Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988. 13 SPENNU r* ASTAR SAGAN Danfr flytJa út Trvdí SumarJiði íaleifBaan, DV, Arósum; Nú hefur veriö ákveðið að selja eitt stykki eftirlíkingu af Tívolíi til Japans. Tivolí, skemmtigaröurinn frægi í Kaupmannahöfn, var hinn fyrsti sinnar tegundar í heiminum þegar honum var komiö upp fyrir rúmum hundraö árum. Hefur hann borið hróður borgarinnar og Danmerkur út um viða veröld og er vafalaust eitt af þvi sem Kaupmannahöfii er hvað þekktust fyrir. Á aö koma hinu nýja Tívolíi fyrir í borgmni Okayama nálægt stórborginni Kyoto í Japan. Er stefnt að því'að framkvæmdum þar í landi verði lokið árið 1993 og hljóðar fiárhagsáætlunin upp á einn og hálfan milljarð danskra króna. Gengur málið þannig fyrir sig að hiö nýja Tívolí í Japan veröur byggt upp sem nákvæm eftirlík- ing af Tívolíinu í Kaupmanna- höfti meö nokkrum undantekn- ingum þó. Til dæmis verður kín- verski tuminn í Ti volíinu í Kaup- mannahöfn aö sjálfsögðu byggð- ur upp sem japanskur turn í Jap- an. Undirbúningur að fram- kvæmdum fer fram bæöi í Dan- mörku og Okayama. Á fyrr- nefnda staönum fer teiknivinna fram. Ekki er nóg með aö til standi aö opna Tívolí í Japan. Nú standa einnig yfir samningar við New Orleans í Bandaríkjunum og við aðUa í Ástralíu. Eru líkur til þess að samið verði viö þessa aðila á svipuðum nótum og hina jap- önsku. Fyrir aö veita Öðrum heimild til að byggja upp skemmtigarö að sinni fyrirmynd á Tívolí í Kaup- mannahöfn aö fá verulegar greiðslur árlega. Forystumenn skemmtigarðsins halda því fram að fyrir ágóðann af sölu á um- ræddum réttindum muni Tivolí í Kaupmannahöfn verða byggt upp sem enn betri skemmtigarður. Forsvarsmenn skemmtigarös- ins vísa á bug þeirri gagnrýni að útflutningur Tivolís muni draga úr aðsókn ferðamanna til Dan- raerkur. Telja þeir einraitt líklegt að áhrifin veröi þveröfug. Þeir bæta því jafnframt við að ekki komi til greina að byggöar veröi margar eftirlíkingar af Tí- volíi og að alls ekki verði veitt heimild til að byggja fleiri slík í Evrópu. Vamaðarorð á áfengisflöskur ---------jjp----------------- Arma Bjamason, DV, Denver: Allt bendir til þess að innan skamms verði framleiðendur áfengis skyldaðir til að hafa miða á áfengisflöskum sem seldar eru í Bandaríkjunum með varnaðar- orðum landlæknis um hættuna sem fylgir áfengisneyslu. Slik varnaöarorð hafa verið á vindlin- gapökkum í tæpa tvo áratugi. Viöskiptanefnd öldungadeild- arinnar hefur einróma samþykkt tillögur þar aö lútandi. Er þar gert ráö fyrir sérstökum varnað- arorðum til barnshafandi kvenna og annarri setningu með al- mennri viðvörun um áhrif áfeng- is á heilsu fólks og vanabindandi áhrif þess. Snigill fér hraðar Gizux Helgasan, DV, Reeranaes; Bréf frá Göttingen til Berlínar var sjö ár og flmm mánuði á leiö- inni enda þótt nafh og heimilis- fang móttakanda hefði verið skráð bæði skýrt og rétt á um- slagiö. Á milh borganna eru 331 kíló- metri og hefur hraðinn á bréflnu því veriö 5,16 metrar á klukku- stund. Til samanburðar má geta þess að snigill getur auöveldlega koraist 5,25 metra á klukkustund. Útlönd Hljótt kringum flóttamenn Stjórnin í Bonn hefur fram að þessu reynt að halda því leyndu hversu margir A-Þjóðverjar hafa leitað hælis hjá fulltrúum V-Þýska- lands í Berlín. Vegna ástandsins milli þýsku ríkjanna tveggja er ekki hægt að tala um eiginlegt sendiráö en í reynd er munurinn ekki ýkja stór. V-þýska blaðiö Bild am Sonntag skýrði frá því í fyrradag að hundrað og fimmtíu A-Þjóðverjar hefðu á fyrstu átta mánuðum ársins leitað skjóls hjá v-þýsku fulltrúunum í V- Þýskalandi. Einstaka flóttamenn hafi fengið næturgistingu hjá v- þýsku fulltrúunum og nokkrir dval- ist í allmarga daga. V-þýsku fulltrúarnir hafa ætíð haft samband við a-þýska lögfræðinginn Wolfgang Vogel og skrifstofur hans hafa veriö sem tengihður við a-þýsk yflrvöld. í flestum tilfellum hafa flóttamenn ekki getað fengið hundr- aö prósent vissu fyrir því að geta flutt úr landi en alltaf fengið loforð fyrir því að engin hegning fylgdi í kjölfar flóttatilraunarinnar en svo túlkast það þegar leitað er skjóls hjá v-þýsku fulltrúunum. Flest sendiráð vesturvelda verða fyrir heimsóknum óánægðra A-Þjóð- verja ár hvert og málin eru þvínæst alltaf leyst í kyrrþey. Þessi tryggja góða bók M SNORRAHÚS STRANDGÖTU 31 • PÓSTHÓLF 58 602 AKUREYRI SÍMI 96-24222 Ní ÚIGÁFA- SP&INANDI B/tKUR Fóst í bókabúðum og blaðsölustöðum um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.