Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 32
40
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
Erlend myndsjá
Beðið fyrir keisaranum
Hirohito keisari í garði sínum.
Símamynd Reuter
Gamall maður í herklæðum vottar
keisaranum virðingu sina.
Símamynd Reuter
'V
Afr.*' 1
> ,
Tugir þúsunda Japana létu rigningu ekki á sig fá og biðu um helgina ettir að komast að til að rita nöfn sín á lista með heillaóskum keisaranum til handa.
Símamynd Reuter
Um helgina höfðu rúmlega þrjú
hundruð þúsund Japanir skráð
nafn sitt á lista í höll Hirohitos
Japanskeisara yfir þá sem óskuöu
honum góðs bata.
Hinn 87 ára gamli keisari hefur
verið hluti af daglegu lífi Japana í
meira en sextíu ár og er líklega
„síðasti keisarinn". Þegar hann
komst til valda var opinberlega lit-
ið á hann eins og guð en sonur
hans, krónprins Akihito, mun hefja
valdaferil sinn sem venjulegur
maður.
Eftir að Japanir biðu ósigur í
seinni heimsstyrjöldinni hætti
Hiröhito að hafa pólítísk völd en
samt sem áður varð vart við mik-
inn titring á fjármálamörkuðum í
Japan við fregnirnar um veikindi
keisarans. Leiðtogar stjórnarinnar
frestuöu öllum opinberum athöfn-
um og hátíðahöldum í tilefni haust-
komunnar var einnig frestað.
Japanskir glímukappar voru meðal þeirra sem óskuðu keisaranum alls góðs.
Símamynd Reuter
Hirohito treysti sér til þess að
horfa á japanska fjölbragðaglímu í
sjónvarpinu um helgina og meðal
þeirra sem komu til keisarahallar-
innar í gær með bataóskir voru
glímukappar.
Auk áhuga á íþróttum hefur það
verið áberandi hin síðari ár hversu
mikinn áhuga keisarinn hafði á
blómum og marglyttum. Margir
muna þó betur eftir honum í her-
klæðum en venjulegum jakkaföt-
um með stráhatt.
Reuter
Ungar stúlkur biðja fyrir keisaranum fyrir utan höl
Simamynd Reuter