Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1988, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988. ^ffi Frjálst.óháÖ dagbiaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11. SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Tekst að skera? Meginmálið nú þessa daga er, hvort tekst að skera niður útgjöld ríkisins að einhveiju marki. Fjármála- ráðuneytið hefur lagt fram tillögur, sem eru til umfjöll- unar í stjórnarflokkunum. Ungir sjálfstæðismenn leggja sitt hð. Fjármálaráðherra talar nú um, að afgangur hjá ríkinu skuli verða um hálfur annar milljarður næsta ár. Áður hafi verið rætt um 700 milljón króna afgang. Víst er rétt, að betra væri að fá 1,5 milljarða í afgang, þegar ^árlagafrumvarp verður samþykkt, vegna þess að líklegt væri, að lítill afgangur í lögunum snerist upp í halla. Þá er rétt, að oft hefur verið rætt og samþykkt, að skorið verði niður hjá ríkinu. En enginn alvöruniður- skurður hefur orðið. Ríkisstofnanir og ráðuneyti hafa farið sínu fram. Þrátt fyrir fíárlög hafa þessir aðilar aukið útgjöld sín og síðan látið ríkið borga brúsann, það er skattgreiðendur. Vel er, að ungir sjálfstæðismenn þrýsta á sína menn. Vel er, ef íslenzkir sósíaldemó- kratar ætla að fylgja fordæmum hinna nýtízkulegri af erlendum sósíaldemókrötum og minnka ríkisbáknið. Slíkt væri í samræmi við breytta tíma. Svo vikið sé að ungum sjálfstæðismönnum, þá voru það þeir, sem hróp- uðu báknið burt. Verr hefur gengið að fá forystu Sjálf- stæðisflokksins með í þá baráttu. Þá má búast við fyrir- stöðu framsóknarmanna við sumum tillögunum um minnkun ríkisrekstrar. Framsókn er flokka mestur kerfis- og fyrirgreiðsluflokkur. En það væri ekki í sam- ræmi við tal framsóknarmanna að undanfómu, ef þeir yrðu til að stöðva niðurskurð hjá ríkinu. Margir hafa nú einmitt kunnað að meta það hjá framsóknarmönn- um, að þeir hafa manna mest bent á efnahagsvandann og viljað taka hann föstum tökum. Enn er óvíst, hvem- ig fer í stjórninni. Enn er ekki vitað, hvort samstaða eða deilur verða innan stjórnarinnar um hugmyndir um 4-5 milljarða niðurskurð flárlaga. Fólk mun fylgjast vel með þessu. Vissulega munu ýmsir reka upp rama- kvein, verði sparað hjá ríkinu. En almenningur ætti að skilja, að það er af hinu góða, að báknið verði skorið niður. Rétt er að líta aðeins á síðustu samþykkt ungra sjálf- stæðismanna. Þar segir, að þeir hafi um árabil hvatt til aðhalds og spamaðar í opinbemm útgjöldum. Þá ekki hvað sízt í undangengnu góðæri, þegar öll rök mæltu með því, að auknar tekjur þjóðarinnar yrðu nýttar til að greiða niður erlendar skuldir. Öndvert við þessa stefnu hafi ríkisútgjöld verið aukin og sjóðum eytt. Þetta er alvarlegasta meinsemd í efnahagslífi þjóðarinnar og þungur áfelhsdómur yfir stjórnarstefnu síðustu ára. Ungir sjálfstæðismenn em því skeleggir í samþykktum sínum. Þeir gagnrýna flokksforystu flokks síns í raun með slíkri samþykkt. En það sem þeir segja er hárrétt. Ungir sjálfstæðismenn segja, að frainkvæma skuli niðurskurð á ríkisútgjöldum upp á íjóra milljarða króna. Þetta verði gert með verulegri fækkun ríkisstarfs- manna, endurskipulagningu