Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Qupperneq 44
56
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Richard
Gere
- hjartaknúsarinn sjálfur - gifti
sig þanr. 16. ágúst sl. Sú heppna
var franska ieikkonan Gabrielle
Lazure. Þau munu víst hafa fyrst
litið hvort annað augum fyrir
ári, og það var ást við fyrstu sýn.
Eftir að hann lék í myndunum
„An Offlcer and a Gentleman"
og „American Gigolo" varð hann
helsta kyntákn kvenna, en nú er
hann allur á kafi í andlegu efnun-
um. Stundar innhverfa íhugun
og hefur gifurlegan áhuga á aust-
rænum fræðum.
DV
Lauren
Hutton
lék ásamt Perry King í myndinni
„Perfect Couple“. Mynd þessi
fjallar um gömul hjón sem sóru
að gangast aldrei undir neinar
yngingaraögerðir. En þegar dótt-
ir þeirra fer að heiman uppgötva
þau hversu gömul, þreytt og slitin
þau eru oröin. Hjúin ákveða því
að gera eitthvað í málinu meö
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Sem sagt mynd í léttum dúr, eins
og svo oft er sagt.
Átta milljóna króna
hringurogRollsRoyce
Wayne Gretzky og Janet Jones
gengu í hjónaband fyrir skömmu.
Ólíklegt er að margir þekki parið hér
á landi og þyki lítt merkileg sú staö-
reynd að þau séu búin aö rugla sam-
an reytum sínum. Wayne rnun þó
vera besti og þar með hæst launaði
íshokkíleikari í heimi. Janet er aftur
á móti fyrirsæta og hefur meðal ann-
ars starfað fyrir „P!ayboy“.
Brúðkaupið var hið glæsilegasta
og dýrasta sem haldið hefur verið í
Kanada í langan tíma. Meðal hinna
700 boðsgesta voru kóngafólk, kvik-
myndastjömur og stjórnmálamenn.
Var boöið upp á dýrindis rétti og
ekta kampavín.
Trúlofunarhringurinn mun hafa
verið eitthvað í dýrari kantinum
enda allt dýrt við þetta brúðkaup.
Er hann sagður hafa kostað litlar
átta milljónir króna. í morgungjöf
fékk svo brúðurin glænýjan, kremlit-
aöan Rolls Royce. Wayne ætti víst
að hafa efni á hlutunum því hann
þénar himinháar upphæðir á leik
sínum og á því aö koma fram í aug-
lýsingum.
Fylgir svo sögunni að þau hafi
hvorugt verið gift áður. Janet mun
þó hafa veriö í sambúð með tennis-
leikaranum Vitas Gerulaitis og Wa-
yne var trúlofaður poppsöngkonunni
Vickie Moss í heil sjö ár.
Og hvert var haldið i brúðkaups-
ferö? Að sjálfsögðu var farið í lúxus-
siglingu um Karíbahafið.
Þegar hæst launaði íshokkíleikari heims dró hring á fingur brúði sinni var
um að ræða átta milljóna króna hring.
Patrick
Swayze
segir að þaö sé algjör draumur
aö búa á búgarði. Hann hefur þó
ekki getað eytt miklum tíma á bæ
sínum að undanförnu því hann
hefur leikið í hverri myndinni á
fætur annarri, „Road House“ og
„Next of Kin“. Þegar Patrick á
einhvern tíma afgangs þjálfar
hann hesta, gerir við bíla og æfir
dans. Einnig á hann það til að
spila á gítar og flautu.
Emilio Estevez
Leikur Billa
hinn barnunga
Emilio Estevez veit hvernig á að
svara þeim er draga hæfileika hans
í efa eða líta á hann sem aðeins einn
af krakkakvikindunum, eins og hóp-
ur ungra leikara hefur verið kallað-
ur. „Eg ætla að vera í þessu starfi
þangað til ég verð hundgamall,"
sagði Emilio. „Ég á enn margt eftir
ógert."
Slíkt sjálfsöryggi er einkenni Em-
ilios jafnvel þótt hann, aðeins 26 ára
að aldri, hafi þegar fengið sinn skerf
af öldudal Hollywood, átt bæði góða
og slæma tíma. Hann hefur náð
toppnum í myndum eins og „Stake-
out" og „The Breakfast Club" en
hrapað síðan til botns með „The Brat
Pack“ og „Wisdom" en sú mynd fékk
slæma útreið hjá gagnrýnendum.
Emilio leikur nú í „Young Guns"
og þykir taka talsverða áhættu með
þeirri mynd því hún er vestri. Má sjá
hann þar í hlutverki útlagans Billy
the Kid eða Billa hins barnunga þeg-
ar hann fór með hópi sínum gegn
spilltum kaupmönnum og embættis-
mönnum í Lincoln, Nýju Mexíkó.
