Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. Fréttir Skoðanakönnun Hagvangs: Allir fjórflokkamir tapa til Kvennalistans - A-flokkamir halda illa á þeim sem kusu þá síðast Samkvæmt niðurstööum skoð- anakönnunar Hagvangs hafa stjórnarflokkamir fylgi 41,8 pró- senta þjóðarinnar. Þeir vinna hins vegar allir á frá síðustu könnun Hagvangs. Könnun Hagvangs var gerð dagana 21. til 30. september eða frá þriðja degá stjórnarmynd- unartilrauna Steingríms og fram að öðrum degi ríkisstjórnar Stein- gríms. Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu í könnuninni sögöust 11,4 prósent kjósa Alþýðuflokkinn ef kosið yrði nú. 21,3 prósent sögð- ust kjósa Framsókn, 30,1 prósent Sjálfstæðisflokk, 8,3 prósent Al- þýðubandalag, 3,3 prósent Borg- araflokk og 24,0 prósent Kvenna- hstann. 0,8 prósent sögðust kjósa Stefán Valgeirsson en aörir flokkar fengu minna. Hagvangur kannaði sérstaklega hreyfmgar á fylgi milli flokka. Ekki vildu allir svarendur gefa upp hvaö þeir kusu síðast. Því er ekld algert samræmi á milli hlutfalls þeirra sem segjast ætla að kjósa ákveðinn flokk aftur miöaö við niðurstöður síðustu kosninga og þess fylgis sem viðkomandi flokkur fékk í könnun- inni. Af þeim sem kusu Alþýöuflokk- inn síðast segja 64,2 prósent ætla aö kjósa hann aftur. Flokkurbin hefur þvi tapaö 35,8 prósent af fylgi sínu frá kosningunum. 19,4 prósent fara til Kvennalista, 9 prósent til Framsóknar og 7,5 prósent til Sjálf- stæðisflokks. Af 11,4 prósent fylgi Alþýöuflokksins nú eru 89,6 pró- sent frá gömlum kjósendum flokks- ins en 10,4 prósent eru nýir fylgis- menn. Af þeim sem kusu Framsóknar- flokkinn síöast ætla 80 prósent að kjósa hann aftur. Mest af fylgi sínu Gunnar Maack, viðskiptafræðingur hjá Hagvangi, skýrir niðurstöður DV-mynd GVA skoðanakönnunar fyrirtækisins. hefur flokkurinn tapað til Kvenna- listans, eða 10,6 prósentum. 3,5 pró- sent fara til Sjálfstæðisflokks, 2,4 prósent til Alþýöubandalags og 3,6 prósent skiptast jafnt á milh Al- þýðuflokks, Borgaraflokks og Stef- áns Valgeirssonar. Af 21,3 prósent fylgi Framsóknar nú eru 78,2 pró- sent frá gömlum kjósendum flokks- ins. Af fylgi Framsóknar nú kemur hins vegar 6,9 prósent frá Alþýðu- flokki, 5,7 prósent frá Sjálfstæðis- flokki, 3,4 prósent frá Kvennalista, 2.3 prósent frá Alþýðubandalagi og 3.5 prósent annars staðar frá. Af þeim sem kusu Sjálfstæðis- flokkinn síðast segjast 87 prósent ætla að gera það aftur. 9,2 prósent af fylgi flokksins í kosningum fer hins vegar til Kvennahsta og 3,8 prósent til Borgaraflokks. Af 30,1 prósent fylgi flokksins nú kemur 85,1 frá gömlum kjósendum, 5,2 prósent koma frá Borgarflokki, 3,7 prósent frá Kvennahsta og 6 pró- sent annars staðar frá. Af þeim sem kusu Alþýðubanda- lagiö síðast segjast 63,3 prósent ætla að gera það aftur. 28,6 prósent af fylginu hefur farið yfir til Kvennalistans, 4,1 prósent til Framsóknarflokksins og 4,1 pró- sent til Sjálfstæðisflokksins. Af 8,3 prósent fylgi flokksins nú eru 83,8 prósent gamlir kjósendur en 10,8 prósent koma frá Kvennalista og 5.4 prósent frá Framsóknarflokkn- um. Af þeim sem kusu Kvennalistann í síöustu kosningum segjast 80,3 prósent ætla aö kjósa hann aftur. 6.6 prósent af gamla fylginu hefur farið yfintil Alþýðubandalags, 4,9 prósent til Framsóknar, 4,9 prósent til Sjálfstæðisflokks og 3,2 prósent skiptast jafnt á milh Alþýðuflokks og Borgaraflokks. Af 24 prósent fylgi Kvennahstans nú eru 49 pró- sent gamhr kjósendur, 24 prósent koma frá Alþýðubandalagi, 13 pró- sent frá Alþýöuflokknum, 12 pró- sent frá Sjálfstæðisflokknum, 9 prósent frá Framsókn og 3 prósent koma annars staöar frá. -gse Ustamaðurinn Sjötn Haralds- dóttír og hinir þýsku handverks- menn vlö uppsetningu lista- verksins. Stykkishólmur: Róbert jörgensen, DV, Stylddshólmi: Um þessar mundir er verið aö koma fyrir á einum útvegg ný- byggingar sjúkrahússins í Stykk- ishólmi listaverki eftir Sjöfn Har- aldsdóttur. Verkiö heitir Heilag- ur Frans og er þetta mósaik- mynd. Listaverkið var unnið í Linnich í Þýskalandi hjá hinum frægu Oidtmann-bræörum. Fyrirtækið Dr. H. Oidtmann hefur verið starfondi í 125 ár og er flórða kynslóöin nú við stjóm- völinn. Það hefur unnið fyrir fræga íslendinga gegnum árin. Þar eru frægastar Gerður Helga- dóttir og Nína Tryggvadóttir. Verkiö á húsi tollstjórans í ReyHjavík og listaverkin í Skál- holtskirkju eru