Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
33
Lífestm
aldrei fyrr. Svo mikið var æöið að
mjög gekk á beykiskógana í Evrópu.
Stóllinn seldist í ótrúlega mörgum
eintökum. En svo mikið er vist að
óhætt er að kalla Vínarstólinn antik-
húsgagn í dag.
Breytingar á
síðustu öld
Upp úr 1850, þegar heimssýningin
var haldin í Bretlandi, fór að bera á
talsverðum breytingum í hönnun
húsgagna. Þá komu fram menn á
sjónarsviðið sem börðust fyrir ein-
faldleika. A.m.k. vildu þeir einfalda
útht húsgagna - nema burt útskurð
eins og kostur var. Þarna var barist
gegn ofhleöslu og skrauti. Þetta átti
einnig við um bolla, tekönnur og
annað shkt á smáum hlutum. Purit-
anismaHum var fylgt.
Á Norðurlöndum hafa lituö hús-
gögn verið mikið við lýði, sumir tala
um dellu. Húsgögn á Norðurlöndum
voru gjarnan máluð í húslitum, t.d.
kistur og kommóður. Þannig sást
ekki í skreytingar húsgagnanna.
Þetta sveið mörgum meistaranum
sem hannað hafði og smíðað.
Það var ekki fyrr en á sjöunda ára-
tug þessarar aldar að lituð húsgögn
fóru að víkja. Þá fyrst fór að bera á
því að náttúruliturinn kæmi fram,
þ.e.a.s. að viðaráferðin sæist. Hús-
gögn eru oft afsýrð eða bæsuð þann-
ig að áferö viðarins kemur fram.
Þetta er liður í að nýta gamalt og
láta það komast aftur í gagniö.
Ef húsgögn eru afsýrð kemur mjúk
áferð viðarins fram og lakkaö er yfir _
svo viðurinn dökkni síður. Við það
að vera bæsaður eða sandblásinn fær
viðurinn hins vegar grófari áferð.
En við meðferð sem þessa kemur
smíðin betur í ljós.
Gömul húsgögn á
markaðnum
í dag er auðveldara að hafa uppi á
skápum og slíkum antikmunum
heldur en stólum og borðum, a.m.k.
vel fömum. Stólar og borð hafa frek-
ar látið á sjá. En antikborð frá Dan-
mörku eru eftirsótt, t.d. sporöskju-
löguð borð, oft með einum, þykkum,
útskornum fæti. Þessi borð eru um
hundrað ára gömul. Það sjást rispur
á sumum þeirra en yfirleitt er settur
htih hvítur dúkur á miðjuna.
Mest er til af antikhúsgögnum úr
eik hér á landi. Eikina er hægt að
þekkja þannig aö hún er frekar gróf-
gerð og mött. Erfiðara er hins vegar
að hafa uppi á húsgögnum úr ma-
hóní. Sá viður er með fínlegri blæ
og meira glansandi en eikin. Hann
er líka með rauðleitari áferð. En
verslanir með gömul húsgögn eru til
á landinu og má segja að talsvert sé
á markaðinum. Gömul húsgögn'
skipta oft um eigendur. Alltaf finnast
einhverjir sem vilja eiga það sem
aðrir eru þreyttir á eða vÚja ekki.
Húsgögn verða gömul og klassísk en
málshátturinn segir: Enginn verður
eldri en gamall. -ÓTT.
Þar sem húsrúm leyfir er heppiiegt
að hanna eitt herbergi eingöngu
með gömlum húsgögnum t.d. ef um
arf er að ræða.
DV-mynd KAE
Ljósakrónur eru nauðsynlegar til að undirstrika stílbrigði gamalla húsgagna. Þessir munir eru frá
Antikmunum á Laufásvegi. DV-mynd KAE
Gamlir skápar eru oft betur farnir en stólar og borö.
DV-myndir KAE