Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988. Spumingin Hvað ferðu oft í bíó og hvaða mynd sástu síðast? Axel Guðmundsson verslunarmaður: Svona 5 sinnum í viku. Sá seinast „The Great Outdoors". Fjóla Ásgeirsdóttir verslunarmaður: Um það bil tvisvar í viku. Sá síðast „Coming to America". Hinrik Sigurðsson sölumaður: Tvd- svar í viku hér um bil. Sá síðast „Frantic". Sigursteinn Gunnarsson verkamað- ur: Einu sinni í viku. Sá síðast „Com- ing to America". Björn Sveinbjörnsson verkamaður: Einu sinni í viku og tæplega þó. Sá síðast „Coming to America". Jónína Berg myndlistarnemi: Mjög sjaldan. Svona einu sinni í mánuði. Eg man ekkert hvað hún hét sem ég sá síðast. Lesendur Kjallaragreinar DV: lifleg þjóðmálaumræða Kristinn Einarsson skrifar: Þær eru oft íjörugar, þjóömá- laumræðumar hér á landi. Eitt vinsælasta sport íslendinga hefur löngum verið að skeggræða um þjóðmálin. í dag líður tíminn fljótt og hraðinn er mikill. Þess vegna verða menn aö velja og hafna þegar fjölmiðlar eru annars vegar. Fáir hafa tíma til að lesa allt eða hlusta og horfa á allt sem fram er boðið. En hvað sem segja má um allt það efni, sem á boðstólum er, stendur þjóðmálaumræðan upp úr sem helsta áhugaefnið. Það er því gaman að fylgjast með hvaða fjölmiðlar bjóða upp á líf- legustu og fjölbreyttustu þjóðmála- umræðuna. Tvö dagblaðanna eru þar langstærst, Dagblaðið Vísir og Morgunblaðið. Ég tek þó DV fram yfir vegna þess að þar er ákveðinn og fastur vettvangur (og á vissum stað í blaðinu) þar sem maður getur treyst að alltaf sé einhver umræða í gangi, þ.e. kjallaragreinarnar. Ég fullyrði að þessi vettvangur, ásamt lesendabréfum sem fólk sendir inn og birtast í blaðinu, er einn helsti vettvangur þjóðmá- laumræöunnar og endurspeglar vel margvísleg viðhorf fólks. Sjón- varpsstöðvamar, þótt tvær séu, sjá manni ekki nærri eins vel fyrir svona efni. Kastljósþættir og aðrir umræöuþættir, sem voru áhuga- verðir, eru nærri horfnir úr dag- skrá stöðvanna. Þeir geta þó aldrei komið í stað blaðagreina og les- endabréfa sem birtast á hverjum degi. Margir mjög snjallir og áhuga- verðir dálkahöfundar hafa skrifað afjoni w "J S nrNvia lánskjaravísital- Sanbetriensúgamla. | Kjaflarúm Hverju homur kvennalistako Höfundar kjallaragreina DV eru breiður hópur sem kastar Ijósi á þjóðmálaumræðuna, segir bréfritari m.a. að staðaldri og þeir ásamt hinum sem sjaldnar skrifa kasta ljósi á það sem þeim er efst í huga og venju- lega er það eitthvað sem lesendur eru tilbúnir að taka þátt í aö ræða eða það fellur inn í þjóðmálaum- ræðuna hverju sinni. Ég ætla ekki að flokka þessa greinarhöfunda eftir efni og gæð- um og hef heldur ekki efni á því. Þama er þó um breiðan og mislitan hóp aö ræða. Þeir sem ég man eftir í svip eru þó allir því marki brennd- ir að hafa áhuga á þeim málum sem þeir skrifa um og það nægir lesend- um oftast, jafnvel þótt þeir séu ekki sammála greinarhöfundum. Pólit- ísk viðhorf viðkomandi eða stétt og staða gerir ekki útslagið í því efni. - Áfram með þjóðmálaum- ræðuna. KSKÍSSjj!! MMf AriitrrriTrr-r" Lúxushótel i Marokkó. - Aðalatriðið er að hafa aðgang að góðum hótelum og ströndum, segir hér. Marokkótogaramir: Greiddir með sólarferðum Jakob hringdi: Til þess nú að missa ekki alveg af viðskiptunum við þá í Marokkó vil ég gera að tillögu minni að þessi við- skipti verði endurskoöuð hið snar- asta. Það á aldrei að henda frá sér tilboðum, síst af öllu ef það eru at- vinnutilboö. Það er hægt að nýta öll tilboð, hveiju nafni sem nefnast, bara ef vilji og viðskiptavit er fyrir hendi. En það er því miöur skortur á hvoru tveggja hjá