Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Side 42
54
Lífsstfll
Að bua sig undir niðurfærslu:
Verðhækkanir
Niöurfærsluskjálíti hefiu- gripið
um sig meðal sumra seljenda á
vöru og þjónustu. Svo virðist sem
ýmsir hugsi um það eitt að bjarga
sínu skinni og hækki vöruverð til
að geta lækkað það aftur. Þaö skal
þó tekiö fram að þetta virðast ekki
vera almennir viðskiptahættir
heldur er rnn einn og einn að ræða.
Mikill íjöldi fólks hefur hringt í
DV með ábendingar um verð-
hækkanir og eru það bæði neytend-
ur og kaupmenn.
Neytendur kvarta yfir hækkun-
um í smásöluverslun og kaupmenn
kvarta yfir hækkunum frá heild-
sölum. Einn kaupmaðurinn
hringdi ævareiður í DV og bar sig
illa.
„Þessir heildsalar eru aö maka
krókinn og svo þurfum við að
standa frammi fyrir kúnnanum og
útskýra verðið.“
Hækkanabylgjan virðist ríöa yfir
flest svið verslunar og þjónustu
þannig að svartir sauðir leynast
víða. Þetta eru allt frá litlum sjopp-
um upp í stóra framleiðendur.
Þetta eru jafnt opinberir aðilar sem
og aöilar í einkageiranum.
Dæmi um hækkanir
DV hafa borist ábendingar um
hækkanir á eftirfarandi vöruflokk-
um:
egg
súkkulaði
smjörlíki
byggingarvörur
varahlutir í bíla
gosdrykkir
snyrtivörur
steinull
Þetta eru ýmist hækkanir beint
frá heildsölum eða framleiðendum.
Hækkun virðist svipuð í flestum
tilfellum, en það eru 10-15%.
Reykjavíkurborg hækkar
Dæmi um verðhækkanir hjá op-
inberum aðilum er Reykjavíkur-
borg. Hún hefur gengið á undan og
gefið gott fordæmi. Þannig hefur
aðgöngumiöi að sundstöðum borg-
arinnar hækkað úr 60 krónum upp
í 80, og gjöld á gæsluvöllum borgar-
innar hafa verið hækkuð úr kr. 30
upp í kr. 50 síðan umræöa hófst um
niöurfærslu.
-PLP
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988.
Verdlagsstofnun:
Geturbeittaðgerðum
Verðlagsstofnun og verðlagsráð
geta beitt ýmsum aðgerðum til að
stemma stigu við óeðlilegum aðgerð-
um. Ef sýnt þykir aö verðhækkanir
fari úr hófi eiga þessir aðilar eflaust
eftir að grípa til aðgerða.
Lög um verðlag, samkeppnishöml-
ur og óréttmæta viðskiptahætti eru
þau lög sem Verðlagsstofnun vinnur
eftir. Þar er að finna ákvæði um að-
gerðir ef aðstæður breytast þannig
að verðmyndun er ekki í takt við
hugmyndir um frjálsa verðmyndun.
Hvað segja lögin?
8. grein laganna fjallar um verð-
ákvarðanir. Þar segir að verðlagsráð
geti, ef ástæða þyki til, beitt ýmsum
aðgerðum til að tryggja framgang
laganna. Þessar aðgerðir eru:
1. Hámarksverð og hámarksálagn-
ing.
2. Gert verðútreikninga eftir nánar
ákveðnum reglum.
3. Verðstöðvun í allt að sex mánuði.
4. Setningu annarra reglna um verð-’
lagningu og viðskiptakjör sem verð-
lagsráð telur nauðsynlegar hverju
sinni.
Svo segir í 11. grein:.
„Verðlagsstofnun getur í samráði
við fyrirtæki eöa samtök þeirra sett
reglur um verðjöfnun í því skyni að
tryggja stöðugt verð. Reglur þessar
skulu lagðar fyrir verðlagsráð til
staðfestingar.“
í 20. grein segir: „Skaðleg áhrif geta
verið fólgin í ósanngjörnu verði,
álagningu eða viðskiptaskilmál-
um,...“
Verðlagsstofnun hefur þarna kröft-
ugt og skýrt afmarkað valdsvið í lög-
um. Því er það aö verslunaraðilar
hljóta að hugsa sig um tvisvar áður
en þeir gefa stofnuninni færi á sér.
