Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 23
?,WA T8ð9Á ÍIUÍÍAÖUMAM Cí' MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. 23 Fréttir Bömin settu mikinn svip á heimsoknina - ógleymanleg kennslustund við forsetabílinn Börnin á Hvammstanga hópuöust að forsetabílnum og fengu ógleymanlega kennslustund um fána og skjaldar- merki íslands hjá Vigdísi forseta. DV-mynd Brynjar Gauti .. Höfum nú fyrirliggjandi MODEM. Hraöi 1200/1200 og 300/300 bitar/sek. Sjálfvirk upphringing með HAYES samhæfðum skipunum.- Tenging við allar tölvur. MIÆKNIVAL Grensásvegi7, 108 Reykjavlk, Box 8294, S: 681665 og 686064 Hvar sem Vigdís Finnbogadóttir kom á ferö sinni um Húnavatnssýsl- ur voru börnin mætt í tugatali til að heilsa upp á forsetann. Voru það börnin sem hjálpuðu for- setanum að gróðursetja yfir 30 birki- hríslur víðs vegar um sýslurnar og voru alls ófeimin að tjá sig um verk- ið eða svara þeim spurningum sem forseti varpaði fram. Við gróðursetn- ingu birkihríslnanna viö skólann á Húnavöllum var forseti að gróður- setja þriöju hrísluna og sagði að hún væri fyrir börn framtíðarinnar, þau börn sem ekki væru fædd ennþá. Þá gall í lítilli hnátu að mamma sín hefði nú ekki hugsað sér að eignast íleiri börn. Var þá að vonum hlegið í hópn- um. Á Hvammstanga voru börnin í við- bragðsstöðu og biðu þess í ofvæni að forseti kæmi gangandi að félags- heimilinu frá Vertshúsinu þar sem hún hafði snætt kvöldverð. Fögnuðu börnin forseta ákaft og heilsuðu eins og þau eru vön. Vigdís sagði þá að ekki ætti að heilsa fólki með því að segja „hæ“ eöa „bæ“ heldur „komið þið sæl“ og „bless“. Verður gaman aö sjá hvort Hvammstangabörnin taka ráði Vigdísar. Daginn eftir, þegar forseti var í þann veginn að fara, höfðu börnin hópast í kringum forsetabílinn. Áhugi þeirra fór ekki fram hjá Vig- dísi. Fór hún að ræða um fánann og skjaldarmerkið við börnin og spyrja þau út í þá hluti. Ef einhver vafi hef- ur verið meðal barnanna um fánann og skjaldarmerkið er næsta víst að þessi ógleymanlega kennslustund hefur bætt um betur. Vigdís sagði i upphafi heimsóknar sinnar aö börnin væru stór þáttur heimsóknanna og þau skildu að hér væri eitthvað sérstakt á seyði, hafið yfir allt dægurþras. Hefðu þau reyndar alltaf sýnt forsetabílnum mikinn áhuga, þessum stóra með fána og ööruvísi númeraplötum. Væri forsetabíllinn ytra tákn fyrir ytri raunveruleika, sem væri þjóð- ernið. Loks sagöi Vigdís að hún hefði hitt unghnga og hálffullorðiö fólk sem hefði sagt henni að þau gleymdu aldrei þegar forsetinn kom í heim- sókn í byggðarlagið þeirra, svo djúpt var það greypt í minningunni. -hlh Þessi ungi maður mætti í.félagsheimilið Víðihlíð og tilkynnti forseta að hann væri nýbúinn að senda henni bréf. Þegar Vigdís vildi vita um efni bréfsins sagði stráksi að hún yrði að biða þar til hún hefði lesið það og fannst forseta þar vel svarað. DV-mynd Brynjar Gauti I il forna leystu höfðingjar þjóðarinnar ágreiningsmál sín á Þingvöllum. ótt nútímamenn noti aðrar og oftast friðsamlegri aðferðir til að leysa sín mál eru Þingvellir enn sem fyrr viðeigandi umhverfi fyrir viðskiptafundi. jóddu viðskiptavinum þínum næst í viðskiptaverð á Hótel Valhöll, það tekur aðeins 40 mínútur að aka þangað frá Reykjavík. Sannaðu til, þar komist þið að góðri niðurstöðu. Hótel Valhöll Þingvöllum sími 98-22622

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.