okkur. í Marokkó er mikið um sól allan ársins hring og sól er eitt af því sem við íslendingar sækjumst nyög eftir. Nú eru t.d. hundruð íslenskra borg- ara staddir á Spáni og víðar og ætla að hafa þar vetursetu. Einhvers stað- ar las ég um að ein ferðaskrifstofan hér greiddi uppihald viðskiptavina sinna á Spáni með íslenskum salt- fiski. Og hvað er athugavert við það? Auðvitað ekkert. Ég legg því til aö svipað veröi fariö aö í umræddum viðskiptum við Mar- okkómenn, að við gerum við þá samninga um smíöi á togurum gegn sólarferðum til þeirra sólríka lands, svo sem næstu 5 eða 6 árin, þ.e. fríum aðgangi að nokkrum góðum hótelum og sólarströndum. Ferðirnar greidd- um við sjálfir. Þetta ætti aö geta smollið saman. Með þessu móti gæti ríkiö komiö inn í myndina, bæði vegna þess að það væri þá að gera samninga sem allir landsmenn væru samþykkir og svo vegna þess að þama er ekki um neina áhættu að ræða því landinn hættir aldrei að sækja í sólarlandaferðir. Skipasmíðastöðvarnar hafa hér ekki annað hlutverk en að smíða togar- ana. Ríkið hefði greitt launin í öllum tilfellum hvort eð er. Aðalatriðiö er að hafa aðgang að góðum hótelum og ströndum þar sem hægt er að sóla sig og skilja áhyggjurnar eftir á norö- urslóðum. Fyrsta flokks þjónusta Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið. Reykvísk kona skrifar: Fyrir u.þ.b. einu ári keypti ég rit- vél í verslun einni í Reykjavík. Þegar fariö var að nota vélina reyndist hún biluð. Ég sneri mér til seljanda og fór fram á að fá aöra vél en því var neit- að með öllu og var gert við hana. Skömmu seinna bilaði vélin á sama hátt. Aftur fór hún í viðgerö og í þetta sinn hafði ég samband við umboðs- aðila, sem í þessu tilfelli er Magnús Kjaran, heildverslun. Þar var véhn lagfærð í annað sinn en mér var jafn- framt sagt að ef bilunin endurtæki sig kæmi til greina að ég fengi nýja ritvél. Eftir sáralitla notkun fór svo á sama veg sem fyrr og enn fór ég á stúfana með vélina. Hjá Magnúsi Kjaran fékk ég svo nýja ritvél. Þetta er fyrsta flokks þjónusta sem ber aö þakka og mættu mörg þjónustufyrir- tæki taka þetta sér til fyrirmyndar. ÓL fatlaðra: Lítil skil jgerð hjá RUV Eva hringdi: Mér finnst ríkissjónvarpiö hafa gert frekar lítið úr ólyrapíuleik- um fatlaðra og afrekum okkar fólks miðað viö hvað það gerði þegar sýnt var frá hinum fyrri, svo aö segja nótt sem nýtan dag. Þegar þetta er talað hefur enn ekkert komið í sjónvarpinu frá þessum ólympíuleikum fatlaðra. Mér finnst þetta miöur og reikna með að áhuginn hafi ekki verið mikill á að sýna frá leikunum. Þetta hefði þó verið áhugavert, ekki síst með tilliti til þess að það er á þessum ólympíuleikum sem við hreppum fyrstu gullverðlaun okkar. - Vonandi verður þetta bætt á einhvern máta, t.d. með þvi að sýna myndir frá leikunum strax og þær berast til landsins - og maður hlýtur að ætla að þær berist hingað eins og annað efni sem er í heimsfréttunum. Upphefðin að utan Sigriður Jónsdóttir skrifar: Þeir alþýðubandalagsmenn gátu ekki unnt Guðrúnu Helga- dóttmr þess að veröa ráðherra þrátt fyrir fjálglegt tal þar á bæ um jafhrétti kynjanna og „kven- frelsisbaráttu"?? - Þeir brutu meira að segja eigin flokksreglur til þess að sniðganga Guðrúnu (40% regluna). En þá gerist það aö alþýðu- flokksmenn vildu gjaman koma að sínum manni sem formanni fjárveitinganefndar og gerðu þvi Allaböllum tilboð sem þeir gátu ekki hafnað: - Að fá forseta sam- einaðs þings i skiptum. Guðrún Helgadóttir getur því sagt eins og hin sögufræga per- sóna Laxness forðum: „Mín upp- hefö kemur aö utan."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.