Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
31
Dægradvöl
Gengið og gengið í úfnu Tröllahrauni. „Þarna er sandur og sandur og úfið hraun á milli sem er erfitt yfirferðar."
Söngurinn er ómissandi á kvöldin inni á hálendi.
ar gengið er yfir hraun. Það verða
allir að vera í sérstökum gönguskóm.
Án þeirra má segja að það sé eins
og að ganga á sokkaleistunum yfir
hraunið. Fólk getur ímyndað sér
hvað það er þægilegt."
Ágúst bendir öllum þeim sem
hyggja á helgarferöir með útivistar-
félögunum að fara ekki í gallabuxum.
„Þær eru ekki góðar í gönguferðum.
Þegar þær blotna verða þær yfirleitt
svo stifar aö þær geta þess vegna
étið upp holdið. Þess vegna vara ég
alla sem ekki eru vanir flallaferðum
við að vera í gallabuxum."
Minnisstæðasta
ferðin vorið 1969
Ágúst hefur verið viðriðinn íjalla-
ferðir í áratugi. Hann sagðir ferðim-
ar í Jökulheima mjög sérstakar. Af
þeim fjölmörgu ferðum þangað telur
hann fræga ferð áriö 1969 hvað eftir-
minnilegasta.
„Gunnar Hannesson Ijósmyndari
fór með okkur. í þessari ferð tók
hann fjölmargar myndir sem síðar
urðu þekktar. Gunnar var stórkost-
legur ljósmyndari og tók frábærar
myndir úti í náttúrunni."
Félagamir í Jöklarannsóknafélag-
inu em með tvo skála 1 Jökulheimum
og einn upp á Langjökh og Gríms-
vötnum.
Þetta er gulur víðir sem göngumenn
gengu fram á. Náttúran er f öllum
myndum og stærðum f óbyggðum.
Upp á jökul til að moka snjó
„Það er ótrúlegt ævintýri að fara
upp á jöklana. Til dæmis þegar verið
er að kanna nýsnævið, þá þarf að
grafa djúpar gryfjur ofan í jökulinn.
Ég hef komist í að grafa 7 metra djúpa
gryfju uppi á Vatnajökli. Það var
ákaflega sérstakt og spennandi.“
Þegar ekið er upp með virkjana-
svæðum Landsvirkjunar við Búrfell,
Sigöldu, Hrauneyjafoss og Þórisvatn
em þessar virKjanir eiginlega talandi
dæmi um heilnæma loftið og lands-
Dægradvöl
lagið sem útivistarmaöurinn er að
leita að uppi á hálendinu.
Það er ekki reyk-
menguninni fyrir að fara
Þama standa þær hver af annarri
og framleiða rafmagn. Hugmynd
Edisons er í fullum gangi knúin
áfram af túrbínum. Frá þessum
virKjunum sést eKKi reyKKom stíga
upp á himin. Það er eKKi menguninni
fyrir að fara.
„Ég hvet alla til að fara sem oftast
í gönguferðir og þá sérstaklega með
útivistarfélögunum sem starfrækt
em. Maður fær aldrei nóg af að skoða
óbyggðimar. Þaö er alltaf eitthvað
nýtt og nýtt sem birtist maniú í hvert
skipti sem fariö er upp á hálendiö.
Það er kærkomin og tilvahn dægra-
dvöl að fara á íjöll. Og einfaldara
getur þaö varla veriö,“ segir Ágúst
Björnsson, félagi í Jöklarannsókna-
félagi íslands.
-JGH
Þetta er sérstök mynd. Hér er veriö að
skoða ártarveg sem ekki var til 1. ágúst
síðastliðinn. Það er áin Sylgja sem renn-
ur frá Kerlingunum undir Vatnajökli sem
gróf þennan farveg á tfmabilinu frá 1.
ágúst til 7. september.
Gamlir gigar skoðaðir. Þessi gfgaröð nær
niður undir Sigöldu.
Annar tveggja skála Jöklarannsóknafélagsins i Jökulheimum. Þessir félagar notuðu góða veörið til að mála þakið
á skálanum.
i