Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
17
Lesendur
Hreindýr lagt að velli. Framtíðarsýn I sauðfjárslátrun?
Veiðileyfl í stað sláturleyfa
Gunnar S. hringdi:
Nú, þegar verið er aö ræða um hinn
mikla kostnað hjá sláturhúsunum,
sem hann vissulega er, dettur mér í
hug hvort ekki megi leysa þetta stóra
mál með öðrum hætti og þá á þann
veg að í stað þess að haustslátrun
fari fram í sláturhúsunum þá verði
gefin út veiðileyfi, líkt og tíðkast
vegna veiði hreindýranna.
Eg held að þetta ætti ekki aö verða
stórmál ef vel er að staðið. Land-
búnaðarráðuneytið myndi láta búa
til heildarkvóta fyrir „haustveiðar"
og síðan myndiVerða auglýst veiði-
leyfi fyrir Pétur og Pál og menn
sæktu síðan um. Þá kæmi líka í ljós
hvort áhugi er fyrir hendi og þar með
hvort almenningur vill yfirleitt
borða kinda- og lambakjöt mikið
lengur.
Þarna gætu auðvitað hótel- og veit-
ingahúsaeigendur gert góð viðskipti,
svo og allur almenningur. Nú spyr
kannski einhver sem svo; hvar á þá
að slátra? í sláturhúsunum, að sjálf-
sögðu, en hver og einn sjái um slátr-
un á sínum kindum sjálfur. Veitinga-
húsin fengju þó heimild til að slátra
á „heimavelh“, þ.e. í kjötvinnsluher-
bergjum sínum, þau eru orðin svo
fullkomin, hvort eð er, allt físalagt í
hólf og gólf.
Aðrir myndu þurfa að sækja um
„heimild" til slátrunar, rétt eins og
nú þarf að gera til þess að fá að sigla
með ferskfiskinn. Það þyrfti að sjálf-
sögðu að koma upp sæmilegu bið-
skýli við landbúnaðarráðuneytið
fyrir þá sem bíða alla nóttina eftir
veiði- og sláturleyfi! Þarna gæti land-
búnaðurinn slegið sjávarútveginum
við því að ekkert biðskýli er enn
komið fyrir þá sem bíða næturlangt
eftir siglingaíeyfi. Þeir verða að hír-
ast í bílum sínum alla nóttina.
Ég skora á ráðherra hinnar nýju
ríkisstjórnar að láta kanna lausn
sláturhúsavandans á þann hátt sem
ég hefi nefnt hér. Ég er viss um aö
þetta fellur vel í kramið hjá mörgum
ráðherranna í væntanlegri vinstri
stjórn því að þeir munu hvort eð er
ætla að byggja sína stjórnun á leyfis-
veitingum að meira eða minna leyti.
Slæm þjónusta
ívar Atlason hringdi:
Mig langar til að kvarta yfir afar
dónalegu viðmóti eins afgreiðslu-
manns hjá Sjónvarpsþjónustunni sf.
í Síðumúla. Umræddur afgreiðslu-
maður var- beðinn um upplýsingar
varðandi loftnetsgreiðu og festingu
fyrir hana á húsþak. Ég hafði ekki í
hyggju að kaupa loftnetsgreiðuna,
þar sem ég átti hana fyrir, heldur
festinguna.
Þetta virðist hafa farið svo óskap-
lega í, ég vil segja, „peningataugar"
mannsins aö mér var ekki veitt sú
afgreiðsla sem aðrir myndu í flestum
tilfellum hafa veitt.
Skap mannsins virtist vera alveg
að þrotum komið eftir að hann hafði
eytt tíma í að „krota“ á blaö mögu-
lega uppsetningu greiðunnar á þak-
ið. Þegar ég baö um ögn nánari upp-
lýsingar tók maðurinn blaðið og reif
það fyrir framan mig. Ég vona að sá
afgreiðslumaður Sjónvarpsþjón-
ustunnar sf. sem í hlut á sjái að sér
og breyti framkomu sinni gagnvart
öðrum sem kannski flokkast undir
„óarðbæra" viðskiptavini eða þá taki
sér annað starf fyrir hendur, t.d. lág-
erstarf, íjarri búðarboröinu.
Pajero og Range Rover
Merktar
aurhlífar.
Svartar
lugtargrindur.
Merktir
hliðarlistar.
•
Úrval af
aukahlutum
Sendum í póstkröfu samdægurs!
................... -
Nöldursf.
Varahlutaverslun Akureyri,
Símar 96-21365 og 96-21715.
>«?<) hðþckju.
Toyota Tercel '83, ekinn 93.000 km. MMC Galant ’87, ekinn 9.000 km.
Cherokee Laredo ’87, ekinn 32.000
km.
MMC Pajero ’87, ekinn 40.000 km.
BÍLAR
Til sölu notaðar bifreiðar
í eigu umboðsins
EGILL VILHJALMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202
ÍX
Sífellt fleiri framleiðendur og verslunar-
eigendur taka strikamerki í þjónustu
sína. Strikamerki eru til mikilla bóta,
bæði fyrir kaupmenn og neytendur. Á
morgun verður fjallað á neytendasíðu
um strikamerki og hvert gagn er af þeim.
ísland er aðili að EAN, alþjóðasamtök-
um um notkun strikamerkja. Enn sem
komið er er þó notkun þeirra ekki mikil
á íslandi. Heildarvelta í verslun á íslandi
er talin vera um 35 milljarðar á ári.
Notkun strikamerkja ertalin spara 1 %.
Fyrir þá upphæð mætti kaupa aflestrar-
búnað fyrir 450 verslanir.
Nú fer senn að líða að jólum. Næstu
mánuði nota eflaust margir til þess
að leggja gólfefni hjá sér. Á morgun
birtastá heimilissíðum nokkrar
upplýsingar um reglur til að styðj-
ast við um val á gólfefni. M.a. verð-
ur birt tafla yfir hlýleika, endingu,
vatnsþol, andrúmsloft og fleiri
þætti-gefnar eru einkunnir. Tekin
verða fyrir dúkefni, korkur, teppi,
parket og steinefni. Skoðað verður
hvernig hin ýmsu efni henta fyrir
gang, stofu, eldhús o.s.frv.