Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 24
24' MÁNUDAGUR 29. ÁGL’ST 1988. RAKARAST0F4N KLAPPARSTIG Sími 13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG Sími 12725 HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR óskar aö ráða sjúkraliða í 50% starf frá 1. september nk., vegna heimahjúkrunar, við heilsugæslustöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14. Upplýsingar um ofangreint starf eru gefnar á skrif- stofu framkvæmdastjóra heilsugæslustöðva, Baróns- stíg 47, sími 22400, og hjá hjúkrunarforstjóra heilsu- gæslustöðvar Hlíðasvæðis, sími 622320. Heilbrigðisfulltrúi Staða heilbrigðisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. októb- er nk. Laun oamkvæmt kjarasamningi Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur fer samkæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari breytingum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í heil- brigðiseftirliti eða skyldum greinum svo sem dýra- lækningum, líffræði, matvælafræði, hjúkrunarfræði eða hafa sambærilega menntun. Umsókn ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavík- ursvæðis (borgarlækninum í Reykjavík) fyrir 15. september nk. en hann, ásamt framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlitsins, veitir nánari upplýsingar. LANDSVIRKJUN ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að steypa upp og fullgera aðveitustöðvarhús sem reisa á við 220 kV háspennulínu Landsvirkjunar til álversins í Straumsvík, mótsvið Hamranes sunnan Hafnarfjarð- ar. Verkinu tilheyra einnig ýmsir aðrir verkþættir, svo sem gerð undirstaða fyrir stálmöstur og spenna. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 30. þ.m. á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3000,- Helstu kennitölur í verkinu eru: Flatarmál húss 614 m2 Rúmmál húss 3160 m3 Steypa 1015 m3. Mótafletir 4170 m2 Steypustyrktarjárn 92 tn Miðað er við að verkið geti hafist 23. september nk. og að verklok verði sem hér segir: Húsið fokhelt 31. desember 1988 Steypt mannvirki utanhúss 15. apríl 1989 Heildarverklok 15. maí 1989 Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar 9. september 1988 fyrir kl. 10.30 en tilboðin verða opnuð þar sama dag kl. 11.00 að viðstöddum þjóð- endum. Reykjavík 28. ágúst 1988 Fréttir „Held að við höfum staðist prófið“ - segir Jón Gauti hjá Hótel Áningu á Sauðárkróki Sauðarkrókur: Jón Gauti Jónsson í afgreiðslu Hótel Áningar á Sauðárkróki. DV-mynd gk. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Jón Gauti Jónsson hefur ásamt öörum áhugamönnum um hótelmál rekiö Hótel Áningu í sumar í húsa- kynnum Fjölbrautaskólans á Sauð- árkróki. DV leit þar inn á dögunum. „Þaö lá mjög seint fyrir aö viö fengjum heimavistina til reksturs sumarhótelsins þannig aö viö fórum ekki af stað meö okkar kynningu fyrr en eftir áramót,“ sagöi Jón Gauti. „Á þessum árstíma eru ferða- skrifstofurnar aö mestu leyti búnar aö skipuleggja sínar ferðir og gisting- ar. Við fengum þó pantanir frá feröa- skrifstofunum fyrir um 10 hópa, auk þess sem ein ferðaskrifstofa kom nokkuð oft með sína hópa í hádegis- verð. Nú erum við farin aö minna á okkur fyrir næsta sumar og erum þegar komin meö jafnmargar pant- anir fyrir næsta sumar og allt sumar- ið í fyrra og þær eru allar frá einu og sömu ferðaskrifstofunni. Einnig vitum við um fleiri pantanir á leiö- inni.“ - Þið eruð ekki í hinni hefðbundnu „hringvegarumferð", er það ekki slæmt? í sambandi við svokallaða „lausa- umferð“ þá hefur hún vaxið jafnt og þétt hjá okkur og t.d. hefur ágúst komið mun betur út það sem af er en við þorðum aö vona. Seinni hluti júlímánaðar var hins vegar afar slakur og má kenna veðrinu þar um. Þetta hefur verið að gerast þrátt fyr- ir aö við höfum mjög lítið auglýst í fjölmiðlum. Þá tókst okkur heldur ekki að koma símanúmeri okkar í símaskrá og það hefur örugglega haft sitt að segja. Ástæða fyrir vaxandi aðsókn til okkar tel ég einkum vera af tvennum toga. í fyrsta lagi höfum við fengiö mikið hrós fyrir matinn og í ööru lagi góða þjónustu en viö leggjum mjög mikla áherslu á