unnin hjá þessu fyrirtæki. Áætlaður tími við uppsetningu listaverksins hér i Hólminum er sjö dagar. Handverksmennimir, sem vinna aö uppsetningunni, eru hinir sömu og unnu viö hús tollstjórans í Reykjavík. í dag mælir Dagfari__________________ MeðvHundariausir íslendingar Dagfari hefur fylgst með ólympíu- leikunum eins og aörir íslendingar. Dagfari tekur ekki undir með þeim sem gagnrýna íslensku keppend- imia fyrir slælega frammistöðu. Þeir áttu við ramman reip aö draga og eftir atvikum má vel við ýmis úrsht una. Aðalatriöið er líka aö vera með og svo höfum viö lært ýmislegt sem kemur sér vel fyrir næstu ólympíuleika. Sumir farar- stjóranna era búnir aö vera farar- stjórar á ólympíuleikum frá því elstu menn muna en skýringin er sú að þeir era aíltaf að læra eitt- hvað nýtt fyrir næstu ólympíuleika og það er ekki hægt aö sparka mönnum sem hafa öðlast reynslu á einum ólympíuleikum, sem kem- ur þeim til góða á þeim næstu. Þess vegna era sömu fararstjóramir valdir aftur og aftur og sama á aö gera með íþróttamennina. Það er ekkert gagn í því að senda alltaf nýja menn til keppni, vegna þess að þeir hafa ekki reynslu frá fyrri leikum. Þetta sannaöist best í kringlu- kastinu. íslendingar höfðu þar tvo keppendur, annan með reynslu, hinn án reynslu. Þessi með reynsl- una kastaði mun lengra, þó hann hafi ekki kastaö eins langt og hann er vanur. Við því var ekki að búast en hann hefði áreiöanlega kastað ennþá styttra ef hann hefði ekki haft reynslu frá fyrri leikum. Hinn keppandinn í kringlukast- inu hafði ekki þessa reynslu og gerði öh sín köst ógild. Enda segir hann svo frá í merku viðtali við Morgunblaðið: „Þegar ég gekk inn í hringinn, skynjaði ég engar hreyf- ingar, vissi varla hver ég var eða hvað ég var að gera, var dauður. Þetta var hræðileg lífsreynsla og þaö er hlægilegt hvað köstin voru léleg.“ Og hann bætir við: „Ég er alveg grænn í þessari grein, en þetta er sjötta árið mitt. Þeir sem standa sig era búnir að vera í þessu í 15 til 20 ár, en flestir era langt frá sínu besta.“ Og kringlukastarinn bætir því enn viö að hann hafi alveg far- iö á taugum. Var í lagi á milli kasta, en sagan endurtók sig í hringnum. Þá misstí hann meðvitundina. Þama hafa menn þaö svart á hvítu. Þaö er ekki von aö kringlu- kastaramir nái árangri, þegar þeir skynja engar hreyfingar þegar þeir kasta og vita ekki hvað þeir era að gera, vita varla hveijir þeir eru. Hvemig getur þjóöin búist viö að íþróttamenn nái árangri, þegar þetta er svona svakalegt? Enda seg- ir hann að það sé ekkert að marka kringlukast, nema menn séu búnir að kasta í fimmtán til tuttugu ár. Það þýðir auðvitað að þennan kringlukastara verður að senda á næstu þijá ólympíuleika án-þess aö búast megi viö því að hann viti hver hann sé, áður en hann fer að ná einhveijum árangri. Hinn kringlukastarinn, sem kastaöi styttra en hann er vanur, var þó meö meðvitund vegna þess aö hann var búinn að keppa á ólympíuleik- um áöur. Þetta sannar um leið regluna með fararstjórana, að nauösynlegt er að senda menn á ólympíuleika aftur og aftur til að þeir öðhst reynslu sem aö gagni getur komið. Um tíma hélt Dagfari að þetta meövitundarleysi heföi htjáð handboltamennina okkar líka, enda var ekki sjón að sjá þá í sum- um leikjunum. En síðar kom í ljós að það var ekki þeim að kenna, heldur þjálfaranum, og þeir náöu sér myndarlega á strik og era hætt- ir við aö reka þjálfarann. En kringlukastarinn getur ekki rekiö þjálfarann, því hann er sjálfur þjálfari og getur því ekki sagt kepp- andanum að hann sé meðvitundar- laus. Allir hljóta aö viðurkenna að það er útilokað að kasta kringlu fyrir þá sem era meðvitundarlaus- ir og ekki skypja hreyfingar sínar. Eftir atvikum verður því að telja að árangurinn í kringlukastinu hafi verið viðunandi enda er hann fyrst og fremst undirbúningur fyrir næstu ólympíuleika; Eða þar næstu. Eða þar, þar næstu. Menn læra af reynslunni. Við, sem heima sitjum og gerum sífellt kröfur um að okkar menn standi sig, veröum að átta ókkar á því, þegar við sjáum kringlukastarana á skerminum og reyndar allt hitt íþróttafólkiö, aö sumt af þessu fólki veit ekki hvaö það er að gera, eða hvað það heitir. Það era ekki margir sem leika þaö eftir að taka meövitundarlausir þátt í ólympíuleikum. Miðað við þá staöreynd var frammistaða íslend- inganna góð. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.