Hópurinn, sem var þekktur undir
nafninu „The Regulators", var ráð-
inn af breska kaupmanninum John
Tunstall sem beitti honum gegn
keppinautum sínum. Á endanum
urðu „The Regulators" morðóðir.
Með bróður sínum Charlie
Sheen
Þetta er í fyrsta skipti sem Emilio
leikur í sögulegri mynd og má gera
svo vel að keppa við ekki ófrægari
menn en Roy Rogers, Paul Newman,
Audie Murphy og Kris Kristofferson,
en þeir hafa allir leikið Billa barn-
unga á hvíta tjaldinu. „Young Guns“
er einnig fyrsta myndin sem Emilio
gerir með bróður sínum, Charlie
Sheen. Þeir hafa báðir leikið í mynd-
um með föður sínum, Martin Sheen,
en hans rétta nafn er Ramon Estevez.
Charlie leikur keppinaut Billa um
leiðtogastöðu innan „The Regula-
tors“.
Emilio er hreinsk'ilinn þegar hann
talar um bróður sinn, sem varð fræg-
ur á einni nóttu fyrir myndirnar
„Platoon" og „Wall Street“. Þær nutu
báðar mikilla vinsælda og hlutu jafn-
vel óskarsverðlaun. „Við vorum
miklir keppinautar þegar við vorum
Emilio Estevez (til hægri) í hlutverki Billa barnunga í myndinni „Young
Guns“, ásamt Terence Stamp sem leikur breskan kaupmann.
Simamynd Reuter
Emilio var allt í öllu í „Wisdom“ en fyrir þá mynd fékk hann mjög slæma
dóma og tók þá mjög nærri sér.
að alast upp. Hann fékk allt upp í
hendurnar og þurfti ekki að vinna
fyrir hlutum sem foreldrar okkar
létu mig vinna fyrir,“ sagði Emilio.
Þrátt fyrir ýmsar sögusagnir sagði
hann að það heföi verið gott að vinna
með Charlie. „Viö erum búnir að
leggja niður vopn. Ég álít hann vera
einn af mínum bestu vinum og ég á
ekki marga vini.“
Krakkakvikindin halda vestur
Þar sem myndin er vestri er tekin
mikil fjárhagsleg áhætta með henni.
Leikararnir eru ílestir af yngri kyn-
slóðinni, meðal annars Kiefer Suth-
erland og Lou Diamond Philipps, svo
margir gætu hreinlega kallað hana
„krakkakvikindin í villta vestrinu".
„Ég kem fram með fjölda ungra
manna, en það væri asnalegt að láta
hana framhjá sér fara bara á þeim
grundvelli," sagði Emilio.
„Young Guns“ vakti áhuga hans
því hún reynir að gefa nokkuð sögu-
lega rétta mynd af Billa barnunga.
Með þvi að nota himinblá augun
túlkar Emilio Billa barnunga sem
trúan og tryggan vinum sínum og
haldinn gífurlegu hatri í garð óvina
sinna. Emilio telur persónuleika
Billa vera mjög ólíkan hans eigin
nema ef vera skyldi að þeir ættu hina
afbrigðilegu kímnigáfu sameigin-
lega.
Emilio er fullur orku og óhaggan-
legs sjálfstrausts sem einnig ein-
kenndi Billa. Þegar minnst er á
krakkakvikindastimpilinn, Ijóma
augu hans. Hann sagði að „Stake-
out“, þar sem Richard Dreyfuss
nærri féll í skugga hans, hefði hjálp-
að sér til að losna viö þessa ímynd,
en tíminn muni að lokum geta máð
hana alla í burtu.
Tók gagnrýnina nærri sér
Lægðin á starfsferli Emilios kom lík-
lega með myndinni „Wisdom“ sem
hann bæði skrifaði handritið aö, leik-
stýrði og lék í, þá aðeins 23 ára.
Myndin, sem íjallaöi um Hróa hött
okkar tíma og kærustu hans, fékk
vægast sagt mjög slæma dóma. „Ég
tók gagnrýnina mjög nærri mér. Ég
var alveg niðurbrotinn í langan
tímaminnist Emilio. „En nú hef
ég lært að það er ekki hægt að taka
dóma mjög nærri sér eða persónu-
lega. Það var stór sigur að geta gert
kvikmynd á þeim aldri og hafa feng-
ið henni dreift var punkturinn yflr
i-ið.“
Áhugi hans fyrir að gerast kvik-
myndagerðamaður nær til þess tíma
þegar hann og Charlie gerðu nokkrar
átta millimetra myndir sem krakkar.
Þessa dagana er hann að skrifa hand-
rit að ádeilu um efnaúrgang fyrir
ströndum Kaliforníu. „Ég veit að ég
get gert betri myndir en þetta (Wis-
dom). Ég veit um sögur sem ég myndi
vilja segja með því að færa þær upp
á hvíta tjaldið,“ sagði leikarinn ungi,
Emilio Éstevez, að lokum.