Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. Dægradvöl Obyggðaferðir eru tilvalin dægradvöl: Það er engu öðra líkt að ganga í Jökulheimum „Þaö er engu ööru líkt aö ganga í Jökulheimum. Þarna er sandur og meiri sandur og úfið hraun á milli sem er svo erfitt yfirferðar að þú kemst ekki nema um sjö hundruð metra áfram á hverri klukkustund," segir Ágúst Björnsson, félagi í Jökla- rannsóknafélagi íslands. Ágúst er vanur maður í óbyggðum. Hann hefur verið félagi i Jöklarann- sóknafélaginu um árabil og raunar flugbjörgunarsveitinni líka. Hann kýs gönguferðir í óbyggðum fram j-fir aðrar vegna landslagsins og heil- næms fjallalofts. Gönguferðir í óbyggðum eru engar hversdagsgöngur * „Ég skora á fólk að gera meira af því að ganga úti í náttúrunni og að gefa óbyggðaferðum gaum. Þær eru öðruvísi en aðrar ferðir. Mér fmnst meiri spenna yfir þeim. Gönguferðir í óbyggðum eru engar hversdags- göngur." Ferðin, sem Ágúst fór í með Jökla- rannsóknafélagi íslands á dögunum, Þetta er hann Dóri. Þessi klettur er kenndur við Halldór Ólafsson, renni- smið og mikilvirkan félaga í Jökla- rannsóknafélaginu. er árleg haustferð félagsins inn í Jök- ulheima. Þetta var helgarferð í óbyggðirnar, farið eftir vinnu á fóstudegi og komið heim aftur seinni partinn á sunnudag. Engin spurning um það að svona helgar eru engar venjulegar helgar. Þær sitja eftir í minningunum. „Viö ókum fyrst að Þórisvatni og yfir nýju brúna þar sem stíflan er. Þaðan er ekið að Veiðivötnum og inn í Jökulheimana. Þetta eru sérstakir heimar. Það er þarna sem menn skipta yfir í snjóbílana og halda upp á Vatnajökul," segir Ágúst. Tröllahraunið heill heimur fyrir sig „Tröllahraunið er heill heimur fyr- ir sig. Við gengum stanslaust í sjö klukkustundir yfir úfið hraunið. Það er farið upp og niður, hægt. Það þarf að þrautsigta hvar maður stígur, vakta hvert fótmál. Þaö reynir á mann í svona gönguferðum. Það ger- ir þær líka skemmtilegri en aðrar, meira spennandi. Ég held að fólk Þetta er kort af gönguleiðinni um Tröllahraun yfir i Jökulheima. Leiðin, sem fólkið gekk, er merkt með punktum á kortinu. DV-kort JRJ Askrifendur! Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin. p Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna. Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti. ■■■■ komist meira í tæri við sjálfa náttúr- una í óbyggðum og það fái líka meiri tilfinningu fyrir þessu landi sem við búum í.“ Svona ferðir gefa lífinu lit Um átján manns fóru í haustferð- ina í Jökulheima að þessu sinni. Með í ferðinni voru nokkur börn. Þau eru auðvitað fædd inn í félagið og fara spennt í óbyggðir með foreldrum sín- um. Þau koma heim reynslunni rík- ari. Það er dálítið annað að arka yfir úfið hraun að hausti til við Vatnajök- ul á miðjum laugardegi í september en að ganga niður Laugaveginn með félögunum og líta í búðarglugga. Svona ferðir eru krydd í tilverunni. Menn rífa sig upp úr hversdagsleik- anum, fara á vit nýrra ævintýra. Það var óvenjumikið í ánum „Það var óvenjumikið i ánum að þessu sinni. Raunar svo mikið að við komumst ekki upp að Vatnajökli, en þangað var ferðinni heitið." Þennan laugardag í september var hlýtt í veðri. Inn á milh gerði góðar dembur á mannskapinn. Hún hressir útiveran. Það er bara að klæða sig rétt og mæta veðurguðunum í Jökul- heimunum tilbúinn í slaginn, bjóða þeim birginn. Oftar en ekki er vindasamt og kalt í óbyggðum. Vindgalli, regngalh, góð peysa, vettlingar og hvað ahur þessi klæðnaður heitir er nauðsynlegur í farteskinu. Án gönguskónna er maður nánast á sokkaleistunum „Skórnir eru samt aðalatriðið þeg- Með þessum boðgreiðslum Yinnstmargt: • Þær losa áskrffendur vlðónæðivegnainn- helmtu. • Þareraþægilegur gralðslumátlsem tryggir skllvísar greiðslur þrátt fyrir annlreðaQarvistfr. • Þærléttablaðberan- umstörflnenhann heldurþóóskertum tekjum. • Þar auka óiyggl. Blaðberareratil damisoftmeðtölu- verðar fjáihæðlr sem geta glatast Hafið samband við afgreiðslu DV kl. 9-20 virka daga, laugardaga kl. 9-14 |í síma 27022 eða við umboðsmenn okkar ef óskað er nánari upplýsinga. Hér er staðið í gömlum glg sem Máni heitir. Hann er norðaustan við Þóris- vatn. 4—fc—H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.