Afleiðingarnar gætu orðið slæmar.
-PLP
Neytendasamtökin:
Mikið um
hækkanir
- segir Jóhannes Gunnarsson
„Það er ekki spurning í mínum huga að
þetta er að gerast og því miður í mun meira
mæli en maður hefði látið sér detta í hug.“
Þetta sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, um verðhækkanir að
undanfómu vegna umræðna um niðurfærslu.
Jóhannes tjáöi DV að fjöldi fólks hefði hringt
í samtökin og skýrt þeim frá hækkunum.
„Það er hins vegar allt of oft að fólk vill
ekki nefna dæmi, skýrir ekki frá nafni versl-
unarinnar." Jóhannes sagði að samtökin
hefðu þó mikið af gögnum undir höndum sem
sýndu hækkanir.
-PLP
Óheiðarleg
vinnubrögð
- segir Ámi Reynisson
„Það er ekki ólíklegt að einhverjum einum
eða tveimur hafi getað dottið þetta í hug. Slík
vinnubrögð eru hins vegar óheiðarleg og gegn
þeim leikreglum sem menn vinna almennt
eftir," sagði Árni Reynisson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, í sam-
taíi við DV um verðhækkanir fyrir niður-
færslu.
„Ef einhverjir eru að þessu þá hljóta sam-
tökin að lýsa vanþóknun á slíku,“ bætti Árni
við.
Árni kvaöst vantrúaður á að menn innan
samtakanna væru að hækka vöruverð.
„Ef þetta er gert þá er það varla innan þessa
almenna viðskiptaumhverfis. Það væru þá
frekar einhverjir mjög illa staddir á útjöðrun-
um sem gætu gripið til slíks."
Árni sagöi að oft gæti veriö um erlendar
veröhækkanir að ræða. „Yfirleitt gerast þær
um áramót en þó getur komið fyrir að inn-
kaupsverðið hækki um miðbik árs.“
Að lokum kvaðst Árni óttast að of mikil
umfjöllun gæti gert illt verra.
„Ef satt reynist vona ég að aðeins sé um
undantekningartilfelli að ræða, en ég óttast
að of mikill fréttaflutningur geti orðið til þess
aö fleiri leggi út á þessa vafasömu braut.“
-PLP
Ámi Reynisson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra stórkaupmanna.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri.
Erum með
ýmislegt
í bígerð
- segir Georg Ólafsson
Við erum búnir að vera í mjög umfangsmik-
illi upplýsingaöflun og erum með ýmislegt í
bígerð," sagði Georg Ólafsson verölagsstjóri
í samtali við DV.
Hann sagði að stofnunin hefði fengið ábend-
ingar um verðhækkanir.
„Við höfum fengið nokkrar ábendingar og
erum að skoða þær.“
Georg sagði að stofnunin væri í hálfgerðri
biðstöðu þessa dagana. „Aðgerðir fara eftir
þeim lögum sem sett verða. Ef sett verður á
verðstöðvun þá virkar slík ákvörðun oftast
aftur fyrir sig,“ sagði Georg að lokum.
-PLP
Neytendur
Alltaf
hækkanir í
25% verð-
bólgu
- segir Víglundur Þorsteinsson
„Við erum enn í 25% verðbólgu. Þaö eru
alltaf einhverjar hækkanir í pípum verð-
bólgu,“ sagði Víglundur Þorsteinsson, for-
maður Félags íslenskra iðnrekenda, í samtali
við DV. Hann sagði ennfremur að félagið
myndi ekki skorast undan samstarfi ef stjóm-
völd leituðu þess. „Við munum ömgglega
taka þátt í niðurfærslu af heilum hug.“
Víglundur sagðist ekki hafa heyrt nein bein
dæmi um óeðlilegar hækkanir.
„Verðlagsstjóri hefur verið aö athuga vöru-
verð aö undanfórnu og ef eitthvað óeðlilegt
kemur í ljós þá hljóta menn að taka á því.“
-PLP
Víglundur Þorsteinsson, formaóur Félags ls-
lenskra iðnrekenda.