Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
39
x>v
Hjalti Þórarinsson
yfírlæknir fór holu í
höggi í annað sinn
Einn Hörkutólanna, Hjalti Þórar-
insson læknir, fór holu í höggi í ann-
að sinn á ferlinum fyrir rúmri viku.
Golfhollið Hörkutólin var þá að spila
á Korpúlfsstaðavellinum. Afrek sitt
vann Hjalti á annarri braut, holu 2.
„Þetta er útborgunardagur hjá
mér,“ sagði Hjalti þegar hann spilaði
golf á Korpúlfsstaðavelhnum á laug-
ardaginn. Hann hafði þá nýlokið við
að greiða félögum sínum, Guðmundi
Ingva Sigurðssyni og Magnúsi Þ.
Torfasyni, sína viskíflöskuna hvor-
um. Fjórði félaginn, Guðjón Eyjólfs-
son, drekkur ekki og þess vegna fékk
hann tólf golfkúlur í kassa í staðinn.
Þetta var samningsbundið. Sá fé-
laganna sem færi holu í höggi yrði
að láta hina fá viskíflösku.
Hjalti hafði einu sinni áður farið
holu í höggi í golfi. Það var á ann-
arri brautinni á Grafarholtsvellinum
fyrir nokkrum árum.
„Hann má bókstaflega ekki sjá holu
númer 2,“ segja félagar hans í Hörku-
íólunum um afrek Hjaita.
-JGH
Hjalti Þórarinsson, læknir á Landspítalanum, hefur tvisvar sinnum farið holu í höggi á ferlinum. Seinna skiptið
var fyrir rúmri viku á Korpúlfsstaðavellinum. DV-myndir GVA
Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavikur:
Það er sprenging
í golfinu
„Það er sprenging í golfíþróttinni
um þessar mundir. Áhuginn er að
aukast gífurlega," segir Björgúlfur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Golfklúbbs Reykjavíkur, um golf-
íþróttina.
Að sögn Björgúlfs eru tæplega 30
golfvelhr um allt land. Á höfuðborg-
arsvæðinu ög næstu bæjum í kring
eru um tíu golfvellir. Það er nánast
kominn golfvöllur í hvem kaupstað
landsins.
Golfklúbbur Reykjavíkur er elsti
golfklúbbur landsins. Hann var
stofnaður árið 1934. Almennt er sagt
að frá og með þeim tíma hefjist golf-
leikur á íslandi.
„Það er útiveran sem gefur golfinu
gildi. Þetta er skemmtileg keppnis-
íþrótt og feikigott fjölskyldusport.
Fjölskyldan gengur saman, talar
saman og slær saman.“
Björgúlfur segir að hægt sé að spila
golf langt fram eftir aldri. „Það er
hægt að spila golf svo lengi sem menn
geta staulast áfram. Það er þess
vegna hægt að nota kylfuna sem staf,
ef því er að skipta," segir Björgúlfur.
-JGH
Björgúlfur Lúðviksson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur.
Lífsstai
Nokkrar
golfkúlur
Fjögur þúsund
Talið er að um fjögur þúsund
manns spili golf nokkuð reglulega
á íslandi. Um þijú þúsund eru fé-
lagar í golfklúbbum landsins og um
eitt þúsund eru sagðir spila golf
nokkuð reglulega á hinum og þess-
um völlum án þess að vera félagar
í golfklúbbi.
Fimm vellir
Fimm golfvellir voru á íslandi
fyrir 20 árum. Um tíu vellir voru
komnir fyrir 10 árum og nú eru
vellimir um 30 talsins. Bæði iðk-
endum og völlum íjölgar stöðugt.
Þegar vantar nokkra velli á höfuð-
borgarsvæðinu.
Golf á 16. öld
Vitað er að golf var spilað í Skot-
landi og Hollandi á sextándu öld.
Til era 400 ára gamlar reglur um
það hvemig menn eiga að haga sér
á golfvöllum.
Vinsælt sjónvarpsefni
Golf er með vinsælasta sjón-
varpsefni sem til er. Fáar íþrótta-
greinar fá jafnmargar beinar út-
sendingar á besta sjónvarpstíman-
um og einmitt golf. Margir fylgjast
spenntir með íþróttinni án þess að
hafa nokkurn timann svo mikið
sem farið á golfvöll.
-JGH
yiNNUR
X UAUGAR»ÖGUW1?
Vinningstölurnar 24. september 1988
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ:
8.632.929,-
Fimm tölur réttar kr. 5.007.768,- skiptast á 2 vinningshafa, kr. 2.503.884,-
á mann.
Bónustala + fjórar tölur réttar kr. 537.676,- skiptast á 4 vinningshafa, kr.
134.419,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 927.360,- skiptast á 252 vinningshafa, kr. 3.680,- á mann.
Þrjártölur réttar kr. 2.160.125,-skiptastá 7855vinningshafa, kr. 275,-á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111