Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 35
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. 35 Afmæli Kristinn H. Benediktsson Kristinn H. Benediktsson, verk- sflóri hjá Hópsnesi ogfréttaritari Morgunblaösins í Grindavík, er fer- tugurídag. Kristinn lærði ljósmyndaiðn á Ljósmyndastofu Þóris, lauk þaðan prófi og fór síðan til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Hann starfaði iengi sem ljósmyndari Morgun- blaðsins og tók einnig mikið af myndum fyrir Sjávarfréttir og fleiri tímarit. Kristinn er kvæntur Gunnhildi Guðlaugsdóttur og eiga þau tvö böm, Jóel og Hildi Sigrúnu. Krist- inn á einnig dótturina Rakel. Gunn- hildur er dóttir hjónanna Guðlaugs Óskarssonar, útgerðarmanns í Grindavík, og Hildar Sigrúnar Ágústsdóttur. Gunnhildur stundar nám í Tækniskóla íslands, Land- spítalanum og Borgarspítalanum. Systur Kristins em Steinunn Mar- ía, deildarsljóri í Sparisjóði Hafnar- fjarðar og sýningarstúlka í Módel- samtökunum, stundar nám í Öld- ungadeild Flensborgarskóla og var fulltrúi íslands í Mrs. World keppn- inni á þessu ári í Ástralíu, er gift Sverri Bergmann Friðbjömssyni, deildarstjóra Pósts og síma, þau eiga eina dóttur; Svava Björk, aðalbókari hjá Plastos hf., stundar nám í Fjöl- brautaskóla Breiðholts, gift Óskari Garðari Hallgrímssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fatadeildar Ála- foss, starfar núna hjá Visa ísland, þau eiga eina dóttur. Foreldrar Kristins em Benedikt Sveinsson, ættaður frá Mjóafirði eystra, starfar hjá Brunabótafélagi íslands, og Þórdís Kristinsdóttir, starfar á bæjarskrifstofum Hafnar- flarðar og stundar nám í Öldunga- deild Flensborgarskóla. Foreldrar Benedikts vom hjónin Sveinn Benediktsson útvegsbóndi og Steinunn Þorsteinsdóttir. Þau bjuggu á Borgareyri í Mjóafirði en fluttu til Vestmannaeyja 1954. Faðir Sveins var Benedikt, Póst- og sím- stöðvarstjóri á Mjóafirði og útvegs- bóndi, en hann átti einn fyrsta vél- bátinn sem keyptur vartil landsins, Hafominn sem kom til íslands 1906. Móðir Sveins var Margrét, dóttir Hjálmars Hermannssonar, bónda og hreppsijóra á Brekku í Mjóafirði, og fyrri konu hans, Maríu, ömmu Vilhjálms, fyrmm ráðherra og bónda á Brekku. Hjálmar var sonur Hermanns í Firði af Pamfllsætt, en afi hans var Jón pamfíll, bóndi á héraði. Einn af bræðrum Hjálmars var J ón, faðir í saks þess er fyrstur byggði svokölluð frosthús á íslandi en þau vom undanfari frystihúsa. Foreldrar Þórdísar vom hjónin Kristinn J. Magnússon málara- meistari og María Albertsdóttir í Hafnarfirði. Bróöir Kristins er Guöni, málarameistari í Keflavík, faðir Eiríks, aðstoðarbankastjóra í Seðlabanka íslands. Guðni er kvæntur Hansínu, móður Ellerts Eiríkssonar, sveitarsfjóra í Garðin- um. Foreldrar Kristins voru hjónin Magnús Pálsson útvegsbóndi og Steinunn Ólafsdóttir af Víkings- Kristinn H. Benediktsson. lækjarætt í