Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. 33 Erlend myndsjá Vladimir Krjújskov er hinn nýi yfirmaður KGB. Hann er sextíu og fjög- urra ára gamall. Talið er að hann hafi ekki verið óskakostur Gorbatsjovs í starfið en líklegt er talið að hann verði Gorbatsjov mun þægari Ijár i þúfu en fyrirrennari hans, Viktor Sébrikov. Simamynd Reuter Edvard Sévardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, ræðir hér við Viktor Sébrikov, sem um helgina var rekinn sem yfirmaður KGB, á fundi æðsta ráðs Sovétríkjanna á laugardag. Vadim Medvedev, hinn nýi hug- myndafræðingur flokksins, situr aftan við Sévardnadse. Símamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov sýndi það um helgina að það er hann sem er hinn sterki maður í Sovétrikjunum. Hann stokkaði upp forystulið kommúnista- flokksins og kom mönnum handgengnum sér i flest mikilvægustu emb- ætti flokksins. Kórónan á vel heppnaða helgi var þegar hann var kjör- inn forseti landsins á laugardag. Símamynd Reuter Svip- mynd- ir frá Boris Jeltsin, fyrir miðri mynd, sem missti sæti sitt i stjórnmálaráðinu í vor fyrir að gagnrýna Gorbatsjov harðlega, leikur á als oddi í upphafi fundar æðsta ráðsins siðastliðinn laugardag. Simamynd Reuter Kreml Andrei Gromyko er dapur á svip er hann greiðir Mikhail Gorbatsjov átkvæði sitt i kosningu þingsins á nýjum forseta en Gromyko þurfti að vikja úr því embætti fyrir Gorbatsjov um helgina. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.