hlýlegt viðmót og úrlausn á öllum þeim fjölmörgu vandamálum sem ávallt koma upp á ferðalögum. Viö höfum orðið áþreif- anlega vör við að þetta hefur spurst út og fólk kemur hingað vegna ábendinga frá gestum sem hér hafa verið. Auövitað hefur þetta ekki gengið Hrossin um borð í flugvélinni. með öllu hnökralaust en þaö hafa verið smámunir miöað við það sem fullkomlega hefur gengið upp. Það sem hefur farið úrskeiðis hefur hins vegar reynst.okkur dýrmætur skóli og verður fínpússað fyrir næsta sum- ar. „Sæluvika Áningar“ Eitt af kynningarverkefnum okkar í vor var að skrifa starfsmannasam- ' tökum og félagasamtökum og bjóða þeim að koma hingað í einn til þrjá daga á svokallaða sæluviku Áningar og sex hópar notfæröu sér þetta boð í sumar. Dagskráin gekk þannig aö á daginn gafst kostur á sighngu út að náttúruperlunni Drangey, eða akstur meö kunnugum manni um sögustaði í Skagafirði. Þar hefur komið í ljós að sögustaðir Sturlungu, s.s. Örlygsstaðir, Flugumýri og Hauganes hafa vakið hvað mesta at- hygli og hefur reynst auðvelt að vekja áhuga fólks fyrir því sem þarna gerðist fyrir rúmlega 700 árum. Þá stendur ökuferð heim að Hólum ávallt fyrir sínu. Á kvöldin var síðan boðið upp á sérstaka dagskrá í veitingasalnum okkar. Þar var kjölfestan hjá okkur Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleik- ari, Ásdís Arnardóttir sellóleikari og Jóhann Jóhannsson, bóndi og söngv- ari, í Keflavík. Tókst Jóhanni undan- tekningarlaust aö hrífa gesti okkar með söng sínum. Þá kom Haukur Þorsteinsson, formaður leikfélags- DV-mynd Ægir Már ins, í heimsókn og las upp fyrir gesti. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi dagskrá á eftir að skipa fastan sess í starfsemi okkar í framtíðinni. Nýjungar á döfinni Sá hópur sem stendur að Áningu er mjög áhugasamur og hugmynda- ríkur og á vikulegum fundum hans hefur fjölmargt komiö fram sem til stendur að vinna úr í vetur. Ég er viss um að næsta vor eiga ýmsar nýjungar í þjónustu við ferðafólk eft- ir að sjá dagsins ljós en yfir þvi hvíl- ir skiljanlega nokkur leynd nú. Sam- keppni um ferðamanninn er mjög vaxandi og á enn eftir að aukast. í dag þýðir ekki að bjóða einungis upp á fjölbreytta náttúru, kröfurnar eru orðnar miklu meiri hjá ferðafólki, og þá sérstaklega hvað varðar ýmsa af- þreyingu. Við munum fjölga herbergjum næsta sumar um 14 og verða þau þá orðin 33 talsins meö baöi og 6 án baðs. Þetta þýðir að við getum tekið viö um 80 manns í gistingu. Okkar bíður því stórt verkefni við kynningu og vinnu að markaðsmálum því auö- vitað stefnum við að því að fá sem besta nýtingu hjá okkur. í raun höf- um við ekki trú á öðru en aö svo fari, við höfum örugglega staðist prófið sem við höfum gengist undir í sumar og eigum að geta verið bjartsýn á framhaldið. Við munum ekkert slaka á því samkeppnin er mikil,“ sagði Jón Gauti Jónsson. flugi að tölu en tvö féllu út í læknisskoð- un. Kaupendur eru erlendir og velja þeir sjálfir þau hross sem keypt eru. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 707, var að koma með 29 tonn af ávöxtum fyrir Hagkaup. Byijað var að lesta vélina um miðnætti og fóru hrossin í loftið um fiögurleytið, tveimur tímum á eftir áætlun. Hvert hross er selt á 80-100 þúsund krónur og var því farmurinn að andvirði 6,5 milljónir króna. Vélin er bresk leigu- vél en skráð í Nígeríu og er áhöfnin þaöan. Útflutningsaðili er Faxatorg og hef- ur fyrirtækið selt tæp fimm hundruö hross til útlanda í ár og hafa flest farið flugleiðina. Hrossunum líður mun betur í flugi en skipi, auk þess tekur ferðin út mun skemmri tíma. Dýralæknir er viðstaddur brottfór- ina til eftirlits og síðan fara eigendur Faxatorgs meö farminum út. Flest hrossin veröa í Danmörku en nokkur halda áfram til Þýskalands og Aust- urríkis. • „ Flogið verður með næsta farm um miðjan september. Hross með Ægir Már Kárason, DV, Keflavik: Norður- Og Austurlandi, flugu til —-—-— ---------- Danmerkur frá Keflavik fyrir stuttu. Sjötíu og níu hross, aöallega frá Upphaflega áttu hrossin aö vera 81

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.