Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1988. Fréttir Grásleppuhrognaft-amleiöslan: Allar forsendur fyrir Handknattleikshöll: Eðlilegt að byggja húsið ef fólk vill greiða skatta til þess verðhækkun næsta ar - en hvalveiðar okkar geta þó sett strik í reikninginn Útkoman hjá grásleppukörlum i ár er með þvi lakasta sem verið hefur. Heildarmagn grásleppu- hrogna i ár er aðeins um 10 þúsund tunnur á móti um 20 þúsund tunn- um áriö áöur, auk þess sem veröiö í ár lækkaði miðaö viö árið á und- an, Nú eru aftur á móti allar for- sendur fyrir því aö verö á grá- sleppuhrognum hækki verulega á næsta ári. Ástæðan er sú aö hrognaframleiðslan í heiminum i ár er aðeins 60 prósent af því sem var árið á undan og því kemur til með að vanta hrogn, gagnstætt því sera var í ár eftir metveiði í fyrra. „Við erum þó kviönir því ljóst er að hvalveiðar okkar munu skaða grásleppuhrognaraarkað okkar. Þýska fyrirtækið Tengelmann, sem hefúr lýst því yfir að það muni ekki kaupa íslenskar iiskafurðir vegna hvalveiðimálsins, er stærsti kaupandi niðurlagðra hrogna frá Sölustofnun lagmetis,“ sagöi Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda. Á vegum Sölustofnunar lagmetis var lagt niður úr 5.200 tunnum af grásleppuhrognum í ár eða um helmingi aRrar hrognaframleiösl- unnar i landinu. Örn sagöi að venjulega færi um helmingur framleiöslunnar í niðurlagningu hjá innlendum aðilum. Þessi fram- leiösla væri nú í hættu ef ekkert yrði að gert í hvalveiðimálinu. í janúar á næsta ári er fyrir- hugaður fundur íslenskra og kana- dískra hrognaframleiðenda en þessir aöilar eru með um 80 pró- sent af heirasmarkaðinum. Til stendur aö reyna að ná samkomu- lagi um verðlagningu. Eru bundn- ar vonir viö að það takist en Kanadamenn hafa verið sakaöir um undirboö á raarkaöinum. I ár framleiddu Kanadamenn um 20 þúsund tunnur af grásleppuhrogn- um sem er svipað magn og íslend- ingar framleiddu áriö 1987. Norð- menn framleiddu i ár 6.700 tunnur, Danir 1.800 tunnur og Grænlend- ingar 500 tunnur. -S.dór - segir menntamálaráöherra „Fráfarandi ríkisstjórn gaf ákveðið fyrirheit um byggingu handknatt- leikshallar sem handknattleiksmenn treysta á. Ef þjóðin óskar eftir að byggja handknattleikshöll fyrir þennan atburð og er tilbúin að greiða skatta til þess þá er eðlilegt að byggja þetta hús,“ sagði Svavar Gestsson menntamálaráherra þegar hann var spurður um afstöðu hans til loforða fyrri ríkisstjórnar um byggingu handknattleikshallar vegna heims- meistarakeppninnar 1995. Sem kunnugt er hefur verið ákveðið að keppnin fari fram hér á landi. Svavar sagðist nú reyndar ekkert hafa tekið á þessu máli en ijóst væri þó að enn væru á annan tug íþrótta- húsa á landinu hálfkláruð. Það væri staöreynd sem menn yrðu að hafa í huga. -SMJ SjálíVirki sleppibúnaöuriiin: Uppfyllir ekki þær vonir sem við hann voru bundnar - segir Magnus Johannesson siglingamálastjóri í samtali við Sjómanriablaðið Vík- ing, sem út kom fyrir nokkrum dög- um, segir Magnús Jóhannesson sigl- ingamálastjóri að hinn sjálfvirki sleppibúnaður gúmbjörgunarbáta um borð í fiskiskipum hafi ekki upp- fyllt þær vonir sem við hann voru bundnar. Hér er átt við Olsengálgann og Sigmundsbúnaðinn. Segir Magn- ús aö það sé sitt álit að vegna þrýst- ings hafi búnaðurinn verið lögleidd- ur áður en hann hafi verið nægilega prófaöur. Undanfarið hefur Iðntæknistofnun unnið að því að finna aðferð til að prófa þennan búnað fullkomlega. Er þar um aö ræða verkefni sem styrkt er af Nordtest. í næstu viku er vænt- anleg skýrsla um máhö frá Iðntækni- stofnun. Hans Guðmundsson eðhs- fræðingur hefur verið verkefnastjóri þessa verks. Hann sagðist ekkert vilja um málið segja fyrr en skýrslan væri komin út. Samkvæmt heimildum DV hafa al- varlegir vankantar á búnaðinum komið í ljós við þessa leit Iðntækni- stofnunarmanna að aðferð til að prófa búnaðinn. Það er álit manna, sem til þekkja og DV hefur rætt við, að við þessa prófun hafi ýmislegt komið fram sem menn áttu alls ekki von á. -S.dór Skuttogarinn Páll Pálsson frá Hnífsdal við bryggju á ísafirði eftir gagngerar breytingar i skipasmíðastöð i Pól- landi undanfarna mánuði. Togarinn var lengdur um 8,8 metra. Skipt var um brú og ný aöalvél sett í skipið og má segja að Hnifsdælingar hafi eignast