Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
nr
11
Útlönd
Hvetur til alþjóða-
banns við notkun
efnavopna
Reagan Bandarikjaforseti ávarpar allsherjarþing Sameinuöu þjóöanna í
gær. Simamynd Reuter
Steinunn Böö varsdóttir, DV, Washington:
í sjöundu og jafnframt síðustu
ræðu sinni til fulltrúa allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna í gær
hvatti Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti þjóðir heimsins til þess að sam-
einast um alþjóðabann viö notkun
efnavopna.
Forsetinn hvatti þær 112 þjóðir,
sem áðild eiga að samkomulagi um
bann frá 1925 við notkun eiturgass,
að efna til alþjóðlegrar ráðstefnu þar
sem rætt yrði um leiðir til að fram-
fylgja betur skilmálum samkomu-
lagsins.
I ræðu Reagans kvað við mun mild-
ari tón í garð Sameinuðu þjóðanna
'en í fyrri ræðum hans. Forsetinn,
sem oft hefur harðlega gagnrýnt að-
gerðir og stefnu Sameinuðu þjóð-
anna í alþjóðamálum, bar lof á ár-
angursríkar tilraunir Perez de Cuell-
ar, framkvæmdastjóra stofnunar-
innar, til að koma á vopnahléi í átta
ára styrjöld írans og íraks.
Hann fagnaði einnig þeirri ákvörð-
un Sovétmanna að draga herlið sitt
til baka frá Afganistan og aðild Sam-
einuðu þjóðanna að þeirri ákvörðun.
Þegar Reagan var spurður hvað
ylh þessari afstöðubreytingu í garð
Sameinuðu þjóðanna sagðist hann
ekki hafa breytt afstöðu sinni, þaö
væru Sameinuðu þjóðirnar sem
hefðu breyst.
Þessi jákvæða ræða Reagans kem-
ur í kjölfar ákvörðunar bandarísku
ríkisstjórnarinnar um að greiða 188
millón dollara skuld Bandaríkjanna
við Sameinuðu þjóðirnar fyrir
nokkrum vikum.
Forsetinn kom víða við í ræðu sinni
í gær. Hann notaði tækifærið og
fagnaði nýundirrituöu afvopnunar-
samkomulagi stórveldanna um
fækkun meðaldrægra kjarnaflauga
en sagði jafnframt að hliðstætt sam-
komulag um fækkun langdrægra
flauga yrði að öllum líkindum ekki
undirritað fyrr en að ári liðnu.
Lögregluljósmyndari skoðar hér byssugat á rúöu í Oakland barnaskólanum
í Greenwood i Suður-Karólínu eftir að vopnaöur maöur gekk þar berserks-
gang í gær. Símamynd Reuter
Byssubófi í
bamaskóla
Vopnaður maður réðst inn í barna-
skóla í Greenwood í Suður-Karólínu
í gær, skaut til bana átta ára gamla
telpu og særði átta börn og tvo kenn-
ara áður en hann sagðist ekki eiga
fleiri byssukúlur.
Lögreglan gaf ekki upp hver mað-
urinn var en hann náðist þegar ann-
ar kennaranna, sem hann hafði sært,
réðst á hann og hélt honum þar til
lögreglan kom á staðinn.
Talsmaður lögreglunnar sagði aö
maðurinn væri nítján ára gamall en
ekki var vitaö um ástæður verknað-
arins.
Skothríðin í Oakland barnaskól-
anum í Greenwood, sem er tvö
hundruð og fimmtíu kílómetra frá
Charleston, hófst þegar ungi maður-
inn gekk inn í kennslustofu og byrj-
aði að skjóta úr byssu sinni með þeim
afleiðingum aö átta ára stúlka beið
bana.
Því næst fór maðurinn inn í matsal
skólans þar sem hann hélt áfram að
skjóta og ferð hans um skólann lauk
í annarri kennslustofu þar sem hann
lagði byssu sína á kennaraborðið og
sagðist vera orðinn uppiskroppa með
skotfæri.
Fyrr á þessu ári gekk geðsjúk kona
berserksgang í barnaskóla í úthverfi
Chicago og varð átta ára dreng aö
bana. Sú kona svipti sig lífi. Reuter
Allt með kyrrum
kjórum íYerevan
Flestir sovésku hermannanna,
sem sendir voru til höfuðborgar
Armeníu vegna kynþáttaóeirða,
voru kallaðir til baka um helgina,
að sögn embættismanna í höfuð-
borginni, en samkvæmt Tass-
fréttastofunni eru áframhaldandi
verkföll og mótmælaaðgerðir í
gangi.
„Það er órói í höfuðborg Armen-
íu. Margar verksmiðjur eru óstarf-
hæfar og tugir þúsunda manna
hafa verið á Operutorgi í allan dag
og fundimir halda áfram,“ sagði
Tass-fréttastofan í gær og bætti við
að engu að síður hefði ástandið
batnað til muna.
í sovéska sjónvarpinu vora sýnd-
ar myndir frá götum Yerevan sem
gáfu í skyn að hlutirnir væru að
færast í eðlilegt horf og að sögn
fréttamanna var andrúmsloft orðið
allt mun eðlilegra.
í sjónvarpinu voru sýndar götur
iðandi af mannlífi og umferð, búðir
voru opnar og sagt var að einungis
tuttugu af tvö hundruð og tuttugu
verksmiðjum borgarinnar væru
lokaðar.
Engir hermenn sáust í sjónvarp-
inu og talsmaður stjórnvalda sagði
að brynvarðir herflutningabílar,
sem staðsettir hefðu verið um-
hverfis stjórnarbyggingar, hefðu
verið látnir fara á laugardag.
Reuter
HAUST.
SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA
HRINGIÐ í SÍMA 82900
Skrifstof'un lláaleitisbraiit 1 er opin virka daga frá kl. 9 17 r •“ sf m 2 mm
■ “ ÍfHiA
Sjálfstæðismenn, stöndum vörð um Sjálfstæðisflokkinn, eflum flokksstarfið.
Gerum skil á heimsendum happdrættismiðum.
HAPPDRÆTTI
4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno
Dregið 7, októker.
Heildarverðmœti vinninga 16,5 milljón.
fiftt/r/mark
i