fimmta ættlið frá Brandi BjarnarsyniHalldórssonar, ætt- foður Víkingslækjarættarinnar. Þorsteinn Guðjónsson Þorsteinn Guðjónsson, Rauðalæk 14, Reykjavík, er sextugur í dag. Þorsteinn er fæddur í Rvík og varð stúdent frá MR1949. Hann var við nám í HÍ1949-1959 (með hvíldum vegna langvinnra veikinda) og varð cand. phil. 1950. Þorsteinn var kenn- ari í Gagnfræðaskóla Akraness 1959-1960 og starfaði í ígripum á pósthúsinu í Rvík og hjá SÍS1958- 1962, var enn fremur við stunda- kennslu í ýmsum skólum. Hann var við nám í háskólanum í Osló 1962- 1965 (saga og þjóðfræði) án loka- prófs og hefur unnið í heildverslun- inni Járn og gler frá 1969. Þorsteinn var einn af stofnendum Félags Ný- alssinna 1950 og vann ýmis störf í sambandi við það 1951-1980 og var formaður félagsins 1969-1972 og 1986-1988. Hann var fulltrúi í undir- búningsnefnd að stofnun Ásatrúar- félagsins 1972-1973 ogmeðstofnandi að félaginu Norrænt mannkyn 1982 og í stjóm þess stundum. Rit Þor- steins em: Líf er á öðrum stjörnum. Kenningar dr. Helga Pjeturss í ljósi nýrra staðreynda, 1974; Astrobio- logy. The Science of the Universe, 1976; Dreams are the Key to the Cosmos, 1982; Þingvellir og goða- veldið, 1985; ogfjölmargar greinar í tímaritum, blöðum og safnritum (á ýmsum málum). Hann hefur þýtt K. O. Schmidt, Guðimir á Síríusi, 1978, og verið ritsijóri tímaritsins íslensk stefna, 1951-1962; Interstell- ar Communication, tímarit á ensku, 1966-1973; Interstellar Bulletin, 1978; Málþing íslendinga I. bindi (um fyrsta heimspeking og framhald lífs- ins), 1979; Huginn og Muninn frá 1986. Hafði umsjón með endurút- gáfu á Nýalsritum dr. Helga Pjet- urss, 1955. Þorsteinn kvæntist 27. október 1959 Steingerði Þorsteinsdóttur frá Úlfsstöðum, f. 7. júní 1928, skjala- verði. Synir Þorsteins og Steingerð- ar eru Gautur, f. 24. mars 1958, verk- fræðingur í Rvík, kvæntur Mörtu Þorvaldsdóttur hjúkrunarfræðingi, Þorsteinn, f. 1. apríl 1960, jarðeðlis- fræðingur starfar við Buffalo- háskóla í Bandaríkjunum, og Eirík- ur Hamall, f. 16. september 1964, eðlisfræðingur í framhaldsnámi í Þýskalandi. Foreldrar Þorsteins voru Guðjón Eiríksson, kennari í Rvík, og kona hans Málfríður Einarsdóttur rithöf- undur. Guðjón var sonur Eiríks, b. í Austurhlíð í Biskupstungum, Jónssonar, b. á Setbergi við Hafnar- flörð, Guðmundssonar, b. í Miðdal, Eiríkssonar, bróður Vigdísar, langömmu Vigdísar Finnbogadótt- ur. Móðir Guðjóns var Kristín Guð- Þorsteinn Guðjónsson. mundsdóttir, b. á Kjamhpltum, Dið- rikssonar og konu hans, Ástríðar Eyjólfsdóttur, systur Guðmundar langafa Þorsteins Thorarensens rit- höfundar. Málfríður var dóttir Einars, b. á Munaöamesi í Stafholtstungum, Hjálmssonar, b. í Þingnesi, Jónsson- ar, b. á Hóli í Lundarreykjadal, Ein- arssonar, bróður Bjarna, afa Bjama Þorsteinssonar, prests og tónskálds á Siglufirði. Móðir Einars var Guð- ríður