Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988. Fréttir Óánægðir hrefnuveiðimenn: Rangt að sölutregða sé vegna hvalveiða „Viö erum mjög óhressir með um- ræðuna um hvalveiðimálin þar sem hvalveiðimönnum er kennt um alla hluti. Ef Ola gengur að selja afurðir okkar erlendis þá er okkur kennt um. Söluaðilar eru aðeins að breiða yfir lélega sölumennsku," sögðu hrefnuveiðimennirnir Konráð Egg- ertsson frá Brjánslæk og Gunnlaug- ur Konráðsson frá Árskógsströnd við Eyjafjörð við DV. Hrefna hefur ekki veriö veidd síð- ustu þrjú ár og verður ekki veidd næsta árið. Aö sögn þeirra hrefnu- veiðimanna er varla hægt að leggja út net án þess að fá hrefnu í það og þvi óhugsandi annað en að hrefna verði veidd á ný. Miklir hagsmunír séu í veði fyrir þá aðila sem stundað hafa hrefnuveiðar og það fólk sem hefur haft atvinnu af veiðunum í landi. „Þaö verður að varast allar öfgar i þessu máli. Við ætlumst ekki til að verið sé að fórna viðskiptahagsmun- um íslendinga fyrir okkur en hins vegar er dæmið ekki svo einfalt að þurfi að fórna litlu fyrir mikið. Af- urðir okkar erlendis eru dýrar, hafa hækkað um 9'A prósent í Þýskalandi og kaupendur hafa í auknum mæli horft til annarra framleiðenda. Þess vegna er sölutregða. Sölutregðuna nota grænfriðungar síðan óspart til að túlka málin á þann veg að íslend- ingar séu að sigla í strand í hvalveið- um sínum, salan sé erfið vegna hval- veiðanna. Grænfriðungar sitja á heimspressunni og nota hvert færi, sem gefst, til að koma rangtúlkunum sínum á framfæri." Konráð Eggertsson frá Brjánslæk, t.v., og Gunnlaugur Konráðsson frá Ár- skógsströnd í Eyjafirði eru óánægðir með umræðuna um hvalamálin. DV-mynd GVA Slæmur viðskilnaður síðustu stjómar segir fjármálaráðherra: Stefhu stjórnarinnar að kenna - en ekki verkstjóm Jóns Baldvins Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra sagði við utandagskrárum- ræðu á Alþingi í gær að aðkoman að fjármálum ríkisins vær fyrst og fremst stefnu síðustu ríkisstjórnar að kenna. Tók Ólafur fram að nú sem áður bæri forsætisráðherra höfuð- ábyrgð á sinni ríkisstjórn. Til umræðunnar var stofnað að beiðni Þorsteins Pálssonar, for- manns Sjálfstæðisílokksins. Hann kvað ástæðu beiðni sinnar vera um- mæli Ólafs Ragnars í fjölmiðlum að undanförnu um aðkomuna aö ríkis- sjóði. Sagði Þorsteinn að þar færu harðar ásakanir á fyrrverandi fjár- málaráðherra, Jón Baldvin Hanni- balsson. Sagðist Þorsteinn vilja fá svör frá Ólafi Ragnari um það hvort þær upplýsingar sem fjármálaráð- herra hefði veitt um hallann á ríkis- sjóði í síðustu ríkisstjórn heíðu verið rangar. Ólafur Ragnár sagði aö það sem hefði farið úrskeiðis í ríkisfjármálum síðustu ríkisstjórnar væri fyrst og fremst að kenna stefnu stjómarinnar - ekki verkstjórn síðasta fjármála- ráðherra. Sagði Ólafur Ragnar að ástæöa þessarar utandagskrárum- ræðu væri fyrst og fremst að koma höggi á Jón Baldvin, sem væri fjar- verahdi, og reka fleyg á milli fyrrver- andi og núverandi fjármálaráðherra. -SMJ Lagafrumvarp um veröbréfasjóði og veröbréfaviöskipti: Heftir stuðning stjórnarandstöðu Jón