Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988. fþróttir__ Fretta- stúfar iÞRÓTTABÚNINGAR TIL ÆFINGA OG KEPPNI STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR. ARMÚLA 36 REYKJAVIK, SÍMI82168 OG 83830. Svíþjóð - handknattleikur: Malmö spáð góðu gengi - féll þó út úr bikarkeppninni í gærkvöldi Malmö, lið Gunnars Gunnarsson- ar, tapaði óvænt á heimavelli fyrir Frölunda, 26-28, í 16-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í hand- knattleik í gærkvöldi. Malmö leikur í úrvalsdeildinni en Frölunda í 1. deild. „Við vöknuöum ekki fyrr en í síö- ari hálfleik, vorum 10-16 undir í hléi en jöfnuðum 18-18. Þegar staðan var 24-24 klúðruðum við hraðaupp- hlaupi og vítakasti og töpuðum þessu í lokin," sagði Gunnar í samtah við DV í gærkvöldi. Þorbergur Aðalsteinsson og félagar í Saab mæta Vikingama í bikarnum í kvöld en Saab og Malmö fóru bæði upp í úrvalsdeildina sl. vor. Bæði hafa eflst af styrk frá vori og er til að mynda pólski landsliðsmaðurinn Dziuba genginn í raðir Saab. Er hann nú driffjöðrin í leik hðsins ásamt Þorbergi. Malmö er spáð góðu gengi en flest- ir sérfræðingar telja að þeir eigi eftir að koma á óvart í deildinni. Dziuba fehur vel að leikstíl hðsins og er hann jafnvel farinn að skyggja á sjálfan Bogdan Wenta í pólska landsliðinu. Er Svíar mættu Pólverjum á undir- búningstímanum fyrir ólympíuleik- ana skoraði þessi liðsmaður Saab 17 mörk í tveimur leikjum. Redberghd er spáð sigri í úrvals- deUdinni sænsku en þar skipar landshðsmaður hvert sæti. Tahð er að á hæla þess komi liðin Drott, GUIF, sem hafði hug á Óskari Ár- mannsyni FH-ingi um hríð í vor, Cliff, Sávehof og Ystad. -JÖG/VS/GG # Frank Bruno veifar hér samníngi um bardagann gegn Mike Tyson. Simamynd/Reuter Tyson segistætla að rota Bruno Nú fer að styttast í að bardagi þeirra Mikes Tyson og Franks Bruno fari fram í baráttunni um heimsmeistaratitUinn í þungavigt hnefaleikanna. Bandaríkjamaðurinn og Bret- inn munu slást á Wembley 17. desember en þó gæti svo farið að bardagjnn yröi fluttur til Bandaríkjanna. Sem sönnum hnefaleikaköppum sæmir eru þeir kokhraustir „félagarnir“ og þá sérstaklega Tyson. Hann sagði í gær við blaðamenn: „Ég mun verða búinn aö ná fyrri styrk mínum eftir tvær vikur og þá mun ég rota Frank Bruno.“ „Mér líðuralveg stórkostlega" Það hefur gengið á ýmsu hjá Tyson að undanfornu. Kona hans tók á rás frá honum vegna síendurtekinna barsmíða og enn hefur hann ekki jafnaö sig fullkomlega af meiðslum á hendi sem hann hlaut eftir að hafa slegið hnefaleikakappa á götu úti í Bandarikjunum. Þá lenti hann í bOslysi en virðist hafa jafnað sig á því. í gær sagði Tyson. „Auðvitað verður um mjög mikla peninga að tefla en aðalatriðiö er aö ég mun rota Bruno.“ Síðan var hann spurð- ur út í heilsuna eftir skilnaðinn og þá sagöi hann: „Mér liður stórkostlega. Ég á ekki við nein vandamál að stríða nema hvað ég finn enn til í hendinni." Þungur dómur Bandaríska sundkonan Angel Myers, sem aöeins er 21 árs, hefur hlotið þungan dóm í heimalandi sínu. Hún setti bandarísk met í 50 m og 100 m skriðsundi á bandaríska úr- tökumótinu fyrir síöustu ólympíuleika. Það stefiidi i að hún yrði i bandaríska ólympíu- liðinu en þaö fór á annan veg. Hún féU á lyfjaprófi og var sett út úr liöinu fyrir OL. Nú hefiir Myers misst bæði bandarísku metin og verðlaunin og verið dæmd i 16 mánaða keppnis- bana • ísak Tómasson skoraði grimmt fyrir Njarðvíkinga gegn ÍR í gærkvöldi. Margar eins og glöggt kemur fram á myndinni sem er frá viðureign liðanna í Seljaskóla. Enn naumi hjá Tindui - Valur sigraði 109-105 á Sauðárkr Þórhallur Asmimdssan, DV, Sauðárkróki: Tindastóll mátti sætta sig við naumt tap eina ferðina enn í úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar Valsmenn komu í heimsókn. Leikurinn var hraður og skemmtilegur, jafn lengst af og lítill munur í lokin en Valur stóð uppi sem sigurvegari, 109-105. Fyrri hálfleikur var hnífjafn og hðin skiptust á um að hafa forystuna. Munur- Staðan í ú rvalsdeild A-riðiU: Njarðvíl c 5 5 0 453-356 10 Valur.... 5 4 1 492-394 8 Grindav ík 4 2 2 361-302 4 Þór 4 1 3 325-407 2 ls 4 0 4 247-407 0 B-riölU: Keflavíl ...............4 4 0 346-292 8 TÍP **4.