óyndis. Þau útivistarsvæði sem borgin á eiga að vera al- mennUega hirt og falleg á að Uta en ekki draslaraleg. „Það þarf að hafa öryggiseftirlit með vatnsrennibrautum og hinum ýmsu leiktækjum sem komið er upp hér og þar,“ segir lesandi. Segir hann að mörg slysin eigi sér stað í slíkum tækjum því allar aðvaranir vanti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.