Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 14
14 Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Palladómar Jóns Baldvins Um síðustu helgi mátti lesa í Alþýðublaðinu hispurs- lausar lýsingar Jóns Baldvins Hannibalssonar á sam- ráðherrum sínum í fyrri ríkisstjórn. Þetta voru nokkurs konar palladómar, þar sem Jón Baldvin gefur ráðherr- unum pólitískar og persónulegar einkunnir og gerir jafnframt úttekt á samskiptunum í þeirri stjórn. Þessi hreinskiptni formanns Alþýðuflokksins mæhst misjafn- lega fyrir, sérstaklega hjá þeim sem verða fyrir barðinu á henni. Þorsteinn Pálsson túlkar hana sem róg og níð og aðrir hafa orðið til að taka undir þau sjónarmið. Sagt er að með þessum ummælum Jóns Baldvins og öðrum skotum milli hans og fyrrverandi samstarfs- manna hafi pólitíkin færst á lægra plan, persónulegt skítkast hafi ekki verið eins áberandi í háa herrans tíð. Nú má auðvitað um það deila hvort hér sé á ferðinni hreinskilni eða hvatvísi nema hvorutveggja sé og Jón Baldvin verður ekki meiri maður að því að kveða upp sleggjudóma um samferðamenn sína í stjórnmálum ef um er að ræða níð og róg. En er það svo? Hvar eru mörkin milli stjórnmálalegs ágreinings og persónulegr- ar rætni? Og hvað eru menn að gera í stjórnmála- vafstri, nema segja það alla daga að þeir séu betur fahn- ir til trúnaðarstarfa heldur en hinir? í þeim efnum eiga allir sök ef um sök er að ræða og í þeim deilum, sem fram hafa farið um viðskilnað síðustu stjórnar, má enn einu sinni segja að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Hér verður ekki farið nánar út í móraliseringu á orð- um og athöfnum stjórnmálamanna, þótt því beri að sjálf- sögðu að fagna ef stjórnmálamenn eru orðnir svo vand- ir að virðingu sinni að ekki megi tala illa um þá. Batn- andi mönnum er best að lifa. Meinfýsnar athugasemdir Jóns Baldvins um sjálf- stæðisráðherrana gera þá hvorki betri né verri en þeir eru. Þorsteinn Pálsson verður ekki minni maður við það þótt Jón Baldvin vilji gera lítið úr honum. Sjálfstæð- ismenn láta áreiðanlega ekki annarra flokka menn velja sér foringja. En það sem eftir stendur af ummælum Jóns Baldvins í áðurnefndu viðtah Alþýðublaðsins er dómur hans um Sjálfstæðisflokkinn. Hann getur varla flokkast undir róg eða níð. Dómurinn er pólitísk um- sögn um samskipti Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokksins og hlýtur að vera sjálfstæðismönnum um- hugsunarefni, ekki síst í ljósi þess að þessir tveir flokk- ar hafa lengstum verið taldir líklegastir til að taka sam- an höndum um borgaralega, frjálslynda ríkisstjórn. Jón Baldvin afskrifar í raunini Sjálfstæðisflokkinn sem samstarfsflokk við núverandi aðstæður. Segir flokkinn tvístraðan, staðnaðan kerfisflokk og án nokk- urs málefnalegs frumkvæðis. Sjálfstæðisflokkurinn hafi reynst haldlítill bandamaður þegar á hólminn var kom- ið. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki trúverðugur, segir Jón Baldvin. „Hann þykist vera gegn ríkisforsjá. Hann þyk- ist skilja og vilja markaðslausnir í stað mismununar. En hann stendur ekki við neitt af þessu.“ Látum vera með meinfýsnina í garð forystumann- anna. En Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að hlusta á það þegar formaður Alþýðuflokksins lýsir algjöru frati á flokkinn sjáhan. Skyldi ekki eitthvað vera til í þessari lýsingu Jóns? Það skyldi þó aldrei vera að fylgishrun og valdamissir eigi sér einmitt skýringu í innanmeinum af því tagi sem Jón Baldvin lýsir? Viðreisn Sjálfstæðisflokksins er undir því komin að hann skoði sjálfan sig. Ehert B. Schram MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBKR 1988. Til samjöfnunar um mikilvægi verður að lita á stofnun Háskóla Isíands og stofnun Þjóðleikhússins, svo dæmi séu tekin, segir m.a. í greininni. Listaháskóli íslands Fimmtudaginn 6. október sl. hélt hv. menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, blaðamannafund þar sem hann tilkynnti m.a. skipun nefndar þriggja fyrrverandi menntamálaráöherra er vinna skuli að stofnun Listaháskóla ís- lands. Ég fagna þessari ákvörðun menntamálaráðherra, enda tel ég að hér sé á ferðinni eitt mikilvæg- asta menningarmál sem fram hefur komið um árabil. Til samjöfnunar um mikilvægi þess verður að líta á stofnun