Sigurösson viðskiptaráð- herra mælti í gær fyrir lagafrum- vaii)i um verðbréfasjóði og verð- bréfaviðskipti. Þetta var fyrsta frumvarp stjórnarinnar sem lagt var fram f neðri deild Alþingis og virðist vera þóst að það fær sam- þykki deildarinnar. Sfjórnarand- stæöingar töluöu með frumvarpinu og sagði Friðrik Sophusson að Sjálfstæðisflokkurinn styddi þetta frumvarp. Ýrasar athugsemdir komu þó viö frumvarpið en því var vísað til öárhags- og viðskipta- nefndar að lokinni fyrstu umræðu. Að sögn viðskiptaráöherra er litl- ar breytingar að sjá á frumvarpinu frá því að nefnd sú er samdi það fyrr í sumar skilaði því frá sér. Þar er þó helst bindiskylduákvæði sem fulltrúar verðbréfasjóða iiafaþegar kvartaö yfir í samtali við DV. -SMJ Hjónin Kolbrún Haraldsdóttir og Magnús í. Þorvaldsson eignuðust þríbura í gærmorgun. Fæðingin gekk vel og heilsast móður og börnum ágætlega. Bömin, sem eru stúlkur, fæddust á fæðingardeild Landspitalans milli kl átta og níu. Þær vógu 814 og 914 mörk. Tvær stúlknanna voru 45 cm á lengd en sú þriöja var 49 cm. Kolbrún og Magnús áttu fyrir eina dóttur, tæplega tveggja ára. Kolbrún á auk þess tvo syni sem eru 19 og 20 ára. -JSS/DV-mynd Brynjar Gauti Umræður um bráðabirgðalögin: Hjá hverjum er þingrofsrétturinn? Umræður um bráöabirgðalög rík- isstjómarinnar hófust í efri deild Alþingis í gær og náðist ekki að klára fyrstu umræðu og senda málið í nefnd. Það var Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra sem mælti fyrir frumvarpinu og ræddi um ástæður þess að frumvarpiö var lagt fram. Þingmaður sjálfstæðismanna, Halldór Blöndal, ræddi lengi um lög- in og varpaði meðal annars fram þeirri spurningu hjá hveijum þing- rofsrétturinn væri. í framhaldi af því spurði hann hver staða Stefáns Val- geirssonar væri - hvort þingrof væri háð samþykki hans. Þá gerði Guðrún Agnarsdóttir, þingkona Kvennalistans, að um- ræðuefni starfsaðferðir þær sem við- hafðar væru í kringum setningu bráðabirgðalaganna. Sagði hún að þær sköðuðu lýðræðiö. -SMJ Steingrímur Hermannsson: Ákvarðana í hvalamálinu ekki að vænta í vikunni „Það er ekki rétt að ég muni setja fram tillögur í hvalamálinu á ríkis- stjórnarfundi á morgun og ákvarð- ana í málinu er ekki að vænta al- veg á næstunni. Við verðum að skoða málið vandlega og ana ekki að neinu. Hvort sölutregðu erlendis fyrir fiskafurðir okkar megi rekja beint til hvalveiða okkar er ekki hægt'að svara afgerandi en við megum ekki gera lítið úr ákvörð- unum kaupenda afurða okkar ef þaö þýðir að loka þurfi verksmiðj- um fyrir noröan. Menn mega held- ur ekki gera of lítið úr þeim áhrif- um sem grænfriðungar hafa. Þeir hafa næga peninga og víða aðgang. Varðandi vísindaveiðamar þurf- um við að meta hversu mikilvæg þessi 60-70 dýr, sem veiðast á næsta ári, eru okkur. Talningin er einna mikilvægasti þáttur vísindaveið- anna og hvernig á aö framkvæma hana og fjármagna, ef við hættum að veiða, er ósvöruð spuming. Það er mikilvægt að við ljúkum rann- sóknaráætlun okkar,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra við DV í morgun. Steingrímur sagði