Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Side 46
58 Andlát Kristján Júlíusson, Hofteigi 18, er látinn. Kristján Kristjánsson skipstjóri lést að St Jósefsspítala 25. ágúst. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Efsta- leiti 12, Reykjavík, lést í Landspítal- anum föstudaginn 26. ágúst. Gunnlaugur G. Björnsson skipulags- stjóri, Bogahlíð 26, lést 26. ágúst. Þorsteinn Björgvinsson, Sunda- bakka 3, Stykkishólmi, lést í Borgar- spítalanum 26. ágúst. Garðar Júlíusson frá Vestmannaeyj- um, til heimilis að Reynigrund 13, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 26. ágúst. Jardarfarir Óskar Ástmundur Þorkelsson, Rauðagerði 65, fyrrverandi gjaldkeri Slippfélagsins í Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. ágúst 1988, athöfnin hefst kl. 13.30. Sveinbjörn Egilson, Barðavogi 34, verður jarösunginn frá Langholts- kirkju í dag. 29. ágúst, kl. 15. Tilkyrirtingar Fundur í stjórn Lands- sambands iðnverkafólks, haldinn 25. ágúst 1988, varar alvarlega viö og mótmælir öllum áformum um , kjaraskeröingu hjá verkafólki. Þaö er augljóst aö verkafólk, sem tekur laun samkvæmt kauptöxtum á bilinu 35-45 þúsund á mánuöi, getur ekki og á ekki undir neinum kringumstæðum aö taka á sig byrðarnar af óráðsíu og bruðli ann- arra. Fólk á taxtakaupi er varnarlaust gagnvart slíkum aögerðum og yröi því gjaldþrota og eignamissir Hlutskipti hundruða heimila þrátt fyrir margrómað góöæri. Boddívarahlutir Driföxlar - Drifliðir Vatnskassar-Bílrúður BÍLUNN Skeifunni 5 «5? 688510 wr Laugalæk 2, simi 686511, 656400 HEFUR ÞÚ SKOÐAÐ OKKAR TILBOÐ Vi svín, frágengið að þín- um óskum 383 kr. kg Nautahakk kr. 495,- en aðeins 425 kr. í 10 kg pakkningum. Kindahakk 451 kr. en aðeins 325 kr. í 10 kg pakkningum. sími 686511, 656400 Haustferð jöklarannsóknafé- lags íslands Hin árlega haustferð í Jökulheima verð- ur farin helgina 9.-11. september 1988. Lagt verður af staö á fóstudagskvöldi kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni hf. Þátttaka tilkynnist til Ástvalds Guðmundssonar í s. 686312. Fundur Kjararáðs, nýstofnaðs stéttarfélags fóstra, varar ein- dregið við þeim hugmyndum sem uppi eru hjá ráðamönnum þjóðarinnar um lækkun launa. Fundurinn telur sýnt að þessar aðgerðir bitni harðast á verkafólki og opinberum starfsmönnum. Á undan- fornum árum hafa þessar stéttir þurft aö taka á sig launaskerðingu á launaskerð- ingu ofan. Efnahagsvandinn stafar ekki af smánarlegum launahækkunum lág- iaunafólks, það hlýtur hver maður að sjá. Fundurinn skorar því á forystumenn verkalýðsfélaganna áð standa vörð um hagsmuni launafólks, um leið hvetur fundurinn ríkisstjórnina til að leita ann- arra leiða til að leysa efnahagsvandann. Frístælkeppnin 1989 Síðan 6. mars 1988 hefur verið unnið að undirbúningi fyrir frístælkeppnina 5. mars 1989 á vegum tímaritsins Hárs og fegurðar. Nýverið kom út kynning- arbæklingur á ensku um frístælkeppn- ina. Einnig veröur kynning á fristæl- keppninni í tímaritum víða um heim sem tímaritið hefur góð tengsl við. Bækling- urinn er sendur til fjölmiðla, hárgreiðslu- sambanda og tískuhönnuða víða um heim. Keppnin verður einnig kynnt á heimsmeistaramótinu í Dusseldorf, Sal- on International í London, International Beauty Show West ’88 i Los Angeles Cali- fornia og The World Hairdress Congress i London. Framkvæmdastjóri keppninn- ar er ritstjóri tímaritsins Hárs & fegurð- ar, Pétur Melsted, keppnisstjóri er Torfi Geirmundsson. Þjónusta á sviði umbúðamála Upplýsingaþjónusta á sviði umbúðamála hefur verið tekin upp hjá Iðntæknistofn- un íslands í því skyni að efla þekkingu á umbúðum og flutningum og byggja upp gagnabanka sem nýst getur íslenskum fyrirtækjum. Rekstrartæknideild Iðn- tæknistofnunar sér um umbúðaþjón- ustuna. Efnt hefur verið til samstarfs við Umbúöa- og flutningastofnunina í Dan- mörku til að íslensk fyrirtæki eigi þar greiðari aðgang að tækjakostnaði til próf- unar á umbúöum sínum. Jafnframt hefur Iðntæknistofnun gerst aðili að SES, sam- tökum umbúðastofnana á Norðurlönd- um. Ætlunin er að gefa út fréttabréf með völdum greinum úr þvi mikla magni sem stofnuninni berst reglulega um umbúða- mál auk þess sem fyrirtæki eiga kost á upplýsingum um ákveðin efni úr gagna- bankanum. Þá mun stofnunin skipu- leggja hópferð umbúðaframleiðenda og umbúðanotenda á sýninguna Scanpack 88 í Gautaborg í október. íslensk frímerki 1988 tá silfurverðlaun Cardinal Spellman Philatelic Museum, Inc. er með þekktari stofnunum í frí- merkjaheiminum. Safnið bauö á þessu ári ísafoldarprentsmiðju að senda til sýn- ingar á alþjólegri frímerkjabókmennta- sýningu íslenska frímerkjaverðlistann „íslensk frímerki". Var boð þetta þegið og sendir árgangarnir 1984-1988. Alþjóð- leg dómnefnd veitti bókinni síðan silfur- verðlaun. Höfundur og ritstjóri „ís- lenskra frímerkja" hefur frá upphafi ver- ið Sigurður H. Þorsteinsson, uppeldis- fræðingur og skólastjóri. RAFSUÐUVÉLAR Stórar og smáar Skeifan 3h - Sími 82670 ÁÍANUDAGUR 29. AGÚST 1988. Kvikmyndir Regnboginn: Helsinki - Napolí Leikstjóri: Mika Kaurismaki Aóalhlutverk: Kari Váánánen, Roberta Menfredi, Samuel Fuller, Jim Jarmusch, Eddie Constantine og Wim Wenders Hvaö á fmnskur leigubílstjóri í Berlín aö gera þegar amerískir eit- urlyfjasmyglarar drepa tvo Frakka í bílnum hans og hann situr uppi með tösku fulla af peningum? Svar- iö virðist auövelt. Fá rússneskan vin sinn í lið með sér til aö losna viö líkin og stinga af meö eiginkon- una ítölsku og fjölskylduna, annaö- hvort til Helsinki eöa Napolí. Þar getur hann lifað í vellystingum praktuglega fyrir féð. Fljótlega kemur babb í bátinn. Glæpamennirnir vilja fá peningana aftur og það strax. Þeir svífast einskis og ræna börnum hans. Þetta er í stuttu máli söguþráður myndarinnar Helsinki - Napolí sem sýnd er um þessar mundir í Regnboganum. Mynd þessi er öll hin furðuleg- asta. Villtur húmor leikur lausum hala og kunnu bíógestir misjafn- lega að meta hann. Enda hefur leik- stjóri litla stjórn á atburðarásinni. Þó læröist aö meta húmorinn og þeir sem voru eftir í salnum, þegar leiö á myndina, kimdu hver í kapp viö annan. Inn í ruglingslegan söguþráöinn er fléttað hreint ótrúlegum persón- um. Má þar nefna ítalska afann sem tekur kornabörnin með sér á barinn til að fá sér neðan í því. Þá er vinahópur afans ekki síöur skrautlegur, gamlir drykkfelldir napolítanar. Persónusköpun er sterkasta hhð myndarinnar og koma fram hinir frumlegustu kar- akterar. Kaurismaki hefur fengið nokkrar skrautfjaðrir til að leika í mynd- inni. Ekki er þó um þekkta leikara að ræða heldur leikstjóra. Þeir eru hins vegar misgóðir sem leikarar. Þó ber aö geta um Samuel Fuller sem leikur glæpaforingjann en Fuller hefur leikið í þó nokkrum myndum sem leikari. Er þá mynd Wim Wenders, Ameríski vinurinn, minnisstæð. Þarna leikur hann ameríska óvininn og gerir það vel. Þá er tónhstin í myndinni skemmtileg, sérstaklega er gaman að heyra hina ítölsku Gianna Nan- ini syngja hásri röddu. En Kaurismaki hefur tekist vel að virkja berlínska krafta og gera óvenjulega glæpamynd um erlent vinnuafl í borginni sem Gunther Grass segir eina staðinn á jarðríki þar sem fáránleiki tilverunnar endurspeglist eins og hann er. -PLP Meiming Stjórn kórsins. F.v. Sigrún Stefánsdóttir, Jón Stefánsson kórstjóri, Halldór Torfason og Þorvaldur Friöriksson. DV-m'ynd JAK Kór Langholtskirkju byrjar vetrarstarfið - getur bætt viö röddum Haustferð Jöklarannsóknarfé- lags íslands Hin árlega haustferð í Jökulheima verð- ur farin helgina 9.-11. september 1988. Lagt verður af stað á föstudagskvöldi kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni HF. Þátttaka tilkynnist til Ástvalds Guömundssonar, s. 686312. Vinningar í Fjarkanum Fjarkinn, hinn nýi skafhappdrættismiði Marks & máts, hefur hlotið skínandi góð- ar viðtökur landsmanna frá þvi að hann kom á markaðinn fyrr í sumar. Nýlega hófst sala á þriðja flokki og voru í því tilefni afhentir tveir síöustu bílarnir af fjórum úr þeim fyrsta. Ford Escort bíl- arnir eru stærstu vinningarnir í Fjarkan- um og eru þeir fjórir í hverjum flokki miða, en Fjarkinn býður upp á mestar vinningslíkur allra skafhappdrættismiða eða hlutfalliö 1:4. Með því að safna saman nöfnum sex mismunandi stórmeistara í skák eða sjö mismunandi nöfnum lands- liðsmanna í handknattleik eiga kaupend- ur í skafmiðahappdrætti Fjarkans von á óvæntum glaöningi. Þorgils Óttar Mat- hiesen, fyrirliði landsliðsins í handknatt- leik, Jóþann Hjartarson stórmeistari og Sigurður Skagtjörð, nýskipaður sölu- stjóri Flugleiða, afhentu bónus-vinninga, Saga class flugmiöa til og frá einhverjum áfangastað Flugleiöa að eigin vali. Alls hafa sex Saga class miöar verið afhentir en þaö er fyrst núna sem nöfn hinna „erf- iðu" eru gerð opinber. Fyrirlestrar „Kynlíf í dag: þörf á nýrri kyn- fræðsu“ Kynfræöslustöðin hefur hauststarfsemi sína á því aö'halda opinn fyrirlestur 1. september nk. í Tónabæ. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina: „Kynlíf í dag: þörf á nýrri kynfræðslu" og er fluttur af Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur kynfræöingi M.S.Ed. I fyrirlestrinum verður m.a. Qáll- að um kynlíf og kynferðismál í dag í ís- lensku þjóðfélagi og hvað einkennir kyn- ferðislega heilbrigðan einstakling. Einnig verða hinar ýmsu stefnur í kynfræðslu kynntar og þá sérstaklega „nýja kyn- fræðslan” svokallaða sem er á margan hátt frábrugðin gömlum hefðbundnum aðferðum við kynfræðslu. Fyrirlestur- inn, sem hefst kl. 20 1. september, er op- inn almenningi. Jóna Ingibjörg Jóns- dóttir lauk meistaraprófi í kyniræðslu frá Pennsylvaníuháskóla sl. vor og hefur síð- an starfað við eigin fræðslu- og ráðgjafar- fyrirtæki - Kynfræðslustöðina. Brucknertónleikar, jólatónleikar og kantata eftir Gunnar Reyni Sveinsson veröa aöalviöfangsefnin hjá kór Langholtskirkju í vetur. Eins og undanfarin ár er Jón Stefánsson stjómandi kórsins en raddir þjálfar Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Brucknertónleikarnir verða um miðjan nóvember. Verður þar flutt Messa í e-moll og margar mótettur eftir Bruckner. Jón Stefánsson mun viö stjórnun tónleikanna veifa tón- sprota sem Bruckner notaöi sjálfur á sínum tíma. Rétt fyrir jól veröa að vanda tón- leikar meö verkum sem tengjast fæö- ingarhátíö frelsarans en eftir áramót hefjast æfingar á kantötu Gunnars Reynis: Á jörð ertu kominn. Blásara- kvintett og jasssveit koma fram í kantötunni en höfundur texta er Birgir Sigurðsson. Verkið átti upp- haflega að flytjast á listahátíðinni í vor en var frestað vegna veikinda tónskáldsins. Fyrirhuguð söngferðalög kórsins eru Noröurlandsferð í vor, væntan- lega meö viökomu í Grímsey, og Bretlandseyjaferö vorið 1990. Góðu söngfólki má bæta við í allar raddir og þeir sem áhuga hafa fyrir að starfa meö þessum ágæta kór ættu aö hringja í síma 84513 (Jón) eöa 71089 (Sigrúnu) fyrir 1. september. -ihh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.