\ tMMHI .4 3 1 291-290 6 Haukar 2 2 375-361 4 ÍR Tmdast< 5 1 4 356-389 >11 5 0 S 448-496 2 0 inn var aldrei meiri en fjögur stig þar til í lokin að Valsmenn tóku góðan sprett og leiddu 60-53 í hléi. Þeir höfðu síðan frumkvæðið allan siðari hálfleikinn og leiddu lengi með 7-16 stigum. En þegar 6-7 mínútur voru eftir tóku „Tindamir“ upp pressuvörn sem skilaði góðum ár- angri - þeir höfðu minnkað muninn í 100-96 þegar þrjár mínútur voru eftir og síðan 105-102. En með rólegu spih og þriggja stiga körfum á réttum augna- blikum náðu Valsmenn að halda fengn- um hlut og sigra. Þrír lykilmanna Vals, Þorvaldur, Hreinn og Matthías, fengu allir íjórar villur í fyrri hálfleiknum en tókst samt að vera með út leiktímann, með hvíldum þó. Þeir sem leystu þá af hólmi skiluðu sínum hlutverkum mjög vel og hittu grimmt. Valsliðið var jafnt, allir tíu leik- mennimir skoruðu og reynslan skildi á milli höanna. Þeir Valur Ingimundarson og Eyjólfur Sverrisson vom að vanda í aöalhlut- verkum hjá Tindunum. Haraldur Leifs- son lék með þeim að nýju og skilaði sínu hlutverki vel. Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 39, Eyjólfur Sverrisson 31, Haraldur Leifsson 14, Guðbrandur Stefánsson 11, Austur-Þýskaland-ísland kl. 16 í dag: Verður ísland áfram taplaust? - tvísýnt með Ólaf Þórðarson I dag kl. 16 aö íslenskum tíma leik- ur ísland sinn þriðja leik í 3. riðli heimsmeistarakeppninnar í knatt- spymu. Hann er gegn Austur-Þjóð- veijum og fer fram á Friedrich- Ludwig-Jahn, leikvangi Dynamo Berhn í Austur-Berlín, og verður sýndur í beinni útsendingu í íslenska ríkissjónvarpinu. ísland hefur áður gert jafntefli, 1-1, við bæði Sovétmenn og Tyrki og á því möguleika á aö ljúka keppni á þessu ári án taps en fimm leikir em eftir í riðlinum á næsta ári. Þeir Friðrik Friðriksson og Halldór Áskelsson em báðir meiddir og vart leikhæfir, og það skýrist ekki fyrr en skömmu fyrir leik hvort Ólafur Þórðarson getur leikið með vegna meiðsla á læri. Sigurður Grétarsson kenndi sér meins í hné eftir æfingu í gærdag. Verði þeir báðir með mun byijunarlið íslands líta þannig út: Bjarni Sigurðsson, Guðni Bergsson, Sævar Jónsson, Ath Eðvaldsson, Ól- afur Þórðarson, Gunnar Gíslason, Ómar Torfason, Amór Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson, Guðmundur Torfason og Sigurður Grétarsson. „Það er ekki Ijóst hvað gert verður ef Ólafur getur ekki leikið og þá má búast við einhveijum stöðuskipting- um. Arnór verður á miðjunni að þessu sinni, að öllu óbreyttu, og von- andi verður þá hægt að nýta sprengi- kraft hans betur í skyndisóknunum en áður,“ sagði Guðni Kjartansson, aðstoðarþjálfari íslenska liðsins, í samtali við DV í gærkvöldi. -VS Liö Austur-Þjóöverja: Doll á meðal varamannanna - í leiknum við íslendinga í dag Útht er fyrir að Thomas Doll, fram- heijinn snjalli frá Dynamo Berlin, verði ekki í byijunarliði Austur- Þjóðveija gegn íslendingum í Berlín í dag. Ulf Kirsten verður væntanlega í framlínunni við hliðina á hinum eldfljóta Andreas Thom en Doll á bekknum og þeir austur-þýsku eru því greinitega ekki á flæðiskeri staddir með sóknarmenn. Lið Austur-Þýskalands er væntan- lega þannig skipað í dag: Jöm Weiss- flog, Ronald Kreer, Dirk Stahmann, MatMas Lindner, Matthias Dösc- hner, Jöm Stúbner, Jurgen Raab, Rainer Emst, Rico Steinmann, Ulf Kirsten og Andreas Thom. Tíu aörir leikir Það er mikið um að vera í Evrópu í kvöld því auk leiksins í Berlín eru tíu leikir á dagskrá í undankeppni HM. Þar ber hæst viðureign Vestur- Þjóðverja og hollensku Evrópumeist- aranna í Munchen en Hollendingar leika þar án Ruud Gullit. Þessi lið em í 4. riðh ásamt Wales og Finn- landi sem mætast í Swansea í kvöld. í 1. riðh leikur Grikkland við Dan- mörku og Búlgaría við Rúmeníu. í 2. riðli eigast England og Svíþjóð við á Wembley og Pólland og Albanla í Varsjá. Sovétríkin og Austurríki mætast í riðh íslands, 3. riðli, Skot- land og Júgóslavía í 5. riðh og Ung- veijaland og Norður-írland í 6. riðli. Loks eigast við Belgía og Sviss en tvö önnur Uð í 7. riðli, Luxemburg og Tékkóslóvakía, mættust í gærkvöldi. Tékkar sigraðu 2-0 í daufum leik með mörkum frá Ivan Hasék og Joz- ef Chovanec. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.