mikilvægt að íslendingar væm búnir undir ráð- stefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins 1990. Þar veröi íslendigar að afla fylgis við þá skoðun að hvaiir séu dýr sem nýta beri eins og önnur dýr sjávar og að jafnvægi veröi að ríkja í lífríki sjávar. -hlh DV Innbrot á lögmannastofu: Gríðariegt tekjutap „Þetta er gríöarlegt tekjutap fyrir okkur. Það mætti segja mér að þaö taki þijá mánuði að vinna þetta á ný. Innbrotið viröist hafa verið mjög fagmannlega unnið. Öll verðmæti vom látin í friði og ekkert var skemmt. Ég veit ekki hvað hefur vakað fyrir þeim sem þetta gerði. Helst höllumst við að þvf aö þetta hafi verið gert til að brelða yfir eitthvert mál. Það var tekið það mikið af skjölum. En þau tengjast mörgum málum," sagði Gunnar Jóhann Birgisson. Hann er einn þeirra lögmanna, sem reka lögmannastofu að Skip- holti 50b, og varð illilega fyrir barðinu á innbrotsþjófi um helg- ina. Gunnar Jóhann sagði að sér þætti sú skýring líklegust að breiða hafi átt yflr eitthvert ákveöið mál. Eða þá aö tilgangur- inn hafi verið aö gera lögmönn- unum óleik. Gunnar Jóhann sagði aö til væm frumgögn af flestum þeim skjölum sem tekin vom. Rannsóknarlögreglan vinnur að rannsókn málsins. í morgun var ekkert komið fram sem bend- ir til hver var að verki á lög- mannastofunni aðfaranótt mánu- dags. -sme 4 prósent verðbólga Lánskjaravisitala, sem gildir fyrir nóvember, verður 0,35 pró- sent hærri en októbervísitalan. Það jaíngildir um 4,3 prósent hraða verðbólgunnar. Undan- farna tólf mánuði hefur vísitalan hins vegar hækkað um 23,4 pró- sent. Hækkun vísitölunnar undan- farna þrjá mánuði samsvarar 10,3 prósent verðbólgu en hækkun undanfarinna sex mánaða jafn- gildir um 26,5 prósent veröbólgu. Hækkun vísitölunar í nóvemb- er hækkar verðtryggð lán lands- manna um 200 milljónir. Há- markslán Húsnæðisstofnunar, um 3,2 milljónir, hækkar í þess- um mánuði um 11 þúsund krón- ur. -gse BSRB-þingið: Umræðumar heQastídag Eftir nefndastörf í allan gærdag heflast umræður á þingi Banda- lags starfsmanna ríkis óg bæja í dag. Þær halda síðan áfram á morgun en um hádegisbil á fóstu- dag hefjast síðan kosningar form- anns, varaformanna og stjórnar. Samkvæmt heimildum DV er nú talið aö þau Guðrún Ámadótt- ir og Ogmundur Jónasson fái flest atkvæði í fyrstu umferö form- annskjörsins og þvl verði kosið á milli þeirra tveggja í síðari um- ferðinm. Kosningabaráttan er mjög hörö og rekin fyrir opnum tjöldum á þinginu, enda ekkert að fela fyrir þá sem hafa góðan málstað að veija eins og einn þingfulltrúi orðaði það í samtali viö DV. Aðalmálin í umræðunum í dag og á morgun verða lagabreyting- ar, starfskjör og skattamál og er búist víö fjörugum umræðum. -S.dór Óðinn dró Öshju Strandflutningaskipiö Askja var dregið af varöskipinu Óðni til Reykjavíkur í gær. Vélarbilun varð í Öskju í gærmorgun en þá var skipiö statt undan Látra- bjargi. Varðskipið Óðinn, sem var statt skammt frá, tók Öskju í tog. Skipin komu til Reyhjavík- ur í gærkvöld. Ferð þeirra gekk vel og áfallalaust. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.