Jónsdóttir, b. á Deildartungu, Jónssonar, dbrm. á Deildartungu, Þorvaldssonar, ættföður Deildar- tunguættarinnar. Móðir Málfríðar var Málfríður Bjömsdóttir, systir Helgu, móður Halldórs H. Jónsson- ararkitekts. Bvynja Edda Jensen Brynja Edda Jensen, faedd Jó- hannesdóttir, Sólgarði, Árskógs- strönd, er sextug í dag. Edda fæddist og ólst upp á Akur- eyri. Faðir hennar, Jóhannes Hjaltason, skipstjóri á ísafirði, fórst með skipi sínu, Gissuri hvíta, þegar hún var á fyrsta ári. Edda ólst upp með móður sinni, Aðalheiði Friðriksdóttur frá Látr- um í Aðalvík. Þegar Edda var á fjórða ári giftist Aðalheiður Fred Jensen, dönskum manni sem lengi var vefari og verkstjóri í ullarverk- smiðjunni Gefjun á Akureyri. Ætt- leiddi hann fósturdóttur sína og fékk hún ættarnafn hans. Hálfsystkini Eddu eru fiögur: Laila, f. 1933, d. 1944; tvíburabræð- umir Níls, sem er látinn, og Friðrik sem býr í Keflavík og er kvæntur Sigríði Þórólfsdóttur; Engilbert, hljómlistarmaður, býr í Reykjavík. Edda hlaut skólagöngu sína á Ak- ureyri og útskrifaðist frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar vorið 1945. Edda hefur tekið virkan þátt í fé- lagsmálum kvenna. Hún var m.a. Lflja Guðrún Axelsdóttir var sögð eiga aönæli 2. októb- er í afmælisdálki síðunnar um helgina. Rétt er að Lilja Guðrún á afmæli 2. nóvember og biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum. formaður kvenfélagsins Hvatar í sex ár, gjaldkeri í stjóm Sambands eyfirskra kvenna í níu ár og hefur mikið unnið að orlofsmálum kvenna á Norðurlandi og verið for- maður orlofsnefndar Sambands norðlenskra kvenna síðastliðin sex ár. Edda giftist árið 1946 Sigfúsi Þor- steinssyni frá Litlu-Hámundarstöð- um. Foreldrar hans vom Þorsteinn Þorsteinsson útvegsbóndi og kona hans, Valgerður Sigfúsdóttir. Edda og Sigfús bjuggu fyrstu árin á Akureyri en 1949 keyptu þau jörð- ina Rauðavík á Árskógsströnd ásamt Adólf Gíslasyni, en eignuðust síðar alla jörðina og bjuggu þar í 31 ár. Árið 1980 brugðu þau búi og hafa síðan átt heimili á Hauganesi. Böm Sigfúsar og Eddu eru sex: Valgerður Sólrún, f. 1946, gift Sveini Gunnlaugssyni húsasmíðameist- ara, búa á Árskógssandi; Hjalti Öm, f. 1947, framkvæmdastjóri Bátalóns í Hafnarfirði, kvæntur Aðalheiði Helgadóttur; Jóhannes, f. 1951, yfir- verkstjóri Bátalóns, kvæntur Katr- Brynja Edda Jensen. ínu Sveinsdóttur; Brynjar Haukur, f. 1953, verkstjóri hjá Bíla- og véla- verkstæði Hjalta Sigfússonar hf. á Árskógsströnd, kvæntur Svanhildi Sigfúsdóttur; Aðalsteinn Svanur, f. 1960, listmálari, í sambýli með Sól- dísi Stefánsdóttur, sjúkraliða á Kristnesi; Aðalheiður Ósk, f. 1962, sjúkraliði, gift Jóni Arasyni vél- virkja, búa í Reykjavík. Bamaböm Eddu eru orðin eflefu og eitt bamabamabarn. Edda verður að heiman í dag. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frænd- garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir Einar Gunnar Þórhallsson Einar Gunnar Þórhallsson, bóndi í Vogum í Mývatnssveit, varð sjö- tugur sunnudaginn 2. október. Einar Gunnar er fæddur og uppal- inn í Vogum. Hann stundaöi nám í Laugaskóla í S-Þing. og vann eftir það að bústörfum. Einar Gunnar bjó félagsbúi í Vogum meö bræðmm sínum. Einar Gunnar söng um árabil í karlakór Mývetninga og kirkjukór Reykjahlíðarsóknar. Þá starfaði Einar Gunnar lengi í umgmennafé- laginuMývetningi. Einar Gunnar hefur alla ævi verið búsettur í Vogum, er ókvæntur og barnlaus. Systkini Einars Gunnars em Krislján, f. 20. júlí 1915, kvæntur Önnu Elinórsdóttur frá Akureyri, þau búa í Björk í Mývatnssveit og eiga fjögur böm; Ásthildur, f. 11. apríl 1926, skilin, á þrjúbörn og býr á Akureyri; Halldóra, kennari, var gift Magnúsi Ólafssyni sundkenn- ara, Halldóra er látin; Hallgrímur, bóndi, var kvæntur Önnu Skarp- Einar Gunnar Þórhallsson. héðinsdóttur frá Akureyri, áttu flög- ur böm, Hallgrímur er látinn; Ár- mann, bóndi, látinn; Ólöf, látin; Kristjana, látin. Faðir Einars Gunnars var Þór- hallur Hallgrímsson, f. 1879, d. 1941, bóndi í Vogum. Móðir Einars Gunn- ars var Þuríður Einarsdóttir hús- freyja, f. 1882, d. 1941. 95 ára Guðrún Andrésdóttir, Ystabæ 13, Reykjavík. Guðjón Valdason, Hásteinsvegi 15b, Vestmannaeyjum. Þórarinn Guðjónsson, Másseli, Hllðarhreppi. Guðmundur Auðbjömsson, Hólsvegi 2, Eskifiröi. Sigríður Jónsdóttir, Heinabergi 24, Þorlákshöfn. Rakel Jóhannesdóttir, Ásgerðarvegi 14, Húsavík. Sigríður Þ. Benediktsdóttir, Faxabraut 11, Keflavík. Sigurður Hólmgrímsson, Ystu-Vík, Grýtubakkahreppi. Guðmundur Þórðarson, Miðhrauni 2, Miöholtshreppi. 50 ára ólafia Sigurðardóttir, Háaleitisbraut 39, Reykjavík. Brynjólfur Eiriksson, Hvassaleiti 58, Reykjavík. 70 ára Sigmundur Baldvinsson, Reykjanesvegi 46, Njarðvik. Kristján Kristjánsson, Álftamýri 22, Reykjavfk. Sigurður Júlíusson, Staðarfelli, Fellsstrandarhreppi. Hannes Haraldsson, Sóleyjargötu 7, Vestmannaeyjum. Jóna Jónsdóttir, Lynghaga 18, Reykjavík. Baldvin R. Helgason, Smyrlahrauni 37, Hafiiarfirði. Erlingur S. Einarsson, Laugarnesvegi 42, Reykjavík. Þórarinn Karl Sófusson, Svöluhrauni 4, Hafitarfirði. Guðmundur Viggó Sverrisson, Tunguvegi l, Hafiiarfirði. Kristófer Valdimarsson, Holtsbúö 38, Garðabæ. Karl Heiðar Geirsson, Baldursgötu 6, Reykjavik. ManuelE.Aqona Manuel E. Arjona hamskeri, Gnoðarvogi 62 í Reykjavík, er fer- tugurídag. Manuel er fæddur og uppalinn á Herrera við Sevilla á Spáni. Hann starfaði við uppstoppun í Barcelona hjá Museo de Ciencias frá 1965 til 1972 og hjá Náttúrufræðistofnun ís- lands 1975-1988. Manuel rekur núna eigin vinnustofu að Kleppsmýrar- vegi8. Manuel er kvæntur Önnu Sóleyju Sveinsdóttur, f. 30.7.1953, fulltrúa og eiga þau dótturina Katrínu Völu, f.28.6.1976. Manuel E. Arjona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.