Háskóla íslands á sínum tíma, stofnun Þjóðleikhússins, eða Ríkisútvarpsins, svo dæmi séu tek- in. Það er lengi búið að ræða um að stofna til háskólanáms í hstum á íslandi. Sú umræða hefur fyrst og fremst snúist um að breyta stöðu þriggja skóla innan menntakerfis- ins, Tónlistarskólans í Reykjavík, Leiklistarskóla íslands og Mynd- hsta- og handíðaskóla íslands. Viö það að breyta áherslum þannig að stefnt verði að stofnun sameiginlegs Listaháskóla íslands verður ljósara hvað málið er stórt í sniðum og mikilvægt fyrir menn- ingu þjóðarinnar, bæði inn á við og út á við. Einnig myndu skapast við þetta ýmsir möguleikar til sam- vinnu hstaskóla og hægt er að hta th æðri listmenntunar á íslandi í framtíðinni í miklu víðara sam- hengi en gert hefur verið til þessa. En þótt margir taki þessari stefnuyfirlýsingu menntamálaráð- herra með sama fógnuði og bjart- sýni og ég, þá er því ekki að neita að viðbrögðin við fréttinni hafa verið blendin. Fjölmiðlar sögðu til dæmis frá þessu eins og hálfgerðri neðanmálsfrétt við aðrar sem meira póhtískt blóðbragð var að. Sumir hstamenn, sem ég hef rætt við, virðast telja að hér sé verið að veifa enn einni merkingarlausri skrautfjöðrinni og meðal kennara í listaskólum verður vart ótta um að þetta verði til að tefja enn einu sinni lagasetningu um háskólanám í listum. Þetta mál er alltóf stórt til að það geti verið pólitísk skrautfjöður ein- hvers eins ráðherra, eða eins flokks. Það á sér líka miklu-lengri aðdraganda en svo að hægt sé að tala um það sem nýjung, eða skyndilegan innblástur. I fjöldamörg ár hefur verið barist fyrir því meö oddi og egg að stofnaö verði til háskólanáms í hstum á íslandi, bæði til að staöfesta þá þró- un sem þegar er orðin og eins til að gera hstaskólunum kleift að efl- ast það sem á vantar svo þeir verði að fullu jafnokar erlendra hstahá- skóla. Það segir sig sjálft að margir menntamálaráðherrar hafa verið viðriðnir þróun þeirrar stefnu að Kjállaiinn Bjarni Daníelsson skólastjóri M.H.Í. færa listnám á háskólastig. Almennur skilningur á þessu máli hefur hka aukist jafnt og þétt á síðustu árum, sfjórnmálaflokkar hafa tekið þetta upp sem stefnumál og loks var ákvæði um þetta í stjórnarsáttmála fráfarandi ríkis- stjórnar. Þetta er því hvorki einka- mál flokka né ráðherra þeirra. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið kappsamlega aö samningu frumvarpa fyrir Tónhstarháskóla íslands, Leiklistarháskóla íslands og Myndlistarháskóla íslands og eru þessi frumvörp nú öh tilbúin í menntamálaráöuneytinu. Menn hafa séð hilla undir lagasetningu á næsta þingi, enda flestum orðið ljóst að frekari bið er aðeins th óþurftar. Hugmyndin um Listaháskóla ís- lands er ekki ný af nálinni. Rykið var dustað af henni fyrir hálfu ööru ári þegar skólastjórar áðurnefndra hstaskóla skrifuðu þv. mennta- málaráðherra, Sverri Hermanns- syni, bréf og óskuðu eftir því að hafnar yrðu viðræður um samein- ingu skólanna, þó sem sjálfstæöra stofnana, undir sameiginlegum hatti Listaháskóla íslands. Sverri entist ekki ráðherradómur til að bregðast við þessu, en eftirmaður hans, Birgir Isleifur Gunnarsson, taldi að undirbúningur lagasetn- ingar fyrir hvem hinna þriggja skóla fyrir sig væri kominn á svo þungan skrið að ekki væri ráðlegt að tefja málið með sameiningar- hugmyndinni að svo stöddu. Nú hafa orðið stjómarskipti og á þannig tímamótum má segja að öll svona mál verði aftur ný. Eins og áður segir fagna ég þeirri ákvörðun menntamálaráðherra að vinna að stofnun Listaháskóla íslands. Um leið vona ég að htil töf verði á fram- gangi háskólalaga fyrir listnám þrátt fyrir stefnubreytinguna og að sú vinna, sem þegar er unnin, megi nýtast til fulls. Þótt straumarnir hafi til þessa runnið í þremur kvíslum um þá skóla sem nefndir hafa verið þá hafa þeir alhr stefnt að sama ósi. Takist núverandi menntamálaráð- herra, Svavari Gestssyni, að beina þessum straumum í einn farveg og stofna Listaháskóla íslands þá er það verk vel unnið og þjóðinni allri th mikillar sæmdar. Bjarni Daníelsson „Um leið vona ég að lítil töf verði á framgangi háskólalaga fyrir listnám þrátt fyrir stefnubreytinguna og að sú vinna, sem þegar er unnin, megi nýtast til fulls.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.