Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988. LífsstíU 13 V Af aðalfundi Neytendasamtakanna Meiri samskipti nauðsynleg Á aöalfundi Neytendasamtakanna kvörtuðu fulltrúar félaga á landsbyggðinni undan sambandsleysi við stjórn samtakanna. Myndin er tekin á fundinum á Hótel Sögu. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, í ræðustól. DV-mynd Brynjar Gauti „Lífsvon neytendafélaganna úti á landi er fólgin í meira og nánara samstarfi," sagöi Sigfríöur Þor- steinsdóttir, formaður Neytendafé- lags Akureyrar, á aöalfundi Neyt- endasamtakanna sem haldinn var á Hótel Sögu á íostudag og laugar- dag. Neytendur Talsverðar umræður uröu um leiöir til þess aö efla starfsemi neyt- endafélaganna, sérstaklega á landsbyggöinni. Neytendasamtökin gagnrýnd fyrir of lítið samband við félögin á landsbyggðinni Þaö sem einkum háir starfsemi neytendafélaga í dreifbýlinu er fé- lagafæð og sú staðreynd aö allt starfið er unnið í sjálfboöavinnu. Neytendafélag Reykjavikur, sem rekur skrifstofu ásamt Neytenda- samtökunum, var gagnrýnt fyrir litil samskipti viö félögin úti á landi. Stjórn Neytendasamtakanna sendir ekki afrit af fundargeröum til félaganna úti á landi og töldu flestir sem til máls tóku að almennt mættu tengslin milli Reykjavíkur og dreifbýlisins vera mun meiri. Meira samstarf nauðsynlegt „Félögin þurfa að vera dugleg aö kynna starfsemi sína,“ sagði Odd- rún Sigurðardóttir, formaður Neytendafélags Fljótsdalshéraðs. „Viö þurfum aö starfa meira saman i hverjum fjórðungi og færa út kvíarnar. Það er fleira neytenda- mál en verðkannanir.“ Margir nefndu nauðsyn þess að neytendafélögin gætu haft starfs- kraft á launum. I því sambandi er mikið horft til samstarfs við verka- lýðsfélög, líkt og verið hefur á Ak- ureyri. Fyrir lítið neytendafélag úti á landi gæti starfsmaður á launum 2-3 tíma tvisvar til þrisvar í viku skipt sköpum. Einnig var bent á nauðsyn þess að formenn stærri félaga sætu ávallt á stjórnarfundum Neytenda- samtakanna. Jóhannes Gunnarsson svaraöi þessum athugasemdum og taldi aukið samstarf vera til góðs. Hann benti á að framlag hins opinbera til neytendamála hefði aukist á undaniornum árum og gætti meiri skilnings hjá stjórn- völdum en oft áður. Hann sagði að stefnt væri að því aö fjölga starfs- kröftum á skrifstofunni í Reykjavík og að ráða erindreka sem annaðist einkum kynningu og fræðslustarf á vegum Neytendasamtakanna. Hann sagði betri fjárhag Neyt- endablaðsins og aukin framlög frá hinu opinbera gefa vonir um aukna og öflugri starfsemi á næstunni. -Pá Stöðugt fleiri laga- ákvðeði hliðholl neytendum - frumvarp um greiðslukortaviðskipti væntanlegt Jóhannes Gunnarsson var end- urkjörinn formaður Neytenda- samtakanna. DV-mynd Ný stjóm Neytenda- sam- takanna Jóhannes Gunnarsson var end- urkjörinn formaður Neytenda- samtakanna á aðalfundi samtak- anna á Hótel Sögu um helgina. Varaformaöur er María Ingva- dóttir og gjaldkeri Einar Öm Thorlacius. Ritari er Anna Hlín Bjarnadóttir. Aðrir í stjóm era: Bryndís Steinþórsdóttir, Reykjavík, Jón Magnússon, Reykjavik, Jónas Bjarnason, Reykjavík, Kristján Valdimarsson, Reykjavík, Odd- rún Siguröardóttir, Egilsstööum, Sigurður Ingibjömsson, Vest- mannaeyjum, Steinar Harðar- son, Álftanesi og Vilhjálmur Ingi Sigurösson, Akureyri. -Pá Frumvarp til laga um verslunarat- vinnu var lagt fyrir Alþingi 1986 en ekki afgreitt. Frumvarp um verslun- aratvinnu var fyrst lagt fyrir þingið fyrir 11 árum. Til mikilla hagsbóta ef lögin fengjust samþykkt í lögum þessum eru ákvæði um afborgunarviðskipti og er ísland eina landið í Vestur-Evrópu þar sem eng- in lög gilda um slík viðskipti. Merk- asta ákvæði þessara laga frá sjónar- hóli neytenda er afnám eignarrétt- arákvæðis í afborgunarsamningum. Fellur þá niður réttur seljanda til þess að leysa hið selda til sín ef um vanskil er að ræða. í lögunum er kveðið á um lágmarksútborgun. Einnig er ákvæöi þess efnis að gangi shk viðskipti til baka fær kaupandi greiddar afborganir taldar til tekna. Víxlanotkun í afborgunarviðskipt- um veröur ekki leyfð og er það sam- bærilegt við ákvæði í lögum í ná- grannalöndum okkar. Steinar Haröarson flutti á aðal- fundi Neytendasamtakanna erindi um lagaákvæði sem annaöhvort eru í smíðum eða þegar hafa verið lögð fyrir Alþingi og eru til hagsbóta fyrir neytendur. Hann taldi til mikilla hagsbóta fyrir neytendur ef umrætt frumvarp um verslunaratvinnu yröi samþykkt. Væntanleg lög um aug- lýsingar og greiðslukort I erindi Steinars kom fram að nefnd vinnur að undirbúningi framvarps um auglýsingar. Markmið laganna yröi að „vemda börn og unglinga fyrir innrætandi áhrifum auglýs- inga“. Þá hefur viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, lýst því yfir að nauðsyn- legt sé að koma á lögum um greiðslu- kortaviðskipti. Engin lög eru í gildi um shk viðskipti og hafa Neytenda- samtökin mjög hvatt th þess að þeim yrði komið á. Það er álit samtakanna að slík lög ættu að kveða á um að notendur kortanna beri af þeim allan kostnað. Lög um eignarleigustarfsemi og um starfsemi verðbréfamarkaöa voru einnig meðal þess sem Steinar nefndi í erindi sínu um lagaákvæði hagstæð neytendum. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, taldi vaxandi fjölda lagaákvæða, sem gættu hagsmuna neytenda, sýnilegan ávöxt af starfi Neytendasamtakanna. -Pá Viðskiptaráðherra hefur boðað frumvarp til laga um greiðslukortaviðskipti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.