nýtt skip. Skipið reyndist mjög vel á heimleiðinni eftir breytingarnar, að sögn skipstjórans, Guðjóns Kristjánssonar, formanns Farmanna- og fiskimannasambands íslands. DV-mynd BB, ísafirði í dag mælir Ðagfari Olympíuleikar fatlaðra Ólympíuleikamir í síðasta mánuöi eru mönnum enn í fersku minni þó ekki væri fyrir annað en fræga frammistöðu íslensku þátttakend- anna sem ýmist misstu meðvitund í kasthringnum eða voru nær drukknaðir í siglingunum. Hand- boltamennimir náðu að visu átt- unda sætinu með því aö vinna eng- an leik sem skipti máli og júdó- mennirnir voru svo fljótir að tapa sínum glímum aö þeir fengu upp- reisnarglímur sem þeir töpuðu líka. Þessi árangur varö til þess aö íslensku fararstjórarnir ætla aö taka þaö til endurskoöunar hvort ástæða sé til að senda keppnisfólk með fararstjóminni á næstu leika enda sannaöist það sem Dagfari var búinn að segja að eini sigurinn, sem íslendingar unnu, var þegar Matt- hías samgönguráöherra náöi þeim árangri aö tryggja íslandi heims- meistarakeppnina í handbolta. Þetta var að vísu nokkuð dýr sig- ur þvi nú þurfa næstu ríkisstjómir aö safna fyrir nýrri handboltahöll upp á einn milljarð og veshngs Matthías missti ráöherrastólinn meðan hann barðist fyrir fóður- landið á handboltaþinginu í Seoul. En hvað gera menn ekki fyrir fóst- uijörðina og hvaö er einn ráð- herrastóll á móti heilli handbolta- höll? Þetta var nú um ólympíuleika íþróttamannanna og frammistööu okkar á þeim leikum. í rauninni er ekkert að marka þessa leika og öll úrslitin á leikunum vegna þess að það kom í ljós að þeir sem voru fljótastir og sterkastir vom allir reknir heim fyrir eiturlyfjanotkun og það var vegna þess að enginn getur orðið fremstur eða fræknast- ur nema hann belgi sig út af ör- vandi lyfjum. Heilbrigðið og hreystin mælast í hlandinu á íþróttamönnunum en ekki á klukk- um eða mæliböndum. Og íslenskir íþróttamenn fá víst ekki að taka svona lyf og eru þess vegna úr leik áður en keppnin hefst. En nú eru hafnir nýir ólympíu- leikar, leikar fatlaöra, og þar eru engin lyf í umferð og allir með meðvitund sem keppa. Og árangur- inn lætur ekki á sér standa. Viö emm nú þegar búnir aö vinna gull, silfur og brons og eigum von á meiru. Þetta er frábær frammi- staða og gefur tilefiii til að draga þá ályktun að íslendingar hætti algjörlega þátttöku i leikum hinna heilbrigöu og einbeiti sér að ólymp- íuleikum fatlaðra. Hér er nóg af fótluöu fólki og í rauninni hefði kringlukastarinn, sem missti með- vitund í kasthringnum af því hann vissi ekki hvar hann var, átt betur heima á ólympíuleikum fatlaöra. Spumingin er jafnvel hvort liöiö, sem var á alvöruleikunum í Seoul í síðasta mánuði, hafi ekki hrein- lega tekið feil á leikum. Nei, íslendingar eiga ekki aö vera þvælast á leika sem ekki em fyrir þá, nema þá fararstjómir og ráö- herrar sem hafa meiri áhuga á handbolta en pólitík. íslendingar eiga að einbeita sér aö leikum fatl- aöra því þar koma gullin og silfrin á færibandi og þarf enga ráðherra til. Svo þarf að vinna að því aö stofna til leika fyrir andlega fatlaða en þar yrðum við áreiöanlega sig- urvegarar í hverri grein. Við eigum nóg af andlega fótluöu fólki sem heldur að það sé heilbrigt af því að það situr á Alþingi eða ráðstefnum hjá BSRB og tekur sig alvarlega. Keppnin þyrfti að fara þannig fram að sá ber sigur úr býtum sem getur bullað mest. Miðaö við lýsingar Jóns Baldvins á ráðherrum fyrr og nú eigum við marga kandídata á slíka leika. Það er ótrúlegt úrval af fólki sem gæti tekið þátt í ólympíuleikum andlega fatlaðra og nú má enginn halda að Dagfari sé að gera grín að fótluðum því andlega fatlaðir eru 'oftast þeir sem taldir eru mestu gáfnaljósin og njóta mestu manna- forráðanna. Það hefur sannast á leikum fatlaðra í Seoul þessa dag- ana aö þegar fótlun er annars vegar stendur okkur enginn á sporði. Iþróttahreyfingin ætti að athuga þetta, svo og önnur áhugamannafé- lög eins og Vernd og G-samtökin sem hafa líknar- og mannúðarmál á sinni dagskrá. Spuming er hvort ekki sé hægt að setja einhvern ráð- herra í að fá slíka leika hingað heim. Það væri miklu ódýrara því keppnishópurinn verður nefnilega svo stór og fjölmennur að hann kostar meira en ný handboltahöll. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.