Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. Viðskipti Uppboðið í Kaupmannahöfn: Svipað verð á skinnum og í vor Svipaö verð fékkst á skinnaupp- boöinu í Kaupmannahöfn í síðustu viku og síðastliöið vor en þá hafði verðið lækkað nokkuð frá því á upp- boðinu í mars. Alls voru seld 28 þús- und íslensk refa- og minkaskinn að þessu sinni. Það er helst að verð á silfurref hafi hækkað, eins var um dálitla hækkun að ræða á minka- skinnum. „Þetta var mjög svipað og í vor miðað við gæði. Það er besta lýsingin á þessu uppboði," segir Jón Ragnar Björnsson, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra loðdýraræktenda. Aö sögn Jóns seldust öll íslensku skinnin á markaðnum. Þar meö er búið að selja alla framleiðslu síðasta árs. Þrátt fyrir það er verð á refa- og minkaskinnum enn mjög lágt og mikið tap á framleiðslunni. Gróflega reiknað eru refabændur að fá um 1.500 til 1.600 krónur fyrir refaskinnið en þyrftu að fá um 3.000 til 3.300 krónur miðað við fram- leiðslukostnað. Að sögn Jóns vorum við íslending- ar í heild með iélegri refaskinn á þessu uppboði en á maíuppboðinu. Fyrir minkaskinn fékkst á hinn bóg- inn um 10 prósent hækkun. „Verð á skinnum af svartminks- og brúnminkshögnum hækkaði núna um 11 prósent hvort tveggja. Verð á læðuskinnum hækkaði hins vegar aðeins meira, eða um 19 pró- sent.“ Skoðum betur verð sem fékkst fyr- ir einstakar tegundir íslensku skinn- anna. Blárefur 205 krónur danskar, skuggarefur 192 krónur danskar, silfurrefur 745 krónur danskar og „blue frost“ 247 krónur danskar. Svartminkur, högni 230 krónur danskar, læða 211 krónur danskar. Brúnminkur 253 krónur danskar, högni, og læða 211 krónur danskar. -JGH Hagvirki kaupir hlut SIS í Marel: Trúum á útflutn- ing á þekkingu - segir Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) ' hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 10-12 Allir nema Ib.SP Sparireikningar 3jamán. uppsogn 12-14 Sb.Ab 6 mán. uppsogn 13-16 Ab 12mán. uppsogn 14-18 Ab 18mán. uppsogn 22 Ib Tékkareiknmgar. alm 3 7 Ab Sértékkareikninaar 5-14 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsogn 4 Allir Innlánmeðsérkjörum 11-20 Lb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7,25-8 Vb.Ab Sterlmgspund 9,75-10,50 Vb.Ab Vestur-þýsk mork 4-4,50 Vb.Sp,- Ab Danskar krónur 7.50-8.50 Vb.Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 23,5 Allir Viöskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 25-36 Bb.lb,- Vb.Sp Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir , Hlaupareikmngar(yfirdr.) 26-28 Sb Utlan verötryggð Skuldabréf 9-9,50 Bb.Sb,- Sp Utlan til framleiðslu Isl krónur 23-34 Lb SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp Bandarikjadalir 10.25-11 Úb.Sp Sterlingspund 12,75- 13,50 Ob.Sp Vestur-þýsk mork 7-7,50 Allir nema V b Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. sept. 88 39,3 Verðtr. sept. 88 9.3 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 2254 stig Byggingavisitala sept. 398 stig Byggingavísitala sept. 124,3 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði8%1. júli. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 3,285 Einingabréf 2 1.880 Einingabréf 3 2.128 Fjolþjóðabréf 1.268 Gengisbréf 1.539 Kjarabréf 3.200 Lífeyrisbréf 1.651 Markbréf 1.726 Sjóðsbréf 1 1.592 Sjóðsbréf 2 1,373 Sjóðsbréf 3 1.136 Tekjubréf 1,574 Rekstrarbréf 1,2841 HLUTABRÉF Sóluverð að lokinni jófnur m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 115 kr. Eimskip 269 kr Flugleiðir 240 kr. Hampiðjan 116 kr. Iðnaðarbankinn 168 kr. Skagstrendingur hf. 158 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr. Tollvórugeymslan hf. 100 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. Verktakafyrirtækið Hagvirki hef- ur keypt hlut Sambandsins í Marel hf. Það er um einn þriðji af hlutafé fyrirtækisins. „Við höfum trú á út- ílutningi á þekkingu,“ segir Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis, um kaupin. Jóhann segir að ef íslendingar geti ekki flutt út þekkingu á sviöi jarð- hita og fiskvinnslu þá viti hann ekki á hvaða greinar íslendingar eigi að leggja áherslu í útflutningi. Hagvirki á hluta í nokkrum fyrir- tækjum og má þar nefna frystihúsið Hvaleyrina, áður Bæjarútgerð Hafn- aríjarðar, Marel, fiskeldisstöö í Grindavík og Arnarflug. Þá á Hag- virki Vélsmiðjuna Klett í Hafnar- firði. Vélsmiðjan Klettur hefur framleitt ýmis tæki fyrir fiskvinnsluhús og stendur þar að auki í smávægilegum útflutningi. Marel leggur mesta áherslu á tölvuvogir fyrir fiskvinnsl- una og hefur umtalsverða markaðs- setningu erlendis. „Þó aö lægð sé í smíði tækja fyrir sjávarútveginn um þessar mundir hef ég enga trú á að svo verði í fram- tíðinni, þveröfugt. Markaðssetning tekur marga mánuði og ár. Hlutirnar gerast ekki á einum sólarhring eins Vilhjálmur Egilsson verður einn þriggja framsögumanna á fundi Verslunarráðs í fyrramálið. og okkur Islendingum er svo gjarnan tamt að hugsa,“ segir Jóhann G. Bergþórsson. -JGH Hagvirkis. Útlit er fyrir hörkufund Verslunar- ráðs íslands í Átthagasal Hótel Sögu í fyrramáhö. Fundurinn hefst klukk- an átta og stendur til hálftíu. Rætt veröur um horfur í atvinnulífinu. Framsögumenn verða þeir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Verslunarráös, Ólafur Davíðs- son, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda og Friðrik Páls- son, forstjóri Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna. Á meðal mála sem sérstaklega verður rætt um er verðbólguþróunin á næstunni. Næst verðbólgan niður? Verður gengið stöðugt? Blasir við atvinnuleysi? Fundurinn er öllum opinn. -JGH Morgunfundur Verslunarráðs á Hótel Sógu Svipað verð á skinnum og í vor miðað við gæði. Það er verðlinan sem uppboðið í Kaupmannahöfn gaf. Ferðaskrifstofa íslands hf. Kjartan ráðinn forstjóri Kjartan Lárusson, fyrrum forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, hefur verið ráðinn forstjóri Ferðaskrifstofu ís- lands hf. Kjartan er einn af eigendum hins nýja fyrirtækis en nokkrir af starfs- mönnum Ferðaskrifstofu ríkisins keyptu tvo þriðju hluta af hlutabréf- um Ferðaskrifstofu íslands. Að sögn Kjartans veröur um tíu prósent fækkun starfsfólks frá því sem áður var hjá Ferðaskrifstofu rík- isins þó að verkefnin verði þau sömu. „Fastir starfsmenn verða um 18 og við ætlum, þrátt fyrir fækkunina, ekkert að slaka á í þjónustu." -JGH Athyglisverð nýjung hjá Verslunarbankanum: Lægri vextir af lánum til þeirra sem eru traustir Verslunarbankinn lætur nú láns- traust ráða vöxtum. Þetta þýöir að fyrirtæki eru metin eftir trausti og greiða þau traustustu lægri vexti en hin sem standa sig verr. Kerfið er einfaldara gagnvart einstaklingum sem taka lán hjá bankanum. Þessi nýja tilhögun nær til nýrra skulda- bréfa, bæði verðtryggðra og al- mennra. „Viö munum meta fjárhagslega stöðu fyrirtækjanna út frá reikning- um þeirra. En jafnframt munum við skoða fyrirtækin huglægt; eins og hverjir eru stjórnendur þeirra, hafa þau langa reynslu í sinni grein, eru þau að keppa á erfiðum markaði, eru þau skilvís, svo ég nefni nokkur at- riöi sem við skoðum,“ segir Tryggvi Pálsson, bankastjóri Verslunarbank- ans. Að sögn Tryggva verður fyrirtækj- unum skipt í fimm ílokka eftir láns- hæfni. Þeir sem borga lægstu vext- ina, svonefnda kjörvexti, borga 8,5 prósent en síðan hækkar skalinn upp í 11,5 prósent vexti hæst. Tryggvi segir enn fremur aö kjör- vextirnir þýði að fylgjast verði betur með fyrirtækjunum en áður. „Þetta herðir allt innra eftirlit okkar með fyrirtækjunum. Jafnframt eiga þau fyrirtæki sem lenda í neðri flokkun- um kost á að vinna sig upp í efri flokka og njóta þannig góðs af að standa ævinlega í skilum og vera traustur skuldari,“ segir Tryggvi. -JGH Tryggvi Pálsson, bankastjóri Versl- unarbankans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.