Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 25
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. 25 Fréttir Bjami Grímsson, bæjarstjóri á Olafsfirði, virðir fyrir sér framkvæmdir sem eru hafnar við jarðgangagerð i Ólafsfjarðarmúla. DV-mynd GK ÓlafsQöröur: „Viss léttir að IIVER REED skólaritvélln f ár skipta um vandamár - segir Bjami Grímsson, nýráðinn bæjarstjóri Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég greip gæsina þegar hún gafst, enda höfðum við hjónin alltaf stefnt aftur til Norðurlandsins," segir Bjarni Grímsson sem tók við starfi bæjarstjóra á Ólafsfirði um siðustu mánaðamót. Bjarni er fæddur og uppalinn í Ólafsfirði, kona hans er frá Akureyri og því er ekki óeðlilegt að þau hafi haft hug á því að flytja frá Vestfjörðum, þar sem þau hafa búið undanfarin ár, í Eyjafjörðinn aftur. Bjarni lauk landsprófi á Ólafsfirði en hélt þaðan í Menntaskólann á Akureyri og lauk síðan prófi í við- skiptafræðum við Háskóla íslands. Eins og oft vill veröa þegar Ólafs- firðingar eru teknir tali af aðkomu- mönnum berst talið fljótlega að Múl- anum. „Ég þekki Múlann mjög vel. Öll árin sem ég var í menntaskóla á Akureyri fór ég heim í helgarfrí í misjöfnum veðrum og lenti auðvitað í ýmsu. Nú eru undirbúningsfram- kvæmdir hafnar fyrir gerð jarðganga og vissulega koma göngin til með að breyta mjög miklu fyrir okkur og tengja okkur betur við Dalvík og alla byggð í Eyjafirði. Þetta má m.a. sjá af því að nú þeg- ar hafa verið gerðir samningar um sameiginlega sorpeyðingarstöð okk- ar, Dalvíkinga og fleiri sveitarfélaga í Eyjafirði og ég vona og tel reyndar að þetta sé aðeins upphafið. Með göngunum rætist væntanlega draumurinn um bundið slitlag alla leiö til Akureyrar og þá er þetta orð- ið örskot að skjótast þangað inn eft- ir. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að þetta þýðir einnig aukna sam- keppni við ýmis fyrirtæki hér, eins og t.d. í verslun.“ Bjarni starfaði hjá Fiskveiðasjóði meðfram náminu við Háskólann, einnig sem afleysingarforstjóri fisk- vinnslu- og útgerðarfyrirtækis á Sauöárkróki en síðan í desember 1982 var hann kaupfélagsstjóri á Þingeyri. Þaö starf þýðir að hann var um leið framkvæmdastjóri frysti- hússinw þar, það eru mikil völd og ábyrgð á einni hendi í litlu sjávar- plássi. En voru ekki mikil viðbrigði aö koma heim? „Jú, enda 13 ár síðan ég hef verið hér eitthvað að ráöi. Aðalíbúðar- hverfi bæjarins á Flæðunum var t.d. varla hálfbyggt þegar ég var hér síð- ast og höfnin hefur breyst mikið. Þá finnst mér gleðilegt að sjá hvað fólk leggur nú mikla rækt við garða og gróður við hús sín, það hefur mikið breyst." En vandamálin eru til staöar og bíða sífellt úrlausnar. „Já, það er rétt, og mér var reynd- ar vel kunnugt um vanda sjávarút- •vegsins, hann er hér til staðar eins og annars staðar. Ég heyri á mönn- um hér að það er þröngt í búi og vissulega hvíhr þungt á mér aö vita að atvinnureksturinn er veikburða. Ef atvinnureksturinn getur ekki bor- ið sig og borgað gjöld getur bæjarfé- lagið ekki staðið fyrir miklum fram- kvæmdum, það segir sig sjálft. En við erum með fjóra togara hér, tvo ísfisktoggra og tvo frystitogara og vissulega gefur það okkur mögu- leika þannig að það er best að vera ekki of svartsýnn. Þrátt fyrir allt myndi ég ætla að það sé bjart framundan hér á Ólafs- firði, óveðursský eru vissulega á lofti eins og annars staðar en við getum vonandi sigrast á þeim erfiðleikum sem framundan eru,“ sagði Bjarni Grímsson bæjarstjóri. Allír nemendur þurfa góða ritvél, af hverju ekki að velja vél sem endíst ut námsárin. SILVER REED er framtíðareign sem kostar ekki nema 19.800 kr. stgr. SIIVER REED er handhæg heímílísvél sem v#lc^ gott er að hafa vJð hendína SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % & Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37 Helstu söluaðilar auk Skrifstofuvéla hf.: Akranes: Bókaverslun Andrésar Níelssonar Akureyri: Tölvutæki/Bókval hf Gindavík: Bókabúð Grindavíkur Hafnarfjörður: E. Th. Mathiesen Húsavík: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar [safjörður: Bókaversl. Jónasar Tómassonar Keflavík: Nesbók Ólafsfjörður: Versl. Valberg Reykjavik: Penninn, Hallarmúla/Kringlunni/Austurstræti Tölvuvörur Skeifunni 17 Selfoss: Vöruhús K.Á. Siglufjörður: Aðalbúðin Vestmannaeyjar: Kjarni hf Hella: Mosfell. VINYL 2.650. STÆRRI 4.950.- (LEÐUR) MINNI 4.550.- (LEÐUR)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.