Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988. Utlönd Chuibanov í vftnastúku Þú ert sakaður um spillíngu. Teikning Luries Fyrrum aöstoðarinnanríiásráðherra SovétríKjanna, Yuro Churbanov, sagði viö réttarhöldin, sem nú fara fram yfir honum og fieirum í Moskvu vegna spillingar, að hann vildi skila „gjöf' sem hann fékk frá fyrrum leiðtoga kommúnistaflokksins í Úzbekístan, feröatösku, fullri af pening- um. En sovéska fréttastofan Tass sagði að orð Churbanovs, sem hann lét falla í upphafi vitnisburðar síns við réttarhöldin, hefðu vakiö almenna andúð og gremíu í réttarsalnum. Churbanov, sem er tengdasonur Brésnévs, fyrrum Sovétleiðtoga, sagði réttinum að embættismaður flokksins í Úzbekistan, Umarov að nafni, heiði fært sér töskuna og sagt að hún væri gjöf frá Sharaf Rashidov, leið- toga flokksins á staðnum. „Ég opnaði töskuna og sá þá að í henni voru tíu milijónir króna," sagði Churbanov. „Mig langaði tíl aö skila henni, en hver átti að fá hana? Umarov var farinn og mér fannst vandræðalegt að nefna þetta við Ras- hidov. Enn órólegt á Haiti Carmen Christophe kemur til dómshallarinnar I Port Au Prince til aö láta sverja sig í embætti borgarstjóra. Vegna pappírsvandamála þurfti að fresta athöfninni. Gamti borgarstjórinn hefur leitað hælis í Dóminik- anska lýðveldinu. Símamynd Reuter Minni háttar eijur voru enn á Haiti í gær, rúmri viku eftír að ungir herforingjar geröu byltingu í landinu. Kaþólska útvarpið skýröi frá því að skotbardagar hetðu átt sér stað í fyrrinótt í bænum Port-de-Paix þar sem uppreisn ungra hermanna gegn óvinsælum foringjum virtíst halda áfram. Útvarpiö sagði að hermenn í bænum hetðu afvopnaö óbreytta borgara um helgina og sent yfirstjóm hersins lista yfir þá menn sem þeir vilja að fái stöðuhækkun. Ástandið i Port-de-Paix virðist vera dæmigert fyrir ástandið viðs vegar um eyjuna þar sem ungir hermenn, sem styðja byltinguna frá 17. septem- ber, hafa rekið óvinsæla herforingja frá og skipaö sína eigin foringja. Óvissan, sera þessu fylgir, og getuleysi nýja forsetans, Prosper Avrils hershöiðingja, við að koma á aga á nýjan leik, gera þaö að verkum að nær ógerlegt er að átta sig á hvert stefnir hjá þeirri þjóö sem býr við þetta ástand. Herinn reynir að friðmælast Herstjómin í Burma hefur sett upp sérstakan hæstarétt og gripið til fleiri aðgerða tii að reyna að lægja öldurnar í landinu. Útvarpið í Rangoon, sem sljómað er af hemum, sendi þau tilmæli til námsmanna, sem era í felum, að þeir gefi sig fram við yfirvöld og lofaði að ekki yrði gripiö til aögerða gegn þeim. í útvarpssendingu, sem náðist í Bangkok, var hins vegar einnig varaö við því aö þeir sem ekki hlýði alveg fyrirmælum sfjómvalda verði álitn- ir uppreisnarmenn og muni hörðum aðgerðum verða beitt gegn þeim. Hundruð námsmanna og annarra þátttakenda í mótmælimum, sem staöiö haía í sex vikur, hafa flúið tii svæöa sem eru á valdi uppreisnar- manna, náiægt landamærum Thailands. Reutor George Bush bak við ræðupúlt úr heyböggum í Hamp- ton í gær. Simamynd Reuter Michael Dukakis með verðlaunabikar sem demókratar í New Jersey afhentu honum fyrir að hafa „unnið sigur í fyrstu kappræðunum". Símamynd Reuter Ságurræður og árásir Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washington: Forsetaframbjóðendurnir í Banda- ríkjunum, þeir Michael Dukakis, frambjóðandi demókrata, og George Bush, frambjóðandi repúblikana, héldu kosningabaráttunni áfram í gær, tvíefldir eftir sjónvarpskapp- ræðurnar sem fram fóru á sunnu- dagskvöld. Báðir notuðu tækifærið á kosn- ingafundum og skýrðu nánar afstöðu sína í nokkrum málaflokkum sem komu upp í kappræðunum en gær- dagurinn fór að mestu í sigurræður og gagnkvæmar árásir. Bush hélt áfram gagnrýni sinni á frjálslyndi andstæöings' síns sem stjórnmálaskýrendur repúblikana segja að varaforsetanum hafi tekist að sýna fram á á sunnudagskvöld. Dan Quayle, varaforsetaefni Bush, kom fram í fyrsta sinn við hlið Bush síðan flokksþingi repúblikana lauk fyrir rúmum mánuði. Báðir gagn- rýndu þeir afstöðu Dukakis til varn- armála sem og ýmissa innanríkis- mála og Bush lýsti enn einu sinni yfir trausti sínu á hæfileika Quayle til