Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. Spumingin Hefurðu gaman af að tefla? ■ .m María Eggertsdóttir: Nei, ég teíli mjög sjaldan. Guðmundur Jónsson: Nei, ég geri lít- ið að því. Svanlaug Arnardóttir: Nei, ég kann ekki að tefla. Elín Ósk Þorsteinsdóttir: Nei, ég kann ekki mannganginn. Jón Sigurbjörnsson: Já, ég tefli tals- vert, fylgist með skákmótum og þess háttar. Jón Sólmundsson: Já, ég hef mjög gaman af því, sérstaklega að vinna. Lesendur Góður sjónvarpsþáttur með flokksformönnum: Röggsamir stjórnendur Gylfi Guðmundsson skrifar: Sl. miðvikudagskvöld var í sjón- varpinu (RÚV) viðtalsþáttur með formönnum ríkisstjórnarflokk- anna þriggja, þeim Steingrími Her- mannssyni, Jóni Baldvini Hanni- balssyni og Ólafi Ragnari Gríms- syni, og stjórnendum þáttarins, þeim Ingimar Ingimarssyni og Arnari Páli Haukssyni. Þetta var fróðlegur þáttur fyrir margra hluta sakir. Einkum þótti mér athygli- svert hve snjallir og röggsamir stjórnendur þáttarins, fréttamenn- irnir Ingimar og Arnar Páll, eru. Þessir fréttamenn sýndu alveg nýja hlið á stjórnendum svona þátta og sem spyrlar voru þeir eins og best verður á kosið - líktust starfsbræðrum sínum eins og þeir gerast bestir erlendis. Með nýjum fréttamönnum og ferskum straum- um erlendis frá leggst það af að verið sé að hygla viðmælendum með vægum eða fyrirfram um- beðnum spurningum, eins og oft hefur gerst og maöur átti gjarnan að venjast, einkum ef viðkomandi fréttamaður var svo í þokkabót „Sýndu alveg nýja hlið á stjórnendum svona þátta,“ segir bréfritari m.a. - Fréttamennirnir Ingimar Ingimarsson og Arnar Páll Hauksson. flokksbróðir þess sem sat fyrir svörum. Þessir fréttamenn voru mjög kurteisir en gerðu þó flokksfor- mennina alla meö tölu aö gjalti með beinskeyttum spurningum sínum sem þeir bara endurtóku þegar við- mælendurnir ætluðu að fara út í aðra sálma. - Það var t.d. athygli- svert að er fréttamenn spurðu formann Alþbl. um jafnrétti í flokki hans svaraði hann því á þann veg að það gilti aðeins um „stofnanir innan flokksins" en ætti ekki við um þingflokk eða ráðherraemb- ætti! Það var líka einkar skondið og raunar aðhlátursefni að þegar fréttamennirnir inntu formennina eftir þeim einkunnum og viðurn- efnum sem þeir hafa gefið hver öðrum gegnum tíðina urðu svör þeirra hin vandræðalegustu. Þeir átu upp hver eftir öðrum að „það hefði nú verið sagt fyrir 10 árum“! - Þeir minntust einnig mikið á „löndin í kringum okkur“, hvaða lönd sem það nú eru! Það sem upp úr stendur eftir þennan þátt er að hinir nýju frétta- menn láta ekki lengur „pakka sér inn“ eftir flokksaga eða láta við- mælendur komast upp með að svara út í hött eins og löngum hef- ur tíðkast. Og þá kemur bara í ljós að við eigum enga raunverulega stjórnmálamenn heldur vanhæfa og vonsvikna skussa sem verða orölausir þegar þeir mæta hæfum •mönnum sem láta ekki blekkjast af orðagjálfri eða meðfæddum slóttugheitum. . Hagsmunir Alþýðubandalags 1 fyrirrúmi: Guðrúnu fómað Páll Jóhannsson hringdi: Það er athyglisvert í sambandi við nýju ríkisstjórnina, hvernig þeir hjá Aiþýðubandalaginu hafa komið því svo fyrir að enn er allt óbreytt þar inna dyra og nánast sömu mennirnir og áður sem halda þar um stjórn- völinn, þrátt fyrir formanns- og vara- formannsskiptin. Þetta sést best á því hvernig þess er sérstaklega gætt að hleypa aldrei konu í nein veigamikil embætti hjá flokknum. Þess er líka gætt að tengsl- in