og hagræðingu í heilbrigð- is-, trygginga- og menntamálum, uppskurði í land- búnaðarkerfinu og með þvi að auka sjáifstæði og ábyrgð ríkisstofnana vegna rekstrar og framkvæmda. Ungir sjálfstæðismenn benda og á ríkisfyrirtæki, sem ríkið ætti að losa sig við. Nokkur munur er á tillögum ungra sjálfstæðismanna og flármálaráðuneytisins en ekki svo mikill, að sam- komulag ætti að verða auðvelt, að minnsta kosti milli þessara aðila. Haukur Helgason. Leiðbeininga- þjónustan skilar miklum árangri Einhver sem kýs aö gera grein fyr- ir sér sem uppflosnuðum sveita- manni, búsettum í Reykjavík, gerir skrif Gunnars Bjamasonar í DV 5. þ.m. og svar mitt til Gunnars í sama blaði 17. þ.m. að umræðuefhi í blað- inu í gær (22. ágúst.). Hann ber fram tvær spumingar. Hina fyrri um árangur af starfsemi leiðbeiningaþjónustu í þágu land- búnaðar og hina síðari varðandi hves vegna ríkið greiði fyrir hana (að hluta). Mér er ljúft að svara þessum spumingum eftir þvi sem tök era á í stuttu máh en kýs að gera þeirri síðari skil á undan. Hvers vegna ríkið? Þannig segir hinn fyrrverandi bóndi: „Einnig væri fróðlegt að fá það útskýrt hvers vegna ríkið þarf að hafa tölvuþjónustu, verkfræði- þjónustu, húsateikningar og reikn- ingshald fyrir bændur hjá B.í. Er ekki nóg af stofnunum í landinu til að framkvæma þetta og stenst þessi þjónusta kostnaðarsamkeppni við þjónustustöðvar í einkarekstri." Allt þetta sem að framan er nefnt er hluti af leiðbeiningaþjónustu við landbúnaðinn. Leiðbeiningaþjónustan vinnur að alhliða framfórum í landbúnaöi. Nánar tiltekið aðstoðar hún bænd- ur við að ná stöðugt betri og betri árangri. Framfarir í landbúnaði leiða til beinnar lækkunar á búvöraverði, með því verðlagningarkerfi sem hér er. Neytendur, og þar með allir landsmenn, njóta því árangurs af þessum störfum og hann er mikiU eins og síðar verður að vikið. Leiöbeiningaþjónusta . í land- búnaði er nær alls staðar þar sem landbúnaður er sæmilega þróaöur kostuð af viðkomandi ríkjum að mestu eða öllu leyti. Hér bera bændur þó verulegan hluta, eða um helming af heildar- kostnaði við leiðbeiningaþjón- ustuna en það kemur einkum fram í beinum gjöldum þeirra til búnað- arsambandanna. Það sem Búnaðarfélag íslands hefur einkum beitt sér fyrir hin síðari ár er að efla leiðbeiningar fyrir nýbúgreinar, lodýrarækt, ferðaþjónustu, flskeldi og kanínu- eldi og svo aukna og bætta nýtingu hlunninda og betri landnýtingu. Og jafnframt því aö gera nauðsyn- legar leiðbeiningar í þágu eldri greina ódýrari án þess að draga úr þjónustu. Til þess er tölvuvæöing ágætt tæki - með henni verða margir hlutir gerlegir sem áður vora ógerlegir, til dæmis flóknir og umfangsmiklir útreikningar á kynbótagildi gripa. Auk þess spar- ar tölvunotkun vinnuafl sem hjá B.Í. hefur færst til nýgreina. Með henni hefur tekist að gera meira fyrir minna. „Verkfræðiþjónusta, húsa- teikningar og reikningshald" Þetta eru einmitt hinir bráðnauð- synlegustu hlutir, bæði fyrir ný- greinar í búskap og eldri greinar. Með þessari starfsemi er leitast við að gera byggingar og aðrar fram- kvæmdir ódýrari og betri og þar hefur náðst mikill árangur, t.d. í loðdýrabyggingum. Með bókhalds- þjónustu og hagfræðileiðbeining- irni, sem byggjast á niðurstöðum úr bókhaldi, era menn aðstoðaðir við að búa betur og aö athuga vel. sín mál í sambandi við fjárfesting- ar. Þessi þjónusta B.