að gegna embætti varaforseta. Dukakis einbeitti sér að innanrík- ismálum á kosningafundum sínum í gær. Hann lýsti yfir vantrausti sínu á tillögur Bush til að rétta við fjár- lagahalla ríkissjóðs og sagði að vara- forsetinn myndi neyðast til að skera niður framlög til almannatrygginga. Hann sagði að Bush hefði engar raun- hæfar tillögur fram að færa í efna- hagsmálum og myndi ekki færa Bandaríkjamönnum bjartari framtíð. Nú þegar rúmlega sólarhringur er liðinn síðan kappræöunum lauk er ljóst að þær reyndust engan veginn sá örlagavaldur í þessari kosninga- baráttu sem margir höfðu búist við. Fréttaskýrendur telja að sá stóri hluti kjósenda, sem enn er óákveð- inn, 37 prósent samkvæmt niður- stöðum skoöanakannana, hafi ekki gert upp hug sinn á sunnudagskvöld. Niðurstöður skoðanakannana um frammistöðu frambjóðendanna gefa hvorugum yfirgnæfandi sigur. í flestum þeim skoðanakönnunum þar sem annar er talinn vera „sigurveg- ari“ er munurinn afar lítill og telja flestir að frambjóðendurnir hafi komið jafnir út úr þessum kappræö- um. Höfundamir geta vænst fangelsisdóma Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Höfundur bókarinnar um norsku leyniþjónustuna og viðtalsmaður hans, Alf Meyer, sem skipulagði norska njósnakerfið á fimmta og sjötta áratugnum, geta báðir átt á hættu fangelsisdóm fyrir að hafa opinberað leyndarmál sem varða ör- yggi norska ríkisins. Höfundurinn, Christian Christiansen' kynnti bók sína á blaðamannafundi í gær. Norski herinn hefur sett á laggirn- ar nefnd sem á aö kanna innihald bókarinnar og sjá til þess aö Christ- iansen og Meyer verði ákærðir fyrir brot á þagnarskyldu ef þurfa þykir. Varnarmálaráðherra Noregs, Jo- han Jörgen Holst, segist þess fullviss Sikileyski dómarinn Antonio Saetta sem á sunnudag var myrtur ásamt þroskaheftum syni sínum í alvarleg- ustu árás mafíunnar um nokkurt skeið. Simamynd Reuter að norska leyniþjónustan starfi í samræmi við norsk lög nú í dag. Það er aftur á móti ljóst að njósnirnar, sem hafa átt sér stað, bæði innan- lands og utan, hafa áður brotið í bága við norsk lög. Þar á meðal er um aö ræða hleranir innanlands og njósnir um mestu valdamenn í Noregi. Varnarmálaráðherrann segist hafa gengið úr skugga um að ekkert þessu líkt gerist í dag. Hann segir einnig að sér beri ekki skylda til þess að kanna sögu starfsemi leyniþjón- ustunnar fyrr á árum. Formaður vinstri sósíalista gerir sig ekki ánægðan með þessi svör og krefst nákvæmrar skýrslu um málið. Og á meöan á þessu stendur heldur blaðið Verdens Gang áfram að lýsa Háttsettur dómari á Sikiley, sem dæmdi aðalguðföður mafíunnar í ævilangt fangelsi, lét lífið á sunnudag í byssukúluregni. Lögreglan sagði að tilræðismenn- irnir hefðu skotið meira en fjörutíu skotum, sennilega úr tveimur vél- byssum, og orðið Antonino Saetta, sextíu og sex ára gömlum dómara við áfrýjunarréttinn í Palermo, og syni hans, Stefano, þrjátíu og fimm ára gömlum, sem er þroskaheftur, að bana er þeir óku eftir fáförnum vegi á suðurhluta Sikileyjar. innihaldi bókarinnar sem enn er ekki komin á markaðinn. Blaðið styrltir mál sitt með viðtölum við norska sjómenn sem segjast hafa unnið sem njósnarar fyrir leyniþjón- ustana. Einn þessara manna var ráð- inn til þess aö taka myndir og gefa lýsingar á öllum mikilvægum hafn- armannvirkjum í Víetnam. „Gögnin voru síðan send bandarísku leyni- þjónustunni skömmu fyrir Víetnam- stríðið í skiptum fyrir fiárhagslegan og tæknilegan stuðning við norsku leyniþjónustuna,“ segir blaðið. Höfundurinn og viðmælandinn eru báðir hægri menn og hafa alltaf ver- iö sterkir stuðningsmenn norska varnarliösins og Atlantshafsbanda- lagsins. Saetta, sem áriö 1985 dæmdi aðal- mafíuforingjann á Sikiley, Michele Greco (páfann), í ævilangt fangelsi og hafði einnig átt þátt í fleiri mafiu- réttarhöldum, er sjötti dómarinn sem mafían ræöur af dögum á tíu árum. Mafían hefur verið að færast í auk- ana að undanförnu og morðin á sunnudag eru alvarlegustu afbrot hennar í nokkurn tíma. Saetta hafði nýlega farið fram á að vera fluttur yfir í almenn mál. Reuter Mafían myrðir dómara á Sikiley

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.