við flokkseigendafélagið í flokkn- um rofni ekki og þar á ég auðvitað við fyrrum formann flokksins sem fær nú embætti menntamálaráð- herrans. Það kom aldrei til greina, að formanninum yröi hleypt upp á svið, án þess að senda með honum eins konar gæslumann, eða „rótara" eins og það heitir víst á máli skemmtimanna. Síðan er það valið um þriðja ráð- herraembættið, sem allir reiknuðu með að kona myndi skipa. Um tvær var að ræða. Þar töldu menn Guð- rúnu Helgadóttur hafa yflrhöndina, með mikla reynslu og nýtur auk þess talsverðra vinsælda og það meira aö segja hjá andstæðingum flokksins og einnig hinum hlutlausu. En Guðrúnu var fórnaö. „Það eru bara ekki lausir fleiri ráðherrastól- ar,“ sagði flokksformaðurinn og glotti við tönn. - Já, það er kaldrana- legt í flokki sem enn kennir sig við jafnrétti og félagshyggju, að konur skuli ekki eiga þar upp á pallborðið. Ég tel að þarna hafi Alþýðubandalag- ið misstigið sig herfilega á leiöinni upp á sviðið og mér býður í grun að sé hreinlega ekki um opiö brot að ræða, þá þurfi a.m.k. verulega að binda um, því flokkurinn gengur haltur lengi á eftir og getur átt lengi í þessu. Guðrún Helgadóttir, alþingismaóur fyrir Alþýðubandalagið i Reykjavík. - „Hefur mikla reynslu og nýtur vinsælda - meira aö segja hjá andstæðing- um flokksins," segir hér. Steingrímr hægr vægt mælir Höf: Bjarni Eliasson. - Gjört hinn 10. september annó 1988 Lesendasíðan er sá vettvangur 1 DV sem ekki er hvaö best failinn til ljóðabirtingar, og plássið dýr- mætt til hinnar dagiegu þjóömá- laumræðu sem lesendur meta svo mjög að geta tjáö sig um á síðunum. - Þegar eftirfarandi kvæði barst var það hins vegar snarlega dæmt sem inniegg í þjóðmálaumræðu, og hananú. Marar knörr ok skelfr þjóðarskútan móö hrekkr ok sökkur senn mýs ok menn í mar fara. Engi mannbjörg kann at verða tjeðra tapast allt ok hrapar. Þings þollar aliir þráast ok knáir miklask ok stikla hver sem betr getr á ráöum ok dáðum esa duga hugprúðum þinglingum ok ráðherrum knarrar. Einar Oddr reynir raungóðr laun lækka ok smækka smjör ok bit viturrar vorrar þjóðar ok róör reynir of rausn þyngja. Eigi má sá fram halda heldr sneyptr snauta. Forstjóra lið ijáði ok ráð tjeöum hvar í broddi Einar Oddr sköruhga skundaði á fundi ok mundaöi niöurskurö miör þokkaöan er hrökk óðar viö mótbárur þjóöar. Ráöherrar þjáðir hræddir og mæddir mega vart stund biunda báöum greipum sneyptir snarliga ok arliga verja sæti of gætni. Garpar sessur þessar þráliga iáta. Ráöherraiið biör ok bersk herskáir á hvem annan herja. Jón Baldvin tónar þitt óblítt bitr harka of hörku alþýðu halr heggr ok leggr. Steingrímr hægr vægt mælir meöal tjeðra. Hyggst leggja leið greiöliga ok ganga þangað þar sem nú frú fóngulig forseti vor vær býr á bæ. Þegir þumbaraligur umbi austfiröinga hraustr. Halldór framsóknar halr heldr þegir en segja sem ok aðrir blaðra ok bulla þollar allir. Tryggr hyggr hann sannliga. Meðan ræða ok bræðr busar þykjast miklir má skútan skjálfa ok skorðast millum borða brotna ok grotna ok sökkva nökkvi. Senn má stjóm fóma fijótt þörf at hörfi. Senn kvennaflokkr Qjóö okkar þjóöar þurfa beit fleyta fljótliga ok skjótliga skunda til funda. Þá engir lengur leist meistaraliga mál hver herja. Þörf er at hörfl halir frá ráðuin ok renni senn ór stólum fóhn. Feh fljóðum þjóðar þau völd er höldar hafa vafasamir of vissu misst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.