í. og búnaðar- sambandanna er mikið ódýrari fyr- ir bændur en hjá einkaaðilum og vitað er fyrir víst að þó að allur kostnaður væri fyllilega reiknaður væri B.í. og búnaðarsamböndin, Kjallarinn Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri hvað með öðra. Engin ástæða er til að draga í efa hlut leiðbeininga- þjónustunnar. Því má fullyrða að hún á hlut að því að nú framleiða mun færri hendur meira, ef allt er talið, en fyrir tuttugu árum. Þá vora bænd- ur taldir um 14% af vinnuafli þjóð- arinnar en nú um 6%. Leiðbein- ingaþjónustan á drjúgan þátt í bú- fjárkynbótunum og auknum afurð- um búfjárins ár frá ári, sem hefur leitt til að færri gripi þarf til að framleiða sama magn, og enn frem- ur í aukinni og betri ræktun sem saman hefur leitt til þess að létt hefur beitarálagi á landið. Þessi þróun hefur einnig á margan ann- an hátt leitt til landvemdar. Augljósastur er þó e.t.v. árangur leiðbeiningastarfseminnar á sviði „Framfarir í landbúnaði leiða til beinn- ar lækkunar á búvöruverði, með því verðlagningakerfi sem hér er.“ sem hana veita, fyllilega sam- keppnisfær við einkarekstur á við- komandi sviðum, eins og þjónusta þeirra er verðlögð. Hér mætti einnig spyija hvers vegna Húsnæðisstofnun ríkisins rekur teiknistofu og veitir marg- háttaða verkfræðilega þjónustu sem húsbyggjendur geta notfært sér. Hver er svo árangurinn? Hinn fyrrverandi bóndi biður ennfremur um „yfirlit um raun- verulegan órangur af starfi hvers af þessum rúmlega 20 ráðunautum sem starfað hafa hjó félaginu...“ t.d. síðustu 20 árin. Ráðunautarnir hafa aldrei verið 20 en sleppum því. Árangur af störfum þeirra er mjög mikill. Þeir hafa allir átt þátt í framfóram og þróun landbúnaðarins. Ógerning- ur er að greina hvað af þessu ber að þakka rannsóknarstarfsemi, kennslu í búfræði, leiöbeiningum og hvað dugnaði og framkvæði bændanna sjálfra. Þetta vinnur allt nýgreina þar sem hún hefur bæði fært grandvallarþekkingu til bænda og miðlað þeirri reynslu, sem fengist hefur, á milh þeirra. Það væri fráleitt að hvetja fjölda bænda til að taka upp nýjar greinar sem þeir hafa enga reynslu í án þess að geta leiðbeint þeim um fjöl- mörg grundvallaratriði. Þannig mætti lengi telja einstök atriði varðandi störf ráðunauta á öllum fagsviðum en ekki er rúm fyrir það hér. Ef hinn „uppflosnaði" viU kynna sér þetta allt nánar er hann boðinn velkominn til Búnaðarfélags ís- lands þar sem honum verður vel tekið eins og öllum fyrrverandi sem núverandi bændum. Eins er honum bent á að lesa Búnaðarritið, síöustu tuttugu árgangana eöa svo, en þar er að flnna nákvæmar starfsskýrslur ráðunauta B.í. og annarra starfsmanna félagsins. Þær koma út í febrúar hvert ár og eru lagðar fyrir Búnaðarþing. Jónas Jónsson „Leiðbeiningaþjónustan vinnur að alhliða framförum i